Sætta sig ekki við að gengið sé fram hjá séra Sigfúsi
Tveir prestar hafa starfað við Keflavíkurkirkju. Ólafur Oddur Jónsson sóknarprestur, sem lést undir lok síðasta árs, og séra Sigfús Baldvin Ingvason. Séra Sigfús var einn af tíu umsækjendum um embætti sóknarprests þegar það var auglýst á dögunum. Allir umsækjendur voru kallaðir til viðtals hjá valnefndinni og voru metnir hæfir. Valnefndin er skipuð fimm fulltrúum sem sóknarnefnd tilnefnir og vígslubiskupnum í Skálholti sem stýrði fundi hennar. Meirihluti nefndarinnar mælti með séra Skúla S. Ólafssyni sem gegnir embætti sóknarprests á Ísafirði í forföllum skipaðs sóknarprests. Fimm fulltrúar skipuðu meirihlutann en einn fulltrúi greiddi séra Sigfúsi atkvæði sitt.
Býr yfir styrkleika og þrótti
Séra Sigurður Sigurðarson vígslubiskup segist vera bundinn trúnaði um starf nefndarinnar og geti ekki tjáð sig um þau mótmæli sem fram hafa komið við niðurstöðu hennar. Fram kemur í fundargerð frá valnefndarfundinum 5. apríl sem fékkst hjá Biskupsstofu að meirihlutinn rökstuddi val sitt á séra Skúla S. Ólafssyni með því að segja að umsókn hans og framkoma á valnefndarfundi hafi borið vott um vöndun sem skaraði fram úr því sem fram hafi komið hjá öðrum umsækjendum. "Séra Skúli býr yfir fjölþættri reynslu sem prestur og hefur sýnt fram á að hann er vel fær um að fóta sig í nýjum aðstæðum. Röksemdir hans fyrir því hvernig hann geti uppfyllt kröfur þær sem gerðar eru í auglýsingu virðast sannfærandi. Þar er átt við [...] um víðtæka reynslu af kirkjulegu starfi, færni í predikun og helgiþjónustu, leiðtogahæfileika og samstarfsvilja. Valnefndarfólki þessu sýnist að séra Skúli búi yfir þeim styrkleika og þrótti sem þörf er á til að leiða starfið í kröfuhörðu prestakalli sem þessu," segir meðal annars í rökstuðningi meirihlutans sem skipaður var Halldór Leví Björnssyni, Önnu Jónsdóttur, Ragnheiði Ástu Magnúsdóttur, Birgi Guðnasyni og Sigurði Sigurðarsyni vígslubiskupi. Þau lýsa jafnframt þeim einlæga vilja sínum að séra Sigfús Baldvin gegni áfram embætti prests við Keflavíkurkirkju.Gunnar Sveinsson gerði ágreining við valið og vildi mæla með séra Sigfúsi B. Ingvasyni. Hann rökstuddi afstöðu sína með því að segja að Sigfús hafi þjónað sem prestur í Keflavíkurkirkju sl. þrettán ár af einstakri trúmennsku og skyldurækni, oft við mjög erfiðar aðstæður. Hann væri vinsæll meðal sóknarbarna og ætti mjög létt með mannleg samskipti. Hann væri trúaður og samvinnuþýður og gott með honum að vinna. Þá getur hann þess að Sigfús hafi á ferli sínum sinnt meira en helmingi af þjónustuþörfum í sókninni, að beiðni sóknarbarna.
Niðurstaða valnefndar var afhent biskupi Íslands sem lýsti því yfir að hann myndi gera tillögu til kirkjumálaráðherra um að farið yrði að vilja meirihluta valnefndar. Málið er því til ákvörðunar hjá Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra.
Ráðning Sigfúsar rökrétt framhald
"Við teljum að það hafi verið gengið fram hjá séra Sigfúsi, að ráðning hans í þetta embætti hefði verið rökrétt framhald af starfi hans hér. Hann hefur þjónað hér í þrettán ár og fólk er ánægt með störf hans. Við erum ósátt við að honum skuli ekki vera gefið tækifæri til að taka við embætti sóknarprests," segir Falur Jóhann Harðarson, einn af aðstandendum undirskriftasöfnunarinnar til stuðnings séra Sigfúsi B. Ingvasyni.Í bréfi hópsins til biskups og kirkjumálaráðherra er farið fram á það að tekið verði tillit til vilja sóknarbarna í Keflavíkursókn og ráðning séra Sigfúsar staðfest með vísan til rökstuðnings minnihluta valnefndar. "Við teljum augljóst að vilji meirihluta valnefndar endurspegli alls ekki vilja mikils meirihluta sóknarbarna eins og undirskriftarlisti sem hefur verið á netinu í tvo sólarhringa ber með sér," segir meðal annars í bréfinu. Sagt er að séra Sigfús njóti víðtæks stuðnings í sókninni eftir þrettán ára farsælt starf. "Séra Sigfús er mjög alþýðlegur, maður sátta og hefur verið til taks hvenær sem á þarf að halda. Þá hefur hann tekið mikinn þátt í starfi eldri borgara. Séra Sigfús hefur ásamt konu sinni, Laufeyju Gísladóttur, sinnt barnastarfinu af einstakri natni svo athygli hefur vakið." Bréfinu sem Falur Harðarson undirritar fyrir hönd stuðningshópsins lýkur með þeim orðum að hópurinn sætti sig ekki við að gengið sé fram hjá séra Sigfúsi við ráðningu í starf sóknarprests.
Síðdegis í gær höfðu liðlega 4.600 ritað nöfn sín undir stuðningsyfirlýsinguna á netinu. Falur sagði að eftir væri að fara yfir nöfnin og fella út tvískráningar og nöfn fólks sem býr utan prestakallsins. Hann taldi þó að talan væri nokkuð nálægt lagi, bjóst við að hópur fólks sem hefði skrifað undir áskorunina á pappír myndi fyllilega vega upp það sem þyrfti að fella út vegna tvískráningar og annars.





































