Má ætla að flensan nái hámarki á næstunni

Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is
Töluvert er um það þessa dagana að fólk leiti læknis vegna inflúensu, en læknar segja inflúensufaraldurinn í ár þó heldur minni en í fyrra. Meðal helstu einkenna flensunnar eru hár hiti, kvef og hósti, bein- og höfuðverkur. Að sögn Þórðar G. Ólafssonar, yfirlæknis hjá Læknavaktinni og Heilsugæslunni í Efra-Breiðholti, koma töluvert margir til lækna vegna flensu þessa dagana.

"Þetta er heldur minna en í fyrra en það er greinileg inflúensa í gangi," segir hann. Aukið álag sé á starfsfólk heilsugæslustöðva og tíðari fjarvistir í skólum og víðar vegna flensunnar. Um þrjár vikur séu liðnar frá því að álag á Læknavaktinni fór að aukast vegna flensunnar. "Við höfum þurft að kalla inn aukafólk, miðað við það sem við erum með venjulega," segir Þórður. Hann segir að ætla megi að inflúensan fari að ná hámarki á næstunni. Þeir sem veikist af henni fái oft háan hita í nokkra daga en flestir nái sér þokkalega á um vikutíma. Þó geti fylgikvillar gert vart við sig og nefnir Þórður lungnabólgu, lungnakvef, ennis- og kinnholubólgur, eyrnabólgur, og ýmsar bakteríusýkingar. Því þurfi fólk að fara sér hægt meðan það er að ná sér af flensunni.

Atli Árnason, yfirlæknir á Heilsugæslunni í Grafarvogi, tekur í sama streng og Þórður og segir veikindi vegna inflúensu minni í ár en í fyrra.

Mikið um veikindi hjá börnum og unglingum

"En það eru talsverð veikindi, sérstaklega hjá börnum og unglingum," segir Atli. Margir hafi leitað læknis vegna inflúensu í síðustu viku og um helgina. Þá virðist flensan fara í meltingarfærin hjá sumum sem veikjast af henni og fylgi því niðurgangur og jafnvel ógleði og uppköst.

Pétur Pétursson, yfirlæknir á Heilsugæslunni á Akureyri, segir inflúensuna í ár alls ekki skæða. "Þetta hefur ekki verið mjög áberandi faraldur heldur hafa tilfelli verið að stinga sér niður. Mér vitanlega hefur ekki verið mikið um að hálfu bekkirnir leggist í flensu lengur. Það bar aðeins á því í janúar," segir hann.

Á Ísafirði hefur verið mikið um veikindi vegna inflúensu undanfarið. Í gær höfðu foreldrar barna í Grunnskólanum á Ísafirði tilkynnt alls um 60 fjarvistir barna og var í flestum tilfellum um veikindi að ræða, að því er fram kom á fréttavef Bæjarins besta í gær. Þar var haft eftir Magnúsi Jónssyni, skólastjóra, að mikil veikindi hefðu verið frá því í síðustu viku. Kennararnir hefðu þó alveg sloppið hingað til.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Palomino Yearling 4103 10 fet árg. 2006
Fortjald, markísa, sólarsella, verð 1.250.000 Upplýsingar í síma 8971942...
Til sölu Kia Sorento 2007 diesel 4X4 ekinn 77þús
Sjálfskiptur,1 eigandi,ekkert ákvílandi,dr.beisli, dr.geta 3500kg,skoðaður 2012...
Ullarslá
Til sölu glæsileg íslensk ullarslá (græn að lit) með fallegum brúnum kraga, eins...
UKELELE
Ukulele í úrvali . Verð frá 5.900. Gítarinn ehf....
 
Framhald uppboðs
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Stykkishólmur vatnshús við skipavíkurbryggju

Útboð Stykkishólmur, vatnshús við...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...
12834 stofnstígur - reykjavíkurborg

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...