Opinn flugmiði keyptur fyrir Fischer til Íslands

Guðmundur G. Þórarinsson og John Bosnitch á blaðamannafundinum í Tókýó í morgun.

Guðmundur G. Þórarinsson og John Bosnitch á blaðamannafundinum í Tókýó í morgun. AP

Fram kom á blaðamannafundi í Tókýó í dag, sem stuðningsmenn Bobbys Fischers héldu, að Fischer hefði verið settur í einangrun í innflytjendabúðunum þar sem hann hefur verið í haldi í nærri 8 mánuði. Keyptur hefur verið opinn flugmiði til Íslands fyrir Fishcer. Á fundinum hvöttu þeir Guðmundur G. Þórarinsson, fyrrum forseti Skáksambands Íslands, og Sæmundur Pálsson, vinur Fischers, japönsk stjórnvöld til að leyfa Fischer að fara til Íslands.

Guðmundur sagði á fundinum að mannlegur harmleikur væri í uppsiglingu. „Við erum að ræða um mál manns, sem sennilega er mesti skáksnillingur sem uppi hefur verið," sagði hann, samkvæmt frásögn fréttavefjar blaðsins Mainichi Shimbun.

Guðmundur sagði að þótt komandi kynslóðir muni heiðra Fischer fyrir skáksigra hans muni sagan ekki fara mjúkum höndum um Bandaríkin og Japan vegna atburðanna nú.

„Hann hefur aldrei meitt nokkurn mann nema hugsanlega með orðum," sagði Guðmundur. „Hann hefur aðeins fært taflmenn af svörtum reitum á hvíta."

Sæmundur Pálsson lýsti á fundinum miklum vonbrigðum með að hann hefði ekki enn fengið að hitta Fischer og hann vonaðist til að geta komið ferðaskjölum og útlendingavegabréfi til hans.

Fram kom á fundinum, að Fischer hefði verið settur í einangrun í útlendingabúðunum. Hefur engum verið leyft að hitta hann undanfarna daga, ekki heldur Masako Suzuki lögmanni hans. Einnig hefur honum verið bannað að hringja úr búðunum. Talsmaður búðanna neitaði að tjá sig um málið við AFP fréttastofuna að öðru leyti en því að um öryggisráðstafanir væri að ræða.

Miyoko Watai, unnusta Fischers, sagðist óttast um heilsu hans. Sagði hún að Fischer hefði misst um 10 kg frá því hann var handtekinn í júlí. Þá sagði hún að Fischer hefði nú lagt fæð á Japan og Japana.

Masako Suzuki sagði að keyptur hefði verið opinn flugmiði fyrir Fischer til Íslands. Sagði hún að Fischer hefði í síðustu viku sótt formlega um að fá að fara sjálfviljugur frá Japan til Íslands og lofað því að láta af málaferlum gegn japanska dómsmálaráðuneytinu ef fallist yrði á þetta. Japönsk innflytjendayfirvöld hefðu ekki svarað þessari beiðni.

John Bosnitch, formaður stuðningsmannanefndar Fischers í Japan, sagði að vonast væri til að Fischer fengi að fara frá Japan fyrir 9. mars en þá verður Fischer 62 ára.

Bosnitch bætti við að bandaríski lögmaðurinn Richard J. Vattuone væri að undirbúa kröfu um að hugsanlegur málarekstur á hendur Fischer í Bandaríkjunum yrði stöðvaður.

Miyoko Watai, unnusta Fischers, og John Bosnitch ræða við Guðmund G. Þórarinsson og Garðar Sverrisson ...

Miyoko Watai, unnusta Fischers, og John Bosnitch ræða við Guðmund G. Þórarinsson og Garðar Sverrisson í Tókýó. mbl.is/Einar S. Einarsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIKINI RAUTT
Aðhaldsföt - Sundbolir - Tankini - Bikini - Náttföt - Undirföt - Sloppar. Frú Si...
HÚS TIL LEIGU Í VENTURA, ORLANDO, USA
Til leigu huggulegt hús á frábærum stað í Orlando,18h.golfvöllur/ódýrt spil,sund...
Hvítur dvergschnauzer.
Eigum 2 yndislega rakka ólofaða úr spennandi goti undan innfluttum margföldum me...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...