Íslenskir stafir orðnir gjaldgengir í lénnöfnum á Netinu vegna stuðnings vafra: Allir geta skráð íslenskar útgáfur þekktra lénnafna

Lén á Netinu hafa fengist skráð með séríslenskum stöfum frá 1. júlí í fyrra. Með séríslenskum stöfum er átt við á, é, í, ó, ú, ý, ð, þ, æ og ö. Lén á borð við morgunblaðið.is, hæstiréttur.is og rúv.is eru því orðin gjaldgeng.

Hlaða þarf niður sérstöku forriti á tölvur til að algengir vafrar á borð við Internet Explorer styðji íslensku stafina í lénnöfnum en t.d. Firefox-vafrinn styður þá nú þegar.

Annarra að dæma um réttmæti

Internet á Íslandi (ISNIC) skráir lén með endingunni .is. Að sögn Helga Jónssonar framkvæmastjóra byrjaði ISNIC að taka við skráningum léna með íslenskum stöfum í lénnöfnum hinn 1. júlí í fyrra. Fram að því var einungis hægt að nota stafi úr svonefndri ASCII-stafatöflu. "Þeir sem áttu lén sem var hægt að varpa yfir í íslenskt nafn nutu forgangs í hálft ár að skrá slík lén," sagði Helgi. Hann segir að lénin með íslensku stöfunum séu ný lén og því seld sem slík. Ekki sé í verkahring ISNIC að kanna hvort verið er að skrá lénnöfn sem bera sömu heiti og skráð vörumerki eða annað.

"Við skráum lén á ábyrgð þess sem sækir um," sagði Helgi. "Við erum ekki dómstóll eða neitt þvílíkt í svona málum." Hann sagði að umsækjendum léna væri bent á það í umsóknarferlinu að kanna vel hvort heiti lénsins, sem sótt væri um, væri líkt lénnafni sem þegar væri skráð. Hugsanlega gæti gengið gegn samkeppnislögum að sækja um slík lén. "Þetta settum við inn í samráði við Samkeppnisstofnun á sínum tíma. Það eru mýmörg dæmi um það í íslenskunni að hægt er að hafa lén í ýmsum föllum og með eða án greinis. Það er matsatriði í hvert sinn hvort lén er líkt einhverju léni sem fyrir er og hvort það er þekkt lén."

Aðspurður sagðist Helgi ekki sjá ástæðu til að breyta söluferli léna. "Skráningarferlið er rafrænt. Við viljum ekki hverfa aftur til þess kerfis að við séum einhvers konar dómstóll sem ákveður hver geti sótt um tiltekið lén. Slíkar aðferðir við skráningu léna hafa hvarvetna verið lagðar af vegna þess að ókostir hafa reynst vega þyngra en kostir. Ef við færum út í það væri sennilega ekki hægt að finna neina algilda reglu þar um.

Fólk sækir um lén á eigin ábyrgð. Síðan er það annarra en okkar að meta hvort lén hafi lent hjá réttmætum eiganda eða ekki. Það er fag út af fyrir sig," sagði Helgi.

Helgi segir að töluvert hafi verið skráð af lénum með íslenskum stöfum, meðan forkaupsréttur lénaeigenda gilti til síðustu áramóta, en hafði ekki tiltækan fjölda þeirra. Erfitt væri að segja til um hvað menn væru áfjáðir í að skrá séríslensk lén við hlið þekktra léna.

ISNIC bendir á það á heimasíðu sinni að lén með séríslenska stafi hafi enn sem komið er mjög takmörkuð not. Enn vanti stuðning við slík sértákn í almennan netsamskiptahugbúnað. Til dæmis sé ekki hægt að nota séríslenska stafi í netföng og þar með erfiðleikum bundið að senda eða taka á móti tölvupósti komi séríslensk tákn fyrir í lénnafnshluta netfangs.

Vegna ófullkominnar virkni léna, sem innihalda séríslenska stafi, hefur stjórn ISNIC ákveðið að veita 50% afslátt af stofngjaldi og árgjaldi slíkra léna frá 1. jan. 2005 til ársloka 2006. Venjulegt stofngjald léns er 12.450 krónur og innifelur það árgjald fyrsta árið. Árlegt endurnýjunargjald vegna léns er 7.918 krónur.

Aðspurður sagðist Helgi ekki hafa orðið var við mótmæli lénaeigenda vegna þess að einhverjir óviðkomandi hefðu eignast lén með íslenskum rithætti lénaheita þeirra. Hann hafði séð að athygli var vakin á þeim möguleika og taldi það hafa ýtt við mönnum. "Það hafa ýmsir verið að skrá íslensk lén nú eftir páskana. Þeir hafa séð að þetta væri eitthvað sem þeir ættu að gera, því einhvern tímann verða þessi lén fullgild. Það er hægt að fletta upp heimasíðum í velflestum vöfrum, en erfiðara að nota íslensk heiti í netföngum."

Helgi taldi að íslensk heiti yrðu ekki gjaldgeng í tölvupóstföngum á næstunni.

Stendur í vegi íslenskunnar

Hermann Páll Jónsson, framkvæmdastjóri Netvistunar ehf. í Reykjavík, er ósáttur við að Internet á Íslandi (ISNIC) skuli selja hverjum sem er lénnöfn sem eru íslensk útgáfa lénnafna þegar þekktra léna. Til að vekja athygli á málinu keypti Hermann 7. mars síðastliðinn lénin morgunblaðið.is, en morgunbladid.is er í eigu Morgunblaðsins, ísland.is, en Island.is er í eigu forsætisráðuneytisins, rúv.is, en ruv.is er í eigu Ríkisútvarpsins, vísir.is, en visir.is er í eigu 365 prentmiðla, reykjavík.is, en reykjavik.is er í eigu Reykjavíkurborgar. Hermann hefur sett upp heimasíðu til að vekja athygli á málinu og má nálgast hana gegnum lénið www.netvistun.is, eða einhver ofantalinna léna með íslensku stöfunum.

Hermann telur að það hafi farið framhjá mörgum þegar ISNIC fór að selja lén með íslenskum stöfum 1. júlí í fyrra. Málið hafi fyrst og fremst verið kynnt á heimasíðu ISNIC. Eins segist hann vita af eigendum léna, rituðum með alþjóðlegum hætti (þ.e. ASCII-stafatöflu), sem blöskraði þessi framgangsmáti ISNIC og neituðu að kaupa sérstaklega lén með íslenskum rithætti nafna sem þeir töldu sig þegar eiga. Í einhverjum tilvikum telur Hermann að vitneskja um þessa nýjung hjá ISNIC hafi stoppað í tölvudeildum fyrirtækja og ekki komist til stjórnenda þeirra. Hann hefur talað við stjórnendur fyrirtækja og ríkisstofnana sem vissu ekki af þeim möguleika að skrá lén með íslenskum rithætti.

Hermann bendir á að þrátt fyrir að nöfn léna hafi verið rituð án íslensku stafanna til 1. júlí í fyrra hafi skapast sú venja að tala um íslensk lén samkvæmt íslenskum heitum þeirra. Fólk segi "Vísir.is", en ekki "visir.is". Það segi "Flugfélag.is", en ekki "flugfelag.is" o.s.frv. "Flugfélag Íslands stendur frammi fyrir því nú að einhver maður í Kópavogi á lénið flugfélag.is," sagði Hermann.

Hermann sagðist hafa haft samband við Internet á Íslandi síðastliðið sumar og lýst furðu sinni á því að lénaeigendum væri stillt upp við vegg. Annaðhvort keyptu þeir lén með íslenskum rithætti lénnafna í þeirra eigu eða nýju lénin yrðu seld einhverjum öðrum. "Þá fékk ég þau svör að svona væri þetta bara."

Hermann telur að forkaupsréttur eigenda léna að íslenskri útgáfu lénnafna þeirra hefði átt að vera varanlegur. Þannig hefði Flugfélag Íslands átt víst að öðrum yrði ekki selt lénið flugfélag.is. "Hvernig er hægt að markaðssetja þetta sem nýtt lén," spurði Hermann. "Þegar markaðurinn fer að spyrja eftir íslenska rithættinum munu núverandi eigendur léna hvort eð er kaupa lénin með íslenska rithættinum."

Hann telur málið mikilvægt, því það hafi áhrif á hvernig Netið kemur til með að þróast hér á landi. "Viljum við nota íslensku eða ekki? Ég fæ ekki séð að ritháttur léna geti þróast yfir á íslensku, ef ekki eru bein tengsl á milli þekktra léna með alþjóðlega rithættinum og lénnafna þeirra með íslensku stöfunum. Ef það verður ekki stöðvað að selja óviðkomandi aðilum íslenskar útgáfur nafna þekktra léna eigum við á hættu að íslensku lénin verði ekki notuð sem skyldi."

Hermann hefur haldið mörg námskeið fyrir byrjendur í netnotkun. Þegar hann segir nemendum sínum að fara inn á vefi Ríkisútvarpsins, Morgunblaðsins eða Vísis sé mjög algengt að þeir skrifi lénaheitin með íslenskum stöfum. Við núverandi aðstæður lendi þeir inni á vef Netvistunar. Hættan á misskilningi og misnotkun lénnafna muni aukast eftir því sem fleiri vafrar styðji íslensku stafina.

Hermann telur að nú standi lénaeigendur, sem misst hafa af íslenskaðri útgáfu af lénheitum sínum, frammi fyrir því að reyna að verja sinn rétt frammi fyrir dómstólum eða jafnvel að kaupa íslensku lénin dýrum dómum. Á vef Netvistunar er safnað undirskriftum gegn því hvernig staðið er að sölu léna með íslenskum rithætti. Að sögn Hermanns höfðu um 100 aðilar skráð sig þar sl. föstudag þar á meðal margir talsmenn umsvifamikilla léna.

Lagaákvæði um auðkenni

SIGURJÓN Heiðarsson, lögfræðingur hjá Samkeppnisstofnun, segir að mál þar sem nýskráð lén eru svo lík eldri lénum að misskilningi og skaða gæti valdið hafi verið afgreidd á grundvelli 25. gr samkeppnislaga (8/1993) þar sem segir. "Óheimilt er að nota í atvinnustarfsemi firmanafn, verslunarmerki eða því líkt sem sá hefur ekki rétt til er notar eða rekur atvinnu undir nafni sem gefur villandi upplýsingar um eignarrétt eða ábyrgð atvinnurekanda. Enn fremur er sérhverjum bannað að nota auðkenni, sem hann á tilkall til, á þann hátt að leitt geti til þess að villst verði á því og öðru einkenni sem annað fyrirtæki notar með fullum rétti."
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Dýrir tólf pakkar af vindlingum

Vindlingar.
16:54 Hæstiréttur hefur staðfest átta mánaða fangelsi yfir karlmanni sem braut sér leið inn í söluturn í Reykjanesbæ í september 2012 og stal þaðan tólf pökkum af vindlingum. Refsinguna fékk hann raunar ekki aðeins fyrir það eitt því með broti sínu rauf maðurinn reynslulausn sem dæmd var upp. Meira »

Stofnaði lífi sonarins ekki í hættu

Úr umferðinni.
16:48 Hæstiréttur hefur staðfest sýknudóm yfir karlmanni sem var ákærður fyrir að aka undir áhrifum áfengis og með akstrinum stofnað lífi og heilsu þriggja ára sonar síns, sem var farþegi í bínum, í hættu á ófyrirleitinn hátt. Meira »

Sveik út fé af Íbúðalánasjóði

Íbúðalánasjóður
16:40 Hæstiréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisdóm yfir 24 ára karlmanni en hann var sakfelldur fyrir hylmingu, skjalafals og fjárdrátt. Maðurinn veitti 2,1 milljón króna viðtöku á bankareikningi sínum, sveik út 19,8 milljónir og dró sér 12 milljónir. Hann var þó ekki talinn skipuleggjandi brotanna. Meira »

Konur 42% í nefndum og ráðum

Fjármálaráðuneytið.
16:29 Breyting hefur orðið til batnaðar varðandi hlut kvenna í nefndum og ráðum sem skipaðar eru af fjármála- og efnahagsráðherra samkvæmt fréttatilkynningu frá ráðuneytinu. Þar kemur fram að á árinu 2003 hafi konur verið 30% sem sátu í nefndum á vegum ráðherra en á síðasta ári hafi hlutfallið verið komið í 42%. Meira »

„Munum ekki láta staðar numið“

Frá Alþingi.
16:08 Samhljómur var meðal þeirra þingmanna sem tóku til máls í sérstakri umræðu um jafnlaunaátak og kjarasamninga á Alþingi í dag. Rauði þráðurinn í umræðunni var kynbundinn launamunur og voru þingmenn allir á því máli að betur þurfi að gera til þess að jafnrétti verði náð. Meira »

Gjaldtaka við komu og brottför

„Þeir staðir sem nú þegar liggja undir gríðarlegu álagi geta ekki beðið eftir framlagi úr ...
15:51 „Með breiðum flötum gjaldstofni er verið að segja að Ísland sé land náttúrufegurðar. Allir sem koma til og frá landinu eiga að varðveita það,“ segir Ólafur Örn Haraldsson, forseti Ferðafélags Íslands, en félagið samþykkti í gær bókun þar sem afstaða er tekin til gjaldtöku á vinsæla ferðamannastaði. Meira »

Auki veg kvenna í kvikmyndum myndskeið

bleikir steinar
16:19 Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, voru afhent í dag. Félög í kvikmyndaiðnaði fengu steinana en Femínistafélagið hvetur til þess að gerðar verði fleiri kvikmyndir með konum í aðalhlutverki. Meira »

Íslendingar strandaglópar í New York

Fólkið átti flug með fyrirtækinu Icelandair.
15:56 Hópur Íslendinga situr nú fastur á JFK flugvelli í New York. Hildur Ásgeirsdóttir, einn Íslendinganna, er stödd á vellinum ásamt þremur börnum sínum og segir upplýsingaflæði til farþeganna afar takmarkað. Fólkið átti flug til Íslands klukkan 14 að staðartíma í gær með Icelandair. Meira »

Skuldarar fá leiðréttingu

Frosti Sigurjónsson.
15:44 „Þetta á ekki að trufla fasteignamarkaðinn. Mikilvægt er að fram komi að þeir sem hafa orðið fyrir ófyrirséðri höfuðstólsbreytingu vegna hrunsins fá leiðréttingu,“ segir Frosti Sigurjónsson, formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis. Meira »

Ráðherrar ræddu skattamál og ESB

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Frederik Reinfeldt á fundi með blaðamönnum í dag.
15:34 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, forsætisráðherra, gerði forsætisráðherra Svíþjóðar, Frederik Reinfeldt, grein fyrir áherslum nýrrar ríkisstjórnar varðandi efnahagsmál, m.a. einföldun skattkerfis og úrræða fyrir skuldsett heimili á fundi þeirra í Stokkhólmi. Meira »

„Mjög dapurlegur dagur“

Mótmælendur í Hvalfirði er fyrsta langreyðurin kom á land í gær.
15:27 „Þetta er mjög dapurlegur dagur,“ segir Robbie Marsland, hjá Alþjóða dýraverndunarsjóðnum, IFAW, um þær fréttir að fyrstu langreyðarnar hafi nú verið veiddar við Íslandsstrendur. Meira »

Forsætisráðherra spurður út í Snowden

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra sést hér ræða við blaðamenn ásamt Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, í ...
15:19 Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra segir í samtali við AFP-fréttastofuna að aðstoðarmaður bandaríska uppljóstrarans Edwards Snowden hafi átt í óformlegum viðræðum við íslenska embættismenn. Líkt og fram hefur komið hefur Snowden lýst áhuga á að sækja eftir pólitísku hæli á Íslandi. Meira »

Bótaskylt vegna Inspired by Iceland

15:10 Íslenska ríkið var í dag dæmt til að greiða auglýsingastofunni J&L ehf. rúmar fimm milljónir í skaðabætur vegna þátttöku auglýsingastofunnar í Inspired by Iceland-verkefninu. Meira »

Sýknaðir af nauðgun í Hæstarétti

13:57 Hæstiréttur sýknaði í dag tvo karlmenn sem Héraðsdómur Reykjavíkur sakfelldi fyrir nauðgun í ársbyrjun. Niðurstaða héraðsdóms er gagnrýnd og segir í dómi Hæstaréttar að ákæruvaldinu hafi mistekist að sanna sekt mannanna. Fimm dómarar Hæstaréttar dæmdu í málinu en einn þeirra skilaði sératkvæði. Meira »

200 taka þátt í WOW Cyclothon-keppninni

Frá WOW Cyclothon árið 2012.
13:52 Um 200 manns eru skráðir til leiks í WOW Cyclothon hjólreiðakeppnin sem hefst í dag kl. 18. Samtals verða hjólaðir 1.332 kílómetrar á innan við 72 klukkustundum. Meira »

Tölvuþrjótar herja á viðskiptavini Íslandsbanka

14:07 Nokkrir viðskiptavinir Íslandsbanka hafa í morgun fengið póst þar sem þeir eru beðnir um að staðfesta notendaupplýsingar með því að tengjast netbanka í gegnum þá vefslóð sem gefin er upp í póstinum. Efni póstsins (subject) er: „Staðfesting... reiknings Alerts“. Meira »

Rannsóknarnefnd skoðar vél Ómars

Flugvél Ómars flatmagar við Sultartangalón
13:54 „Þegar ég kom að þessu með myndavél þá var þyrlan búin að krækja í vélina,“ segir Aron Steinn Guðmundsson, starfsmaður Ístaks við Búðarhálsvirkjun, en hann tók myndir af því í dag þegar þyrla Landhelgisgæslunnar flutti flugvél Ómars Ragnarssonar, sem brotlenti við Sultartangalón á þjóðhátíðardag. Meira »

Svavar og RÚV kæra til Mannréttindadómstóls

Svavar Halldórsson.
13:45 Svavar Halldórsson og Ríkisútvarpið hafa sameiginlega ákveðið að una ekki dómi Hæstaréttar í máli Jóns Ásgeirs Jóhannessonar gegn Svavari, sem féll í nóvember. Niðurstaða Hæstaréttar hefur því verið kærð til Mannréttindadómstóls Evrópu. Meira »
Til sölu skrifborð
Til sölu skrifborð, 155x70 cm. Með áfastri hillu og skáp. Verð: 20.000,- Uppl. í...
DEKK Á RÝMINGARÚTSÖLU
Dekk á rýmingarútsölu 30x9.5 R 15 Fulda kr. 24.900 245/70 R...
BÍLAVIÐGERÐIR
Bílaviðgerðir á betra verði þjónustum all...
GLÆSILEGT HÚS T LEIGU Í VENTURA FLORIDA
Í húsi sem er v. 18 holu golfvöll eru 3 svh. m. sjónv., 2 bh., 1 wc, stór stofa,...
 
Skrifstofa í austurstræti 17

Skrifstofa í Austurstræti 17 til leigu...
Sölufulltrúi
Sölu/markaðsstörf
SkrifStofuStarf innflutningsfyrirtæki ...
Grunnskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Grunnskólinní Borgarnesi Grunnskólaken...
Styrkur´- minningarsjóður karls j sighvatssonar

Stjórn Minningarsjóðs Karls J. Sighvatss...