Öflun kaupir ráðandi hlut í Office Line
Biðröð utan við nýja Apple-verslun Öflunar ehf í Stokkhólmi sem opnaði í september. mbl.is
Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Öflunar ehf, segir fyrirtækið hafa byrjað að kíkja á markaðinn á Norðurlöndunum fyrir tveimur árum og í kjölfarið hafi fyrirtækið opnað tvær Apple-verslanir í Kaupmannahöfn og nú fyrir mánuði síðan eina í Stokkhólmi. Við þessa könnun á markaði Norðurlandanna hafi fyrirtækið uppgötvað fyrirtækið Office Line ASA, sem sé skráð á norskan hlutabréfamarkað en hafi verið mjög vanmetið, markaðsverðið mjög lágt.
„Það varð úr að í stað þess að opna fleiri verslanir á þessum stöðum ákváðum við að kaupa í þeim og læra á markaðinn í Noregi og Finnlandi,“ sagði Bjarni í viðtali við Fréttavef Morgunblaðsins síðdegis í dag. Rekstur verslana Office Line breytist ekki við kaupin heldur nái Öflun meirihluta í stjórn fyrirtækisins. Það sé með markaðsráðandi stöðu í sölu á Apple-vörum, með 40% markaðshlutdeild í Noregi og 30% í Finnlandi og hafi verið rekið með góðum hagnaði.
„Þeir [í Office Line] eru ólíkir okkur að því leyti að við viljum einbeitum okkur að neytendum með því að opna verslanir á besta stað í hverjum bæ en þeir eru meira í fyrirtækjaþjónustu,“ segir Bjarni. Með þessum kaupum sé Öflun í raun ekki lengur lítið fyrirtæki með veltu upp á 200 milljónir en verði með kaupunum komið með veltu upp u.þ.b. þrjá milljarða.
Áætluð velta Office Line á þessu ári er um 490 milljónir norskra króna, rúmlega 4,5 milljarðar króna, og eru starfsmenn félagsins 140. Með kaupum Öflunar á ráðandi hlut í Office Line styrkir félagið sig verulega í samkeppni við aðra seljendur Apple á Norðurlöndum. Hækkaði gengi hlutabréfa í Office Line um 30% í dag eftir að kaupin spurðust út.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 25. ágúst 2006, Innlent Talsmenn neytenda á Norðurlöndum funduðu í Reykjavík
- Föstudagur, 15. apríl 2005, Innlent Segist ekki geta leyft sér að taka þátt í upphlaupi á markaði með erlend tímarit
- Fimmtudagur, 12. janúar 2006, Innlent Apple hyggst fara í mál við íslenska ríkið vegna tolla á iPod
- Mánudagur, 7. febrúar 2005, Innlent Segja rangt að djúpstæður ágreiningur sé í hópi eigenda P. Samúelssonar
- Mánudagur, 7. febrúar 2005, Innlent Níu lykilstjórnendur segja upp störfum
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































