Varar fyrirtæki við svikamyllu
Ingvar segir að þessi svikamylla geti verið margfalt hættulegri en Nígeríubréfin svonefndu sem talsvert hefur verið fjallað um.
Ingvar sagðist hafa kynnt sér málið. „Alliance International er með aðsetur í New York. Þetta er hins vegar skúffufyrirtæki og mennirnir sem standa á bak við fyrirtækið borguðu 20 dollara fyrir nafnið. Ég tel að þeir séu frá einhverjum löndum Asíu enda bendir hreimur þeirra til þess,“ sagði Ingvar í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.
Ingvar sagði mennina vinna með mjög fagmannlegum hætti. „Sá fyrsti sem hringir er mjög kurteis. Hann fiskar eftir ýmsum persónulegum upplýsingum og kveður að lokum. Sá næsti sem hringir býður upp á viðskiptatækifæri. Hann fiskar eftir því hversu mikið viðkomandi er tilbúinn til að eyða í fjárfestingu. Eftir nokkurn tíma hringir þriðji maðurinn. Sá kynnir ótrúlegt fjárfestingafyrirtæki sem lofi 100 prósent ávöxtun á ári og leitar eftir fólki sem sé tilbúið til að fjárfesta fyrir 500.000 dollara og meira. Ég hef hins vegar alltaf gefið upp rangar upplýsingar,“ sagði Ingvar en honum var boðið að fjárfesta í nýjum fótboltavef sem forsvarsmenn svikamyllunnar sögðust vera fullvissir um að myndi slá í gegn.
„Vegna þess hversu fagmannlegir svikahrapparnir eru tel ég víst að enn fleiri geti látið blekkjast en þeir sem settu peninga í Nígeríubréfin,“ sagði Ingvar og bendir á að svo virðist sem svikahrapparnir hafi komist yfir fyrirtækjaskrá þar sem helstu upplýsingar um fyrirtæki á Íslandi sé að finna enda hringi þeir yfirleitt í forsvarsmenn fyrirtækja. „Þetta er greinilega gömul skrá vegna þess að upplýsingarnar sem þeir virtust hafa um mitt fyrirtæki voru gamlar,“ sagði Ingvar.
Ingvar telur vel líklegt að svikamyllum sem þessum hafi gengið vel hér á landi og sé það ástæðan fyrir því að forsvarsmenn þeirra leiti eftir fjármagni hjá auðtrúa Íslendingum á nýjan leik. „Fólk vill hins vegar ekki viðurkenna að það hafi látið glepjast af svikamyllum sem þessum og því grunar mig að miklu fleiri hafi tapað á þess háttar starfssemi,“ sagði Ingvar.
Ingvar ráðleggur fólki eindregið frá því að gefa þeim sem hringi í það persónulegar upplýsingar, hvað þá að senda því peninga. Hann setti á laggirnar fyrr í dag vefsíðu þar sem einstaklingar geta sent inn ábendingar um svikamyllur og vonast hann til að hún upplýsi fólk um þær hættur sem stafi af óprúttnu fólki sem vilji hafa af því fé.
Slóðin er: www.xbokhald.is/svik.htm




































