Hæstiréttur mildar refsingu í Landsímamáli

Húsnæði Símans við Suðurlandsbraut í Reykjavík.

Húsnæði Símans við Suðurlandsbraut í Reykjavík.

Hæstiréttur mildaði í dag refsingu þriggja sakborninga í Landsímamálinu svonefnda. Var Kristján Ragnar Kristjánsson dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir hylmingu, móttöku og ráðstöfun fjármuna en hann var dæmdur í 2 ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur, eins og Árni Þór Vigfússon en Hæstiréttur mildaði refsingu hans í 15 mánuði. Þriðji sakborningurinn var dæmdur í 3 mánaða fangelsi en hann fékk 8 mánaða fangelsi í héraðsdómi.

Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrverandi aðalgjaldkeri Landssíma Íslands, sem í héraðsdómir var dæmdur í 4½ árs fangelsi fyrir rúmlega 261 milljóna króna fjárdrátt í starfi, áfrýjaði ekki þeim dómi.

Hæstiréttur sakfelldi þá Kristján og Árna fyrir hylmingu, með því að hafa veitt viðtöku fé, samtals rúmlega 163 milljónum króna, sem Sveinbjörn hafði dregið sér í starfi sínu hjá Landsímanum, haldið því ólöglega fyrir eiganda þess og hagnýtt það í eigin þágu og félaga sem þeir áttu að hluta eða öllu leyti.

Þá var Ragnar Orri Benediktsson sakfelldur fyrir peningaþvætti, með því að hafa á sama hátt veitt viðtöku fé, um 25,5 milljónum króna, sem Sveinbjörn hafði dregið sér, og hagnýtt það í eigin þágu eða ráðstafað því til annarra.

Þeir Árni Þór, Kristján og Ragnar höfðu verið ákærðir fyrir að „hafa mátt vera ljóst“ að vörslur fjárins í höndum Sveinbjörns hefðu ekki stofnast með löglegum hætti. Féllst héraðsdómur á með ákæruvaldinu að þeim hafi hlotið að vera þetta ljóst. Gerðu þremenningarnir athugasemd við þessa niðurstöðu fyrir Hæstarétti og héldu því fram að ásetningsbroti væri ekki lýst í ákæru, heldur gáleysisverknaði sem ekki væri refsiverður .

Af því tilefni tók Hæstiréttur fram að lög um meðferð opinberra mála áskildu ekki að í ákæru væri lýst huglægri afstöðu ákærða til verknaðarins sem ákært væri fyrir, enda skæru dómstólar en ekki ákæruvald úr um saknæmi. Málflutningur ákæruvaldsins hafi miðast við að um ásetningsbrot hafi verið að ræða og þremenningunum hafi þess vegna mátt vera ljóst að þeir væru ákærðir fyrir ásetningsbrot.

Við ákvörðun refsingar Árna Þórs og Kristjáns var litið til þess að brot þeirra vörðuðu fjölmargar greiðslur, sem spönnuðu yfir talsverðan tíma, og voru flestar að verulegri fjárhæð. Námu brotin alls stórfelldri fjárhæð, sem átti sér ekki hliðstæðu í öðrum dómsmálum. Með því að Kristján hafði á hendi fjárvörslur þeirra að megin stofni og átti ríkari þátt í verknaðinum var nokkur munur gerður á refsingu þeirra.

Dómur Hæstaréttar í heild

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.

Kæra úrskurðinn

05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Saksóknari gaf heimild

Aðsetur sérstaks saksóknara.
05:30 Vitað var í október af áformum lögreglumannanna, sem hafa verið kærðir til ríkissaksóknara, um að stofna félag og hefja sjálfstæða rannsóknarvinnu. Þá sögðu þeir upp störfum á þeim grundvelli og unnu áfram til áramóta hjá embættinu. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Hafi efni á að sækja um gjaldþrot

05:30 Ef breytingartillaga velferðarnefndar, sem nú liggur fyrir Alþingi, verður samþykkt geta skuldarar sem er synjað um greiðsluaðlögun, sótt um niðurfellingu tryggingar fyrir skiptakostnaði við gjaldþrot. Hún er 250.000 krónur. Meira »

Ólafur Ragnar með mest fylgi

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands.
05:17 Meirihluti landsmanna myndi kjósa Ólaf Ragnar Grímsson í embætti forseta ef gengið yrði til kosninga nú samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2. Stuðningur við Þóru Arnórsdóttur dalar umtalsvert. Meira »

Bjartviðri á Norður- og Austurlandi

04:33 Sunnanátt, 8-18 sekúndumetrar, verður á landinu með morgninum. Hvassast á annesjum vestantil, bjartviðri á Norður- og Austurlandi, en annars dálítil rigning eða súld. Hiti 14 til 20 stig norðaustantil en annars víða 10 til 15. Meira »

Hannes kominn með undirskriftirnar

Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:40 Hannes Bjarnason, forsetaframbjóðandi, hefur safnað nauðsynlegum fjölda meðmælenda en eins og fram hefur komið í fréttum kom í ljós að hann skorti um eitt hundrað undirskriftir úr Suðurkjördæmi þegar kjörstjórn fór yfir meðmælendalista hans. Meira »

Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis

Merki Dögunar, samtaka um réttlæti, sanngirni og lýðræði.
Í gær, 23:40 Félagsfundur Dögunar sem haldinn var í kvöld hefur sent frá sér ályktun þar sem fagnað er samþykkt Alþingis í dag á þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæði í haust um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Brotið gegn lögum án afleiðinga

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
Í gær, 21:53 Kyndilberi jafnréttisbaráttunnar var Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra nefnd af ríkislögmanni í dómsal í dag. Var þar tekið fyrir skaðabótamál sem að grunni er sprottið upp úr úrskurði kærunefndar jafnréttismála, en í honum er Jóhanna sögð hafa gerst brotleg við jafnréttislög. Meira »

Beita þurfti klippum

Í gær, 21:47 Bifreið fór út af veginum rétt norðan við Búðardal og valt um klukkan fjögur í dag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni í Borgarnesi er málið í rannsókn en ekki liggur fyrir hvað hafi valdið slysinu. Meira »

ESB-viðræðurnar á fulla ferð

Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar.
Í gær, 20:51 Mörður Árnason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir á heimasíðu sinni í dag að vænn áfangi hafi náðst í stjórnarskrármálinu þegar samþykkt var að halda þjóðaratkvæði um tillögur stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá. Meira »

Skipulögð aðför að framboðinu

Ástþór Magnússon.
Í gær, 20:14 Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi segir að skipulögð aðför sé gerð að framboði hans, en í ljós hafi komið að sami einstaklingurinn falsaði allar undirskriftirnar sem reyndust falsaðar á meðmælendalistum fyrir framboð hans. Óprúttnir aðilar hafa reynt að narra hann í heimsóknir í fyrirtæki. Meira »

Undanúrslitum í Evróvisjón lokið

Kristalshöllin í Bakú þar sem Evróvisjón 2012 er haldin.
Í gær, 21:01 Nú er ljóst hvaða 26 lönd keppa í aðalkeppninni í Evróvisjón á laugardaginn, en seinni undanúrslitakeppninni lauk um klukkan níu í kvöld. Meira »

Lýsing fagnar niðurstöðu

Í gær, 20:28 Lýsing fagnar því að niðurstaða liggi fyrir í um fjármögnunarleigusamninga fyrirtækisins og að þeirri óvissu sem ríkt hafi um lögmæti samninganna hafi verið aflétt. Meira »

Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara

Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Í gær, 20:06 „Það var skammur fyrirvari,“ segir Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts, í samtali við mbl.is aðspurður hvenær fyrirtækinu var tilkynnt um það að Landsbankinn hygðist loka ýmsum útibúum sínum á landsbyggðinni þar sem samstarf hefur verið við Íslandspóst um póstþjónustu. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SVARTIR SCHNAUZER HVOLPAR
Til sölu svartir standard schnauzer hvolpar. Tegund sem fer ekki úr hárum. HRFÍ-...
TÖLVUÞJÓNUSTA
Tölvuþjónusta Alhliða tölvuviðgerðir; Stýrikerfi...
Bókhald
Öll almenn bókhaldsþjónusta. Ársreikningar, skattar. Fyrirtæki, einstaklingar...
HARÐVIÐUR TIL HÚSBYGGINGA
Harðviður til húsabygginga  Sjá nánar á...
 
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Járnabindingar
Iðnaðarmenn
Járnabindingar Járnamaður með áratugarey...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....