Stefnt að því að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni

Hrefna hífð um borð í hrefnuveiðibátinn Njörð KÓ undan Vesturlandi.

Hrefna hífð um borð í hrefnuveiðibátinn Njörð KÓ undan Vesturlandi. AP

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegsráðherra, sagði að stefnt væri að því að hefja á ný hvalveiðar í atvinnuskyni hér við land. Ákvörðun um það hefði ekki verið tekin en Íslendingar hefðu heitið því, þegar gengið var í Alþjóðahvalveiðiráðið að nýju, að ekki yrðu hafnar atvinnuveiðar hér fyrr en í fyrsta lagi sumarið 2006. Málið væri því nú í höndum Íslendinga.

Einar var að svara fyrirspurn frá Magnúsi Þór Hafsteinssyni, þingmanni Frjálslynda flokksins, um hvað væri að frétta af hrefnurannsóknum sem farið hafa fram undanfarin sumur. Sagði Magnús, m.a. að Íslendingar hefðu verið svo víðáttuvitlausir, að samþykkja hvalveiðibann Alþjóðahvalveiðiráðsins á sínum tíma, og með því brotið eina af grundvallarreglunum í auðlindanýtingu, þá að nýta alla hlekki vistkeðjunnar í hafinu með skynsamlegum hætti en þarna hefði efsti hlekkurinn verið friðaður.

Einar sagði að stefnt væri að því að halda vísindaveiðum á hrefnu áfram í sumar með eðlilegum hætti. Á árunum 2003 til 2005 hefðu verið veiddar 100 hrefnur af 200 sem áformað væri að veiða í vísindaskyni. Einar sagði, að til stæði að kynna stöðu rannsóknanna og frumniðurstöður þeirra á ársfundi Norður-Atlantshafssjávarspendýraráðsins, NAMMCO, sem haldinn verður á Selfossi á þriðjudag.

Þingmenn sem tóku til máls hvöttu til þess að hvalveiðar í atvinnuskyni verði teknar upp að nýju. Magnús Þór sagði að ekki væri eftir neinu að bíða og ekkert væri að óttast í þessum efnum. Vitnaði Magnús til reynslu Norðmanna sem ekki hefðu lent í neinum vandræðum með sínar veiðar og þeir skömmuðust sín heldur ekkert fyrir að veiða hrefnu.

Sjávarútvegsráðherra sagði, að enginn væri hræddur í þessum efnum. Vísindaveiðunum verði haldið áfram á þessu ári, ekki með minni krafti en gert hefði verið hingað til. „Það liggur ekki fyrir hin pólitíska ákvörðun um hvenær (atvinnu)veiðar verða hafnar en ég sagði það áðan, að það væri stefnt að því að hefja veiðar í atvinnuskyni á ný... Það sem skiptir hins vegar máli í þessu sambandi, að við verðum einnig að vinna að því að við höfum markaðsaðgang fyrir okkar afurðir ef við ætlum að hefja þessar veiðar af fullum krafti. Þennan markaðsaðgang verðum við að tryggja okkur erlendis og að því erum við að vinna. Það er hins vegar mjög athyglisvert, að þessum hvalaafurðum hefur verið tekið ákaflega vel hér á landi, gagnstætt því sem að mjög hefur verið haldið fram og var m.a. haldið fram í sölum Alþingis, að sá tími væri liðinn í okkar sögu að menn borðuðu hvalkjöt. Það er vaxandi neysla á þessu kjöti og með góðri markaðssetningu á síðasta ári tókst ákaflega vel til í þeim efnum," sagði Einar K. Guðfinnsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL LEIGU
Til leigu nýinnréttuð skrifstofuherbergi í 104 Rvk. Securitas-öryggiskerfi. Tölv...
PLASTMÓDEL
Plastmódel í miklu úrvali. Tómstundahúsið...
VOLVO S60 TURBO
Volvo S60 Turbo 20v . Nýskr. 2/2005, ekinn 142 þ. km, bensín...
Nú er vor í lofti og allir ættu að nýta sér þetta tilboð
Bónstöð Ragga í Garði kynnir Alþrif með bóni, lakkhreinsun og djúphreinsun á s...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Borgarbókavörður
Sérfræðistörf
Laus er til umsóknar staða borgarbókava...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Akstur fyrir strætó

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...