Tvennt flutt á slysadeild
Morgunblaðið/ Jón Svavarsson
Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar fékk hringingu frá Neyðarlínunni kl. 14:33 en tilkynnt var um að karlmaður hefði orðið fyrir slysi á vélsleða skammt frá Landmannalaugum. Ekki var símasamband við slysstað en samband haft með talstöð. Þyrluáhöfn var upplýst um þetta en ekki var strax óskað eftir aðstoð þyrlu.
Rúmum 10 mínútum síðar hafði lögreglan í Vík samband og óskaði eftir þyrlu til að sækja slasaða vélsleðamanninn. Að sögn lögreglunnar var blíðuveður á svæðinu. Áhöfn Lífar, stóru björgunarþyrlu Landhelgisgæslunnar, var þegar kölluð út.
Líf fór í loftið kl. 15:12 og var komin á slysstað um kl. 15:50. Talið var að hinn slasaði væri með brjóst- og bakáverka en líðan hans var stöðug á meðan á fluginu stóð.
Skömmu eftir að Líf var komin í Landmannalaugar fékk Vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar hringingu frá Landspítala Háskólasjúkrahúsi en óskað var eftir þyrlu til að sækja stúlku sem hafði slasast í Bláfjöllum. Áhöfn Lífar var þegar tilkynnt um það og lenti þyrlan í Bláfjöllum kl. 16:43. Þar voru sjúkraflutningamenn frá SHS búnir að setja hina slösuðu á bakbretti og undirbúa hana fyrir flutning. Líf fór síðan í loftið frá Bláfjöllum þremur mínútum síðar og flutti bæði hin slösuðu á Landspítala Háskólasjúkrahús í Fossvogi en þar lenti þyrlan kl. 16:51.
Í morgun urðu varðstjórar í vaktstöð siglinga/stjórnstöð Landhelgisgæslunnar varir við neyðarskeyti á stuttbylgju en það reyndist koma frá flutningaskipinu Wilson Tyne sem var á leið til Grundartanga. Skipið hafði orðið vélarvana 200 sjómílur norðaustur af Langanesi. Varðstjórar höfðu þá samband við umboðsmann skipsins á Íslandi og ákvað hann í samráði við eigendur skipsins í Noregi að láta norskan dráttarbát sækja skipið.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 1. nóvember 2005, Innlent Veikur sjómaður sóttur með þyrlu í skip
- Mánudagur, 10. október 2005, Innlent Þyrla í sjúkraflug til Borgarfjarðar
- Laugardagur, 18. febrúar 2006, Innlent Maður slasaðist á Langjökli
- Fimmtudagur, 13. apríl 2006, Innlent TF-LIF sótti spænskan sjómann um borð í togara
- Fimmtudagur, 19. janúar 2006, Innlent Björgunarþyrlan Líf flutti veikan sjómann til Reykjavíkur
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































