Áhættan of mikil og hefur verið vanmetin

Eftir Ómar Friðriksson omfr@mbl.is.

Fjárhagsstaða Byggðastofnunar er mjög erfið og á stofnunin við alvarlegan vanda að stríða. Ástæða núverandi stöðu er tvíþætt: Of mikil áhætta hefur verið tekin í útlánum og áhættan var vanmetin þegar lánin voru veitt.

Rekstrarumhverfi og samkeppnisstaða Byggðastofnunar hefur gjörbreyst vegna þróunar á fjármálamarkaðinum. Þetta er niðurstaða úttektar ráðgjafarfyrirtækisins Stjórnhátta ehf. á stöðu og meginkostum um framtíðarþróun Byggðastofnunar sem unnin var fyrir iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið fyrr á þessu ári.

„Fjárhagsstaðan er mjög erfið og fátt bendir til þess að fjármögnunarstarfsemin geti orðið fjárhagslega sjálfbær. Vafi leikur á hvort stefnan í atvinnuþróun og fjármögnun sé skynsamleg og hafi leitt til tilætlaðs árangurs.

Á hinn bóginn veita breytingar á fjármálamarkaði mikil tækifæri til að móta nýja stefnu og áherslur með því markmiði að gera starfsemi Byggðastofnunar markvissari og sérhæfðari. Slíkum breytingum má ná fram með áherslubreytingum innan núverandi skipulags eða með uppstokkun á lána- og fjármögnunarþjónustu og atvinnuþróunarstarfsemi á vegum opinberra aðila,“segir í skýrslunni.

Tekið er fram að þótt mat á Byggðastofnun sé gagnrýnið, megi ekki skilja það þannig að verið sé að fella dóma yfir núverandi stjórnendum og starfsmönnum „Kjarni málsins er sá að miðað við hlutverk, fjármagn og starfsmannafjölda er stofnunin ekki það forustuafl á sviði byggðamála sem ætla mætti og eðlilegt er að gera kröfu um,“ segir í úttektinni. Þá er m.a. bent á að áhersla á ábyrgðir í stað lána virðist vera mjög áhugaverður kostur fyrir Byggðastofnun ef hægt sé að fá bankana til samstarfs.

Stjórn Byggðastofnunar ákvað í seinasta mánuði að stöðva frekari lánveitingar um óákveðinn tíma en eiginfjárhlutfall stofnunarinnar er komið undir 8% lágmarkshlutfall sem kveðið er á um í reglum um fjármálafyrirtæki. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra segir Byggðastofnun ekki starfhæfa í dag, mikilvægt sé að taka á málefnum hennar en þau mál séu nú til skoðunar á milli stjórnarflokkanna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
NÝJAR VÖRUR Í HVERRI VIKU
FLOTTUR BARNAFATNAÐUR, BARNAVÖRUR, SNYRTIVÖRUR OG MARGT FLEIRA. FRÁBÆR VERÐ - E...
Ruggustóll
Stór og flottur ruggustóll til sölu. Verð 30 þús. kr. Uppl. mit@simnet.is....
Akureyri - Glæsileg íbúðagisting
Rúmgóð og vel útbúin íbúðagisting. Uppábúin rúm, handklæði, nettenging og lokaþr...
Handunnar vörur úr íslensku roði & leðri
Armbönd, símaveski, servíettuhringir, töskur o.fl. unnið úr íslensku roði og leð...
 
Vantar vélstjóra/vélavörð
Sjávarútvegur
Vantar vélstjóra/vélavörð Vélavörður ósk...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...