Gagnrýnir að rífa eigi gömul hús við Laugaveg
Ólafur lét bóka á fundinum í gær, að engum ætti að dyljast, að í uppsiglingu sé allt of mikil röskun á byggingarsögu og heildstæðri götumynd Laugavegarins. Endurskoða þurfi deiliskipulag Laugavegarins á svæðinu frá Laugavegi 1-73 og skoða málið heildstætt. Ekki verði unað við þá niðurstöðu, sem starfshópur um endurskipulagningu Laugavegarins komst að fyrir nokkrum árum, en þar var lagt til mun meira niðurrif gamalla húsa við Laugaveg en áður hafði verið talið verjandi.
Fulltrúar Reykjavíkurlistans í borgarráði létu bóka, að í bókun Ólafs kæmi fram ákveðinn misskilningur. Mikil áhersla hafi verið lögð á það við deiliskipulag Laugavegar að tryggja nauðsynlega uppbyggingu nýs verslunar- og atvinnuhúsnæðis en tryggja í leiðinni að yfirbragð og karakter gömlu húsanna við Laugaveg haldi sér. Til að tryggja nauðsynlega sátt þessara sjónarmiða hafi verið settur á laggirnar vinnuhópur með sérfræðingum minjaverndarinnar, rekstraraðilum á svæðinu, kjörnum fulltrúum og arkitektum frá Skipulagssviði. Sá vinnuhópur hafi skilað niðurstöðum sem skipulagið byggir á.
Segir í bókuninni, að nú sé lokið miklu átaksverkefni varðandi deiliskipulag á Laugavegi sem tryggi nauðsynlegt jafnvægi verndunar og uppbyggingar. Allt tal um annað sé fyrst og fremst til þess fallið að slá ryki í augu fólks.
Fram kemur í svari Skipulagssviðs, að húsin, sem heimilað hefur verið að rífa eru númer 4, 5, 6, 11, 12B, 17, 19, 20, 20A, 21, 22A, 23, 27, 28B, 29, 33, 35, 38, 41, 45, 55, 65, 67, 69 og 73 við Laugaveg.
Innlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 18. maí 2005, Innlent Vill að bannað verði að rífa 19. aldar hús
- Mánudagur, 28. febrúar 2005, Innlent Vill að nýr starfshópur endurskoði deiliskipulag við Laugaveg
- Laugardagur, 7. maí 2005, Innlent Mótmælir rangfærslum í umræðu um niðurrif húsa við Laugaveg
- Laugardagur, 7. maí 2005, Innlent Sorgarborðar við Laugaveg
- Föstudagur, 12. ágúst 2005, Innlent Handtekinn fyrir að krota slagorð á Alþingishúsið og önnur hús í miðbænum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































