107 sjóbirtingar úr Tungulæk

Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is
Frost, napur vindur og ísrek einkenndu upphaf stangveiðivertíðarinnar á laugardag en engu að síður veiddist furðu vel víða. Þegar blaðamaður fylgdist með veiðimönnum kasta fyrir sjóbirtinginn á nokkrum veiðisvæðum í Skaftafellssýslum, áttu þeir sums staðar í mestu vandræðum með að fá þokkalegt rek á línur sökum íssins sem barst fram með straumnum.

"Það eru sífelldar tökur, en tómt ístak!" kallaði Ragnar Johnsen, leigutaki Vatnamótanna í Skaftá, upp á bakkann til félaganna, sem höfðu fylgst með honum ösla út fyrir skarirnar og bregða nokkrum sinnum við því sem hann vonaðist til að væri fiskur. Þrátt fyrir vandræðin með ísinn náðu Ragnar og félagar hans þremur fiskum á laugardag og í gærmorgun bættu þeir um betur, í álíka aðstæðum, og lönduðu fimmtán, ágætis birtingum. Þorvaldur K. Þorsteinsson setti í flesta og naut þar sérþyngdrar túpu og steinsökkvandi enda á flugulínunni, en Ragnar sagði að í þessum kuldum lægi fiskurinn þétt við botninn. Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður setti einnig í nokkra á appelsínugulan nobbler. Ragnar sagði þá félagana hafa misst annað eins af fiski.

"Þetta er Tungulækur!"

Vestan við Skaftá, í Tungulæk, var Þórarinn Kristinsson, eigandi lækjarins, við veiðar ásamt Kristni, syni sínum, og nokkrum félögum sem allir þekkja lækinn vel. Tungulækur er hlýrri en mörg svæðanna í kring og var enginn ís á honum en lækurinn kraumaði hins vegar af fiski. Þegar veiðimenn tóku sér hlé frá veiðinni um hádegi höfðu þeir landað um 45 fiskum og þegar veiði lauk um kvöldið var aflinn orðinn 107 sjóbirtingar. "Þetta er nú einu sinni Tungulækur," sagði Þórarinn þegar blaðamaður bað hann að segja sér töluna aftur.

Stór hluti veiðinnar var afar vænn fiskur, átta til ellefu pund, og mikið af feitum og silfruðum geldfiski á milli, fiski um fjögur pund. Klassískar sjóbirtingsflugur eins og Black Ghost og Flæðarmús reyndust vel en Þórarinn beitti hins vegar rauðri og gulri flugu, en það sagði hann sína kjörliti í læknum. Fiskunum hugnuðust litirnir greinilega vel því þeir voru sífellt í flugunni. Um miðjan dag brá Þórarinn sér síðan út fyrir Opið með kaststöngina, út í skilin í Skaftá, og þar tóku fimm birtingar Toby-spúninn í beit, tveir þeirra voru um tíu pund og var sleppt aftur út í strauminn. Á sama tíma liðu ekki margar mínútur á milli viðureignanna hjá hinum veiðimönnunum. Þetta veiðisvæði er engu öðru líkt.

Skammt þar fyrir norðan, við Geirlandsá, var árnefnd Stangaveiðifélags Keflavíkur önnum kafin við að leggja lokahönd á endurbætur á veiðihúsinu sem brann í fyrra. Geirlandsá er býsna köld og gjöfulasti veiðistaður árinnar, Ármótin, þar sem Stjórn kemur út í, var ísi lagður og svo til ómögulegt að veiða hann fyrri hluta dags. Undir kvöld fóru veiðimenn þó á staðinn, veiddu djúpt milli skaranna og náðu um tug fiska á land. Stærsti birtingurinn var um átta pund.

86 cm hrygna í Tungufljóti

Í Tungufljóti í Skaftártungum höfðu veiðimenn einnig brotið sér leið gegnum ísskarir og vaðið út í strauminn til að kasta, og þegar blaðamann bar þar að garði um miðjan dag, voru veiðimenn að tínast í hús, klakabrynjaðir, en búnir að veiða yfir 20 birtinga. Þar með talinn sá stærsti sem fréttist af um helgina, 86 cm hrygna sem Þorbjörn Helgi Þórðarson veiddi. Fiskarnir voru á bilinu 65 til 86 cm og var öllum sleppt aftur. Mikið ísrek var á Tungufljóti og vatnið ekki nema um ein gráða en tökustundirnar komu þegar sól braust milli skýja; þá tóku fiskarnir stórar túpur á steinsökkvandi línum. Flestir veiddust við Flögubakka en nokkrir einnig við Syðri-Hólma.

Aðalsteinn Jóhannsson hóf veiðar einn við Minnivallalæk, í átta stiga frosti klukkan tíu á laugardagsmorgun. Um sex punda fiskur tók á Húsabreiðu í fyrsta kasti og síðan dró Aðalsteinn tíu fiska á klukkutíma úr Stöðvarhyl. Sá stærsti var um tíu pund og enginn undir fjórum. Alls fengust 19 fiskar í Minnivallalæk í opnuninni, allir á Húsabreiðu og í Stöðvarhyl.

Birtingurinn sýndi sig ekki á sjóbirtingssvæðunum í Ytri-Rangá, aðeins einhverjir niðurgöngulaxar. Opnunin var með hefðbundnu sniði í Varmá, þar sem sömu fjölskyldur hafa veitt í rúm 30 ár. Menn voru mættir í bítið í norðangarra og afli dagsins var um 30 fiskar, mestallt birtingur, tvö til fjögur pund, en einnig veiddust vænar bleikjur. Að þessu sinni fór minna fyrir regnbogasilungi í opnuninni en á síðustu árum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
Tabbert DaVinci 07, 540 dekurhús m.kojum
Tabbert DaVinci 2007 kojuhús. Einstaklega vel með farið. 6 svefnpláss. Stórt for...
SPÁNN - Gullna ströndin Costa Brava
Costa Brava - Pladja de Aro er frábær sólarstranda staður. Við leigum út íbúð st...
9 MYNDIR
Teg. 99117 - Mjúkir og þægilegir dömusandalar úr le...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Samkoma - salt
Félagsstarf
Safnaðarheimilið Grensáskirkju Samk...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Kristniboðssambandið samkoma
Félagsstarf
Háaleitisbraut 58-60 Samkoma í kvöld kl....