Krafist svara um hvort Byggðastofnun fái aukið fjármagn

Kallað var eftir svörum frá iðnaðarráðherra á Alþingi í dag um það hvort stjórnvöld ætluðu að veita auknu fjármagni til Byggðastofnunar til að tryggja starfsemi hennar áfram. Fram hefur komið, að stofnunin hefur hætt útlánum tímabundið vegna þess að eigið fé hennar er komið að viðmiðunarmörkum sem Fjármálaeftirlitið hefur sett.

Anna Kristín Gunnarsdóttir, þingmaður Samfylkingar, tók málefni Byggðastofnunar fyrir í fyrirspurnartíma í dag, og sagði að Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðarráðherra, hefði í síðustu viku svarað á Alþingi fyrirspurn um úttekt á Byggðastofnun. Þar hefði hefði komið fram, að niðurstöður úttektarinnar væri að finna í iðnaðarráðuneytinu og aðgengilegar þingmönnum þar. Sagðist Anna Kristín í kjölfarið hafa á fimmtudag og föstudag reynt að nálgast úttektina en án árangurs. Ritari ráðherra hefði lofað því eftir hádegi á föstudag að gögnin yrðu send í tölvupósti en í þeim pósti hefði síðan verið allt önnur skýrsla.

Anna Kristín sagði að fjárlagagerð fyrir næsta ár væri á lokastigi á Alþingi og einnig þyrfti að sækja um meira fjármagn til stofnunarinnar á þessu ári. Spurði Anna Kristín hvort ráðherra ætlaði að leggja það til nú við fjárlagagerðina, að Byggðastofnun fengi aukið fjármagn.

Valgerður sagðist ekki skilja hvers vegna verið væri að ræða um mistök ritara síns á Alþingi og sagði að umrædd gögn yrðu send. Hún sagði rétt, að Byggðastofnun ætti í erfiðleikum vegna þess að eigið fé stofnunarinnar væri komið niður fyrir lögleg mörk og við því þyrfti að bregðast. Einnig þyrfti að fara yfir það hvernig starfsemi Byggðastofnunar ætti að vera til framtíðar varðandi lánastarfsemi en samkvæmt lögum ætti sú starfsemi að standa undir sér. Nefnd er að störfum sem skipuð var í kjölfar þess að fyrrgreind skýrsla kom fram. Þá sagði Valgerður að nóvembermánuður væri ekki liðinn og enn væri tími til að finna lausn á fjárhagsvanda Byggðastofnunar. Sagðist hún vilja hugsa til framtíðar og sjá til þess að stofnuninni verði séð fyrir tilhlýðilegum verkefnum til frambúðar.

Anna Kristín sagði það ekki rétt að góður tími væri til stefnu því Byggðastofnun væri þegar orðin óstarfhæf vegna fjárskorts. Spurði hún hvers vegna það væri dregið fram yfir afgreiðslu fjárlaga að taka á vanda Byggðastofnunar en það gæti orðið til þess að stofnunin yrði óstarfhæf það sem eftir er þessu ári og fram á það næsta.

Valgerður svaraði ekki frekar. Þegar fyrirspurnartímanum lauk tók Össur Skarphéðinsson um þykkjuna fyrir Önnu Kristínu og gagnrýndi Valgerði fyrir að svara ekki spurningum þingmannsins eins og þingsköp mæltu fyrir. Sagði Össur, að ekki væri hægt að gera kröfur til ráðherra um að þeir svöruðu einhverju sem þeir vissu ekki og ansi oft væri það þannig með ríkisstjórnina, að hún vissi ekki hvað hún vildi og vildi stundum það sem hún ekki gerði. Hins vegar hefði verið sjálfsögð kurteisi af ráðherra að koma upp og svara spurningunni.

Valgerður sagði greinilegt, að mikill titringur væri orðinn í herbúðum Samfylkingarmanna þegar Össur kæmi upp til að ítreka spurningu frá öðrum þingmanni flokksins sem hún hefði þegar svarað á sinn hátt; þannig, að nóvembermánuður væri ekki að lokum kominn, og það gæfist tími til að fara yfir málið milli stjórnarflokkanna. Verið gæti að þingmaðurinn væri óánægður með svarið en við því væri ekkert að gera.

Össur sagðist hafa fullan skilning á því að það kynnu að vera einhverskonar átök milli stjórnarflokkanna í ákveðnum málum, svo sem um Byggðastofnun. En það væru ákveðnar grundvallarreglur sem giltu í samskiptum stjórnar og stjórnarandstöðu og ráðherrar yrðu að svara ef bornar væru fram málefnalegar spurningar. Því miður væri iðnaðar- og viðskiptaráðherra ekki beinlínis að greiða fyrir þingstörfum rétt fyrir jólin og ganga yrði eftir frekari svörum um málið á Alþingi á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NISSAN PRIMERA 2002. Sjálfskiptur og nýskoðaður og ÓDÝR!
Til sölu Nissan Primera árg. 2002, ekinn 149 þúsund km. Bíllinn er í toppstandi,...
9 FM VANDAÐ BJÁLKAHÚS
9 fm vandað bjálkahús úr þéttum viði â...
Honda Civic ES 2006
Honda Civic ES árgerð 2006 svartur. Ekinn aðeins 61 þús. sjálfskiptur, topplúga,...
www.keyrsla.is Sendibílar
Heimsendingar - Búslóðaflutningar - Vörudreifing - fyrirtækjaflutningar. Öflug,G...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...
Aðalfundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Félag skipstjórnarmanna ...
12836 fellahverfi útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...