Innlent
| Morgunblaðið
| 24.2.2006
| 5:30
| Uppfært
6:15
Styttist í að flensan nái hámarki
INFLÚENSA er komin til landsins, en fyrstu tilfelli hennar greindust snemma í janúar sl. Að sögn Guðrúnar Sigmundsdóttur, yfirlæknis á sóttvarnasviði Landlæknisembættisins, er um að ræða inflúensu bæði af A- og B-stofni, en nokkur ár eru síðan báðir stofnar komu til landsins samtímis. Aðspurð segir Guðrún bóluefnin sem fólki er boðið upp á á haustin virka bæði gegn inflúensu A og inflúensu B. Hún segir að gera megi ráð fyrir að inflúensan gangi yfir á tveimur til þremur mánuðum. Segir hún algengt að fólk glími við inflúensuna í viku, en síðan geti það verið slappt í nokkurn tíma á eftir. Aðspurð sagði Guðrún erfitt að segja til um það hvort hámarki inflúensunnar væri náð nú um stundir. Ekki væri ólíklegt að flensan ætti eftir að ná hámarki sínu.
Aukaálag á Læknavaktinni
Aðspurður tekur Þórður G. Ólafsson, yfirmaður á Læknavaktinni í Reykjavík, undir það að flensan eigi eftir að ná hámarki sínu, en að farið sé að styttast í það. Segir hann nokkurt aukaálag hafa verið á Læknavaktinni sl. tvær vikur og að auka hafi þurft við mannskap í símaráðgjöf vegna flensunnar. Að mati Þórðar fer inflúensan þó ekki á kreik af sama krafti og í fyrra og segir hann fólk heldur ekki veikjast jafn heiftarlega. Nokkuð hefur borið á veikindum grunnskólabarna og víða verið nokkur fjarvera í skólum á höfuðborgarsvæðinu.Hafnfirðingar hafa ekki farið varhluta af komu flensunnar því mikil fjarvera hefur verið í grunnskólum þar í bæ og jafnvel heilu bekkirnir fjarverandi. Þannig voru samkvæmt upplýsingum frá Helgu Friðfinnsdóttur, skólastjóra Hvaleyrarskóla, 100 börn af 600 nemendum skólans heima í gær vegna veikinda. Segir hún að svo virðist sem flensunni fylgi hærri hiti en venjulega sem þýði að börnin séu lengur að jafna sig. Í Setbergsskóla voru 100 af 640 nemendum skólans frá vegna veikinda sem og 12 kennarar. Samkvæmt upplýsingum frá Sigurði Björgvinssyni, skólastjóra Víðistaðaskóla, voru um 80 börn af 480 nemendum skólans frá vegna veikinda í gær sem og 16 af 70 starfsmönnum skólans.
Svæsnari en í meðalári
Að sögn Emils L. Sigurðssonar, yfirlæknis á Heilsugæslustöðinni Sólvangi í Hafnarfirði, eru það aðallega ungir krakkar sem veikjast, en veikindin í bænum byrjuðu fyrir alvöru fyrir um hálfum mánuði. Segir hann flensuna nú virðast vera svæsnari en í meðalári, því venjulega taki flensan þrjá til fjóra daga, en núna séu allflestir veikir í allavega fimm til sex daga. Aðspurður segir hann að einkennin séu hár hiti, höfuðverkur, beinverkir og þurr hósti.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin





































