Óánægja með að bensínstöð rísi í nágrenni LSH

Áform borgaryfirvalda um að koma Essó-bensínstöð fyrir á reitnum við Umferðarmiðstöðina í Reykjavík, koma þeim, sem annast hafa skipulagningu nýs húsnæðis fyrir Landspítala - háskólasjúkrahús á Hringbrautarsvæðinu, nokkuð á óvart, að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu.

Stjórnendur LSH eru, skv. heimildum Morgunblaðsins, ekki allir sáttir við að Olíufélagið hf. fái að reisa bensínstöð á umræddum reit. Á sama svæði sé gert ráð fyrir nýbyggingu spítalans. Ekki sé heppilegt að hafa bensínstöð svo nálægt nýja spítalanum.

Þegar Davíð Á. Gunnarsson og Jóhannes M. Gunnarsson, forstjóri LSH, voru spurðir út í þetta mál í gær, vísuðu þeir á samkomulag sem Jón Kristjánsson, heilbrigðisráðherra og þáverandi borgarstjóri, Þórólfur Árnason, undirrituðu í apríl 2004. Í því er m.a. kveðið á um að borgin úthluti LSH og stofnunum Háskóla Íslands, sem tilheyra spítalanum, samtals 23 þúsund fermetra svæði, á umræddum Umferðarmiðstöðvarreit.

"Auk þess samþykkja samningsaðilar að borginni sé heimilt að úthluta allt að 7.000 fm til uppbyggingar miðbæjarstarfsemi í samræmi við fyrirhugað deiliskipulag svæðisins," segir í samkomulaginu. Þar segir einnig að fjögurra manna samvinnunefnd Reykjavíkurborgar, LSH, HÍ og eigenda Umferðarmiðstöðvar Íslands skuli vinna sameiginlega að deiliskipulagstillögu svæðisins.

Jóhannes segist ekki hafa fengið neinar formlegar upplýsingar um að til standi að breyta þessu samkomulagi milli ríkis og borgar. "Ég trúi því ekki fyrr en ég tek á því að það verði gerð á því breyting."

Samþykkt í borgarráði

Samtals var Umferðarmiðstöðvarreiturinn 30 þúsund fermetrar þegar samkomulagið var undirritað. Að sögn Helgu Bragadóttur, skipulagsfulltrúa Reykjavíkurborgar, hefur sex þúsund fermetrum verið bætt við reitinn síðan þá, vegna flutnings Hringbrautar.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri segir að borgaryfirvöld hafi skrifað undir samkomulag við Olíufélagið hf. sl. haust um að unnið skyldi að því að koma bensínstöð félagsins fyrir á Umferðarmiðstöðvarreitnum, í ljósi þess að það myndi missa bensínstöð við Faxaskálann í Reykjavík, vegna ráðstefnu- og tónlistarhússins, sem þar á að rísa.

Í því samkomulagi er gert ráð fyrir því að Olíufélagið fái 4000 fermetra svæði á umræddum reit. Steinunn segir að samkomulagið hafi á sama tíma verið lagt fram og samþykkt í borgarráði.

"Það er sameiginlegt hagsmunamál ríkis og borgar að koma þessari bensínstöð fyrir á öðrum stað svo ráðstefnu- og tónlistarhús megi rísa," segir hún.

Steinunn bendir á að Umferðarmiðstöðvarreiturinn sé mjög stór. "Hluti reitsins er ætlaður spítalanum en hluti hans var hugsaður undir miðbæjarstarfsemi. Borgaryfirvöld eiga ráðstöfunarrétt yfir þeim hluta." Hún tekur fram að síðustu að unnið sé að málinu í samráði við heilbrigðisyfirvöld.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Raflagnaefni
Eftirstöðvar af rafmagnsvörulager til sölu. Vír, rör, töfluefni, Ticino efni, H...
Á besta stað í Borgarnesi
Verslunar og þjónustuhúsnæði til leigu uppl í 4371055 8928685...
KAUPUM GULL
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR Kaupum allt gull. Kaupum silfurborðb...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR. Bókhald og rekstrarráðgjöf. Sími 77 50 200 og 519 7585. www.be...
 
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...