Ólafur Ragnar skrifar um Gullfoss í Time Magazine
Ferðamenn við Gullfoss. mbl.is
Í greininni segir Ólafur Ragnar að leiðin að Gullfossi, sem liggur um hóla og sanda, gefi ekki til kynna hvað sé í vændum. Fjöll sjáist í fjarska og í góðu veðri glitti í jökul, en ekkert bendi til þess að mikilfenglegasti foss Evrópu sé í nánd. Loks sjáist eitthvað sem líkist skýi við jörðina og þar glitri ljósrákir eins og demöntum hafi verið kastað upp í loftið. Skyndilega birtist Gullfoss, ótrúlega fagur.
Ólafur Ragnar segir að erlendir gestir hafi öldum saman verið hugfangnir af fegurð Gullna hringsins svonefnda, Þingvalla, Gullfoss og Geysis, en tengslin við náttúruna sé Íslendingum í blóð borin.
Árið 1907 hafi enskur ævintýramaður reynt að kaupa Gullfoss með það fyrir augum að reisa virkjun í Hvítá. Sigríður Tómasdóttir, dóttir bóndans sem var einn eigandi jarðarinnar, hafi næstu hálfu öldina reynt með öllum ráðum að koma í veg fyrir að fossinn yrði hagnýttur, hún hafi meira að segja hótað að fleygja sér fram af fossbrúninni.
Síðan segir Ólafur að Sigríður hafi tapað dómsmálum en unnið hug og hjarta íslensku þjóðarinnar og árið 1979 hafi íslensk stjórnvöld friðað fossinn. „Gullfoss og Gullni hringurinn munu því áfram verða tákn óspilltrar náttúrufegurðar og aðdráttarafls hennar," segir Ólafur Ragnar í greininni.
Meðal annarra staða sem fjallað er um í Time eru Baikalvatn í Rússlandi, norsku firðirnir, Versalir í Frakklandi, Orkneyjar og kastalinn í Prag.
Innlent »
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
- Kæru vegna sameiningar hafnað
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
Svipaðar fréttir
- Sunnudagur, 18. júlí 2004, Innlent Ný bók eftir Ómar Ragnarsson komin út
- Þriðjudagur, 5. júlí 2005, Innlent Komst á forsíðu Time Magazine: Kafari með mörg járn í eldinum
- Fimmtudagur, 10. ágúst 2006, Innlent Samfylkingin minnir á mikilvægi þess að virða lýðræðisleg réttindi borgaranna
- Mánudagur, 28. febrúar 2005, Innlent Rússneska rétttrúnaðarkirkjan heiðrar Ólaf Ragnar
- Föstudagur, 4. febrúar 2005, Innlent Ólafur Ragnar átti fundi með forseta Indlands og Soniu Gandhi
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju



































