Ertu með?
Kosningastefnuskrá
B-listans í Reykjavík 2006
Sérstaða
Reykjavíkur sem höfuðborgar Íslands er ótvíræð. Höfuðborgin er og verður
miðstöð alþjóðlegs samstarfs. Hún er jafnframt miðstöð stjórnsýslu, samganga og
menningar. Án nets og strauma um allt land er hún ekki sönn höfuðborg og með
henni eru byggðirnar í landinu sterkari.
Við erum öll stolt af borginni okkar við sundin og viljum veg hennar sem
mestan. Á tímum alþjóðavæðingar þarf Reykjavíkurborg að laga sig að nýjum
kröfum og breyttum aðstæðum. Í því felst að hún þarf að standast borgum í öðrum
löndum snúning í síharðnandi samkeppni um íbúana og þarf því að endurskilgreina
hlutverk sitt sem öflugur og lifandi þjónustuaðili sem starfar í þágu íbúanna –
fólksins í borginni. Þar er verk að vinna, því þótt Reykjavík standi að mörgu
leyti vel er fjölmargt sem betur mætti fara. Við blasa augljós tækifæri til að
skapa nútímalega heimsborg með þægilegum bæjarbrag þar sem okkur getur öllum
liðið vel og verið örugg.
B-listi
Framsóknarflokksins býður nú fram undir eigin merkjum í fyrsta sinn í sextán
ár, eða frá árinu 1990. Það eru því ákveðin vatnaskil í borgarmálunum. Það er
þörf fyrir breytingar; þörf fyrir öðruvísi nálgun og nýjar hugmyndir. Við
bjóðum fram okkar krafta full af bjartsýni og einlægni og leggjum fram
metnaðarfulla stefnuskrá og heitum því að leggja okkur öll fram í þágu
borgarbúa fáum við umboð til þess að hrinda stefnumálum okkar í framkvæmd.
Við höfum góðar
hugmyndir og viljum koma þeim í framkvæmd. Saman getum við náð árangri. Saman getum
við breytt borginni okkar og búið til fyrsta flokks Reykjavík, nútímalega
heimsborg þar sem fólkið er í fyrirrúmi.
Greiðar samgöngur, skynsamlegt
skipulag
Skipulags- og
samgöngumál verði sett á oddinn og staðið
við stóru orðin um samráð við íbúa. Skipulag er vinna til langrar
framtíðar og í henni eru teknar ákvarðanir sem varða ekki einvörðungu
stundarhagsmuni okkar, heldur einnig komandi kynslóða.
Reykjavík sem alþjóðleg fjármálamiðstöð.
Reykjavík verði aðlaðandi kostur fyrir íslensk
fyrirtæki sem og alþjóðleg stórfyrirtæki í tengslum við áform um Ísland sem alþjóðlega fjármálamiðstöð.
Fleiri lóðir í Reykjavík
B-listinn ætlar að stórauka
framboð á lóðum fyrir einbýlishús, raðhús og parhús í borginni og skapa
jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar með átaki í úthlutun á sérbýlislóðum.
Þetta mun B-listinn gera með því að úthluta 1200 sérbýlislóðum á þessu ári og því
næsta með eftirfarandi hætti:
8. ágúst á þessu ári verður
úthlutað 600 lóðum fyrir sérbýli í Úlfarsárdal á reitum sem merktir eru X og Z
á skipulagsuppdrætti.
12. desember 2006 verður
úthlutað 400 sérbýlislóðum til viðbótar á reitum Z og Y í Úlfarsárdal.
7. mars. 2007 verður úthlutað
200 sérbýlislóðum til viðbótar á reitum Y og Þ í Úlfarsárdal.
Í Reykjavík skal ávallt vera
nægilegt framboð á byggingalóðum þannig að ekki verði skortur sem geti valdið
hækkun húsnæðis- og lóðaverðs.
Þjóðarsátt um flugvöllinn í Reykjavík
B-listinn í Reykjavík boðar
þjóðarsátt um hið langvinna deilumál sem er staðsetning Reykjavíkurflugvallar.
Flugvöllurinn verði áfram í Reykjavík en færður út á Lönguskerin í samræmi við
hugmyndir sem settar voru fram á vegum B-listans í borgarstjórn fyrir þrjátíu
árum og þóttu þá framsæknar og þykja enn. Með þessu móti má nýta verðmætt
byggingarland í Vatnsmýrinni undir íbúðabyggð, þekkingariðnað og spennandi
starfsemi Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík auk nýs hátæknisjúkrahúss.
Með þessari útfærslu uppfyllir Reykjavík skyldur sínar sem höfuðborg í
samgöngumálum. Gætt er fyllstu öryggissjónarmiða varðandi sjúkraflug og
B-listinn stendur vörð um verðmæt störf í flugrekstri.
Öruggar og greiðar samgöngur í Reykjavík
B-listinn vill öruggar samgöngur
inn og út úr höfuðborginni.
Þrír straumar:
þ Sundabraut. Botngöng á
ytri leið. Fjórar akreinar alla leið upp á Kjalarnes.
þ Frítt flæði umferðar. Miklabraut
lögð undir Kringlumýrarbraut og þannig greitt fyrir umferð á hættulegustu
gatnamótum landsins.
þ
Vatnsmýrin.
Aðgengi að Vatnsmýri tryggt til framtíðar með Öskjuhlíðargöngum.
Ókeypis verði í strætó fyrir námsfólk, aldraða og öryrkja. Endurskoða
rekstur Strætó bs. með tilliti til þarfa
borgarbúa. Skoða bifreiðakost og möguleika á smærri og hagkvæmari bifreiðum.
Ókeypis í strætó fyrir alla á að vera
framtíðarmarkmiðið.
Greitt verði úr umferðarflækjum með raunhæfum
samgöngubótum og nýjum valkostum, t.d. lagningu stokka og jarðganga.
Sérstakt átak
verði gert í bílastæðamálum miðborgarinnar, t.d. með því að hafa bílastæðahúsin
opin allan sólarhringinn og hvetja til hönnunar á bílageymslum í kjöllurum
nýbygginga svo ekki þurfi að leggja dýrmætt byggingarland undir bílastæði.
Fyrirkomulag
stöðumæla verði endurskoðað og kannaðir kostir þess að taka upp klukkukerfi.
Lækkum stöðumælasektirnar.
Áhyggjulaust ævikvöld –
þverpólitískt þjóðarátak!
B-listinn hvetur til
þverpólitísks þjóðarátaks í öldrunarmálum og vill tryggja eldri borgurum öruggt
ævikvöld. Eyða þarf biðlistum að hjúkrunarrýmum. Efla heimaþjónustu í því skyni
að gera öldruðum kleift að búa sem lengst heima.
Huga verður betur
að eldri Reykvíkingum. Hraðað verði uppbyggingu hjúkrunarrýma og biðlistum útrýmt, m.a. með:
þ
hjúkrunarheimili
við Markarholt.
þ
hjúkrunarheimili
á Lýsislóð.
þ
stækkun
Sóltúnsheimilisins.
Haldið verði áfram
uppbyggingu margvíslegra úrræða á sviði öldrunarþjónustu í Fossvogi og tryggja
þarf nægilegt framboð lóða undir mismunandi form öldrunarþjónustu. Átak verði
gert í heimaþjónustu þannig að sem flestir geti búið áfram heima og notið samt
fyrsta flokks þjónustu.
Tryggjum mannréttindi eldri borgara
Einsetuátak í búsetumálum
aldraðra á hjúkrunarheimilum. Mannréttindi aldraðra verði virt. Það eru
mannréttindi að búa út af fyrir sig eða með maka. Þessi mannréttindi verði
tryggð. Aldraðir eiga rétt til einkalífs á hjúkrunarheimilum.
Aldraðir einstæðingar
Samskiptaþjónusta fyrir aldraða
einstaklinga, þannig að enginn þurfi að óttast um öryggi sitt né búa við
félagslega einangrun.
Menntun er málið!
Leysa þarf vanda foreldra 9-18
mánaða barna, eða frá því að fæðingarorlofi lýkur og þar til leikskólinn hefst,
með beingreiðslum. Slíkar greiðslur tryggja aukið val foreldra og börnum aukið
öryggi. Um leið þarf að bæta aðgengi að þjónustu dagforeldra með því að tryggja
starfsumhverfi og bæta kjör þeirra.
Greiðslur til foreldra barna 9 til 18 mánaða
Frá því fæðingarorlofi
foreldra lýkur við 9 mánaða aldur og þar til dvöl á leikskóla hefst við 18 til
24 mánaða aldur, búa foreldrar og börn þeirra við takmörkuð úrræði. Mikill
skortur er á dagforeldrum og foreldrar á vinnumarkaði verða oft að bjarga
vistun barna sinna frá degi til dags, sem er vitaskuld óásættanlegt.
Með því að greiða þessum
foreldrum 50 þúsund krónur á mánuði er unnt að koma til móts við þessar þarfir
og brúa bilið þar til leikskólavist fæst. Valkvæðar greiðslur: Foreldrar heima
með barni, afi og amma gæta barnsins eða niðurgreiðsla á þjónustu dagforeldra.
Leikskólinn er fyrsta
skólastigið
Gjaldfrjáls leikskóli fyrir öll börn frá 18
mánaða aldri þar sem tekið er tillit til þess að leikskólinn er fyrsta
skólastigið og gegnir mikilvægu hlutverki að því er varðar menntun og þroska
barnanna okkar.
Hugað verði að uppbyggingu smábarnadeilda í leikskólum
til að uppfylla markmið um að innan tíu ára geti öll börn frá 12 mánaða aldri
fengið inni á leikskóla.
Starfsaðstaða leikskólakennara verði bætt og hugað að
stækkun elstu leikskólanna þar sem þrengslin eru mest.
Samþætting skóladagsins, íþróttir og tómstundir fyrir alla!
Vinnudagur
barnanna okkar er of langur. Við þurfum að koma íþrótta- og tómstundastarfi inn
í skóladag barna þannig að vinnudegi sé lokið þegar heim er komið. Þetta verði
gert með þjónustusamningum við íþróttafélög og önnur félagasamtök þannig að
allir geti tekið þátt í þróttmiklu og skapandi félagsstarfi án tillits til
efnahags. Hagsmunir borgarinnar felast í öflugri lýðheilsu borgarbúa og uppbyggjandi
starfi íþróttafélaga og margvíslegra félagasamtaka.
þ
Öll börn í borginni, 5
til 18 ára, fái íþróttakort að upphæð 40 þúsund krónur á ári sem renni til
íþrótta- og tómstundaiðkunar á vegum viðurkenndra aðila.
þ Áhersla verði lögð á samþættingu bóknáms, íþrótta, listnáms
og tómstunda í samfelldum skóladegi. Markmiðið er að vinnudegi barna ljúki fyrr
á daginn og fjölskyldan eigi lengri samverustundir. Þannig verði uppfyllt markmið sem sett voru
við einsetningu grunnskólans.
þ
Skákkennsla verði efld í grunnskólum borgarinnar.
Einstaklingsmiðað nám
Kennsluaðferðir og kennsluefni
þarf að koma til móts við mismunandi getu, áhuga og hæfileika barna og leggja
þarf mun meiri áherslu á kennslu í lífsleikni, verklegum greinum og listum.
Berjumst gegn einelti
Kannaðir verði
kostir þess að taka upp skólabúninga í
grunnskólum Reykjavíkur. Skólastjórnendur og samtök foreldra taki
ákvörðun fyrir hvern skóla fyrir sig, en Reykjavíkurborg taki þátt í kostnaði
við skólabúninga hjá þeim sem þess óska. Einelti vegna efnamunar má ekki viðgangast og í skólanum eiga
allir að vera á jafnræðisgrundvelli.
Eflum miðborgina!
þ Gamli lækurinn undir Lækjargötu verði opnaður og látinn renna í
sínum gamla farvegi.
þ Átak verði gert í
merkingum helstu ferðamannastaða í borginni og áhersla lögð á menningartengda
ferðaþjónustu.
þ
Hugað verði að brottflutningi olíutankanna í Örfirisey og verðmætasta
byggingarland á Íslandi byggt þar upp með landfyllingum.
þ
Verslun og byggð í miðborginni verði stórefld.
þ
Byggt upp spennandi bryggjuhverfi á Mýrargötusvæðinu.
þ
Námsmannaíbúðum fjölgað í miðbænum og í Vatnsmýrinni.
þ
Byggt upp kringum Tónlistar- og ráðstefnuhús.
þ Skemmtiferðaskip í gömlu höfnina.
þ Sjóminjasafn á Grandagarði.
þ Þekkingarþorp í Vatnsmýrinni.
þ Þjónusta kringum nýtt hátæknisjúkrahús.
þ Hlemmur plus.
þ Byggja yfir hluta Laugavegar og skapa þannig yfirbyggða göngugötu með
fjölbreyttu mannlífi, mörkuðum og verslun með stórborgarbrag.
þ Tryggja flóamarkaðnum
í Kolaportinu framtíðarstað á stærra og aðgengilegra svæði, t.d. á Hlemmi.
Byggt
verði yfir hluta af Fjölskyldugarðinum í Laugardal, gott svæði sem
Fjölskyldan í fyrirrúmi
þ Skólamötuneyti með hollustu í
fyrirrúmi. Betri mat í mötuneyti leik- og grunnskóla. Holla og
næringarríka fæðu fyrir börnin okkar.
þ Forvarnarfulltrúi í alla grunnskóla. Lengi
býr að fyrstu gerð. Forvarnir eru fjárfesting til framtíðar.
þ Aukna sálfræði- og hjúkrunarþjónustu
fyrir grunnskóla. Aukna stoðþjónustu inn í skólana.
þ Foreldranámskeið. Uppeldisnámskeið
fyrir nýja foreldra og aðgengileg uppeldisráðgjöf fyrir alla foreldra.
þ Efla barnavernd Reykjavíkur. Efla
barnavernd til að tryggja að öll mál fái jafn skjóta afgreiðslu og að
nauðsynleg úrræði séu í boði.
þ Útideildin opnuð á ný. Opna
útideild tengda þjónustumiðstöðvum, félagsmiðstöðvum, skólum og lögreglu.
Markmiðið er tenging við unga fólkið okkar sem á erfitt með að fóta sig í
hefðbundnu félagsstarfi og auka öryggi borgaranna.
þ Félagsmiðstöðvar opnar um helgar. Bætum
aðgengi barna og unglinga að viðurkenndum skemmtunum og afþreyingu undir
eftirliti. Höfum félagsmiðstöðvar opnar þegar börnin okkar þurfa mest á þeim að
halda.
þ Virk þáttaka í samfélaginu á ný. Átaksverkefni
sem stuðla að félagslegri endurhæfingu einstaklinga sem hafa verið utanvelta í
samfélaginu í einhvern tíma.
þ
Stuðningsnet
fyrir unga einstæða foreldra. Koma þarf á fót öflugu stuðnings- og
öryggisneti fyrir unga einstæða foreldra til að þeir hafi tök á að mennta sig
og á sama tíma búið sér og börnum sínum góðar félagslegar aðstæður.
Forvarnir
B-listinn leggur áherslu á
forvarnir sem stuðla að því að öll börn og ungmenni í Reykjavík alist upp við aðstæður
og umhverfi sem eflir sjálfstraust þeirra og sjálfsmynd, sem einkennist af
samkennd og býr yfir viðeigandi stuðningsúrræðum þegar þörf krefur.
Hingað og ekki lengra!
Sýnileg löggæsla
Segjum hingað og ekki lengra
við ofbeldisglæpum og ofsaakstri. Eflum öryggi í miðborginni og umferðinni.
Reykjavíkurborg þarf að hafa skýrar óskir um nauðsynlega þjónustu og kröfur um
úrbætur í löggæslumálum í borginni með áherslu á sýnilega löggæslu og öfluga
hverfalöggæslu.
þ Kanna
ber kosti þess að koma upp sérstakri miðborgarlögreglu.
þ Lýsa
upp miðborgina.
þ Skera upp
herör gegn sóðaskap á almannafæri.
þ Efla
hverfalöggæslu.
þ
Verja skólalóðirnar.
Reykjavík á að
vera örugg borg og við eigum ekki að þurfa að óttast um börnin okkar.
Nærþjónusta, samráð og
félagsauður
Reykjavíkurborg er fyrst og
fremst þjónustuaðili sem ber að veita borgarbúum skjóta og metnaðarfulla
þjónustu á öllum sviðum. Hugmyndafræði öflugrar, samfelldrar og heildstæðrar
nærþjónustu verði lögð grundvallar í allri þjónustu við Reykvíkinga.
Heilbrigðismál
Stjórn Heilsugæslunnar í
Reykjavík verði í auknum mæli í höndum Reykjavíkurborgar. Heilsugæsla er hornsteinn
heilbrigðiskerfisins og mikilvægur hluti af nærþjónustu við borgarbúa, hana
þarf að efla. Heilsugæslustöðvar eru og
verða miðlægur þáttur í forvarnarstarfi og öldrunarþjónustu.
þ Allir
Reykvíkingar hafi aðgang að heimilislækni.
þ Metin
verði þörf fyrir aukinn fjölda heimilislækna til að ná þessu markmiði á
kjörtímabilinu.
þ
Við úrlausnir verið meðal annars litið
til mismunandi rekstrarforma, svo sem verktakasamninga.
Stjórnsýslan
þ Gagnsæ stjórnsýsla. Borgarbúum
sé gert auðvelt að rata um stjórnkerfið og fá úrlausn sinna mála.
þ Umboðsmaður borgarbúa. Tryggir
borgarbúum réttláta og sanngjarna málsmeðferð.
þ Stjórnendaskipti. Kanna
möguleika á því að fá færa erlenda sérfræðinga til starfa í þágu borgarinnar og
gefa embættismönnum borgarinnar kost á að kynna sér strauma og stefnur erlendis.
þ Fækkum fundum, minnkum skriffinsku!. Athuga hvort ekki megi fækka fundum, draga úr skýrslugerð, fækka
stjórnþrepum og bæta þjónustuna.
þ Nýtum Netið. Gera stórátak í að koma þjónustu borgarinnar á Netið og taka upp MSN-aðgang
að sumum þjónustuþáttum.
þ
Stjórnsýslan verði einfölduð og dregið úr yfirbyggingu.
þ Samráð við íbúa. Raunverulegt
samráð verði haft við íbúa hvað varðar málefni hvers hverfis fyrir sig.
þ
Félagsauður
og hverfisvitund. Virkjum félagsauðinn í hverju hverfi borgarinnar
og eflum hverfisvitund og samtakamátt íbúanna til að hvert hverfi fá notið
sinna sérkenna á jákvæðan hátt.
Jafnréttismál
B-listinn leggur áherslu á að
Reykjavíkurborg verði áfram í fremstu röð fyrir frumkvæði og faglegt starf að
jafnréttismálum sem tryggi konum og körlum jöfn áhrif, tækifæri og virðingu.
Menningarmál
B-listinn leggur áherslu á að Reykjavík eflist sem
höfuðborg mennta og menningar í landinu; alþjóðleg borg með frjóu,
metnaðarfullu listalífi og fjölbreyttu mannlífi.
þ
Menning og listir séu snar þáttur í
uppeldi og kennslu barna.
þ Í
borgarmyndinni sé sögu borgarinnar ávallt sýnd virðing.
Skemmtileg borg
Við í B-listanum viljum gera
Reykjavík enn skemmtilegri, færa afþreyinguna til fólksins í hverfunum og skapa
betri umgjörð um blómlegt mannlíf í miðborginni.
þ Vatnaveröld
(vatnsrennibrautagarður).
þ Eflum
og nýtum græn svæði.
þ Fleiri
hjóla- og göngustíga.
þ Ókeypis
í söfn í eigu borgarinnar.
þ Nýta
skólabyggingar og félagsmiðstöðvar betur undir ýmsa starfsemi um kvöld og
helgar.
þ Lýsum
upp Geirsnefið. Bætum þjónustu við hundaeigendur.
þ Lokið
verði við að koma upp æfingasvæði fyrir skotmenn.
þ Útbúa
leiðarkort yfir gönguleiðirnar innan borgarlandsins.
þ Sædýrasafn
í Laugardal.
þ Tryggður
verði stuðningur við uppbyggingu Motorcrossbrautar.
þ Skautasvell
á Perlunni.
þ
Tryggja hagsmuni hestamanna vegna
uppkaupa á hesthúsahverfum.
Háhraðasamfélag og gagnaveita
B-listinn vill að stórátak
verði gert í lagningu ljósleiðara um hverfi borgarinnar svo Reykjavík verði
háhraðasamfélag þar sem hver og einn hefur aðgang að háhraðatengingu og netsambandi
sem jafnast á við það besta sem þekkist. Með slíkum gagnaveitum opnast ótal
möguleikar á sviði afþreyingar, fjarkennslu, íbúalýðræðis og öryggismála.





































