Skilorðsbundið fangelsi fyrir að sýna stúlkum klámmynd
Í dómnum eru skýrslutökur yfir stúlkunum gagnrýndar harðlega en þær skýrslurnar voru teknar af rannsóknarlögreglumanni undir stjórn héraðsdómara og settar á myndband. Er í dómnum rakin orðaskipti spyrils og stúlknanna.
Dómurinn, sem var fjölskipaður, segir að fyrir liggi, að þegar spyrillinn tók skýrslur af stúlkunum hafði hann undir höndum kæruskýrslu móður þeirra, þar sem atburðum og atburðarás sé lýst á skýran hátt um annað en ætlaða klámmyndasýningu. Segir í dómsniðurstöðunni að spyrillinn hafi mótað skýrslugjöf yngri stúlkunnar svo fullkomlega, að ekki aðeins samrýmdist hún kæruskýrslunni heldur var nú fram komið að maðurinn hefði að baðinu loknu látið systurnar horfa á klámmynd með honum. Ekkert af þessu hefði komið fram í sjálfstæðri frásögn telpunnar og atburðarás hafi algjörlega verið stjórnað af spyrlinum.
Segir dómurinn að spyrillinn hafi leitt skýrslutökuna áfram á einkar hlutdrægan hátt með þeim afleiðingum meðal annars að stúlkan mátti, eða átti, aldrei að hafa minnstu efasemdir um framferði og sekt mannsins. Hafi steininn tekið úr í þessu samhengi þegar spyrillinn játaði fyrir stúlkunni, að lögreglan gæti tekið manninn fastan og látið hann í fangelsi fyrir systurnar og móður þeirra, „fyrir það sem hann gerði ykkur, við ykkur“, svo notuð séu orð hans.
Dómurinn segir að eldri stúlkan hafi fengið í ríkari mæli tækifæri til að skýra sjálfstætt frá atburðum og framburður hennar sé í heild skýrari og ber vott um meiri aldursþroska. Hins vegar taldi dómurinn að frásögn stúlknanna væri óljós um atvik í baðkerinu og var maðurinn sýknaður af þeim ákærulið enda neitaði hann staðfastlega sök.
Frásögn stúlknanna um klámmyndina var hins vegar talin trúverðug og svo áreiðanleg í heild, að ekki var talinn leika skynsamlegur vafi á því að það hefði gerst, þrátt fyrir að sú atburðarás hefði verið fengin fram af hálfu yngri stúlkunnar með leiðandi spurningum.
Innlent »
- 17 kýr mjólkuðu yfir 10 þúsund kíló
- Börnin uppgötva undraheima Legó
- Evrópusambandið kynnir sig sjálft
- SUF vill draga ESB-umsóknina til baka
- Vilja efla siðferði í stjórnmálum
- Enginn með einkarétt á Samstöðu
-
Yrði öðruvísi biskup
- Handteknir fyrir að keyra á mann
- Hefur hátt í fangaklefa
-
Martröð í matarboði
- Leikstjórinn kom inn sem ljón
- Fjöruverðlaun eftir viku
- Enn skelfur við Grímsey
- Opið á skíðasvæðum
- Fíkniefnasali handtekinn
- Braut rúðu í lögreglubíl
Laugardagur, 11.2.2012
- „Ég er í skýjunum“
- „Mjög sérstök tilfinning“
- Jónsi og Greta til Bakú
- Úrslitakeppnin hafin í Hörpu
- Helmingur vill að ákæran verði dregin til baka
- Fjör á 112-deginum á Húsavík
- Hvessir af suðri seint í kvöld
- Ekki hika – hringdu til öryggis
- Mannréttindi alltaf í fyrsta sæti
- Möguleikar nýju framboðanna
- Enginn flótti af Y-lista
- Iðnaðarmaður ræsti brunaboða
- Búðarþjófur ógnaði starfsmanni
- Börn grétu vegna útigangsmanna
- Fangar reyna oft að ná í fíkniefni
- Slökkt á meðan Kolaportið er opið
- Skjálftahrina við Grímsey
- Öskureið út í Pál Óskar
- Fleiri vilja aukið íbúalýðræði
- „Stærstu verðlaunin eru heima“
- Afþökkuðu fund í forsætisráðuneyti
- Óttast uppsögn
- Játaði sprengjumálið
- Ný fiðrildategund á Íslandi
- „Mjög hrottafengin árás“
- Ráðist á mann á áttræðisaldri
- Hass og árás á leigubílstjóra
- Viðskotaillur og vildi ekki hjálp
- Gestgjafinn varð æfur
- Maður stunginn í Hafnarfirði
- Hrun í ruslinu frá hruni
- 112-dagurinn er í dag
- Hafa gert hugtakið merkingarlaust
- Fá 10 þúsund kr. fyrir skinnið
- Hálka víða um land
- Of ungir inni á Kónginum
- Opið á skíðasvæðum fyrir norðan og austan
- Óbreyttur dagafjöldi á grásleppu
- Vilja starfshóp um atvinnumálin
- Bjartviðri austanvert
- Fengu lán úr sjóðum
- Vildu vera í Póllandi
Innlend málefni
- Hallgrímur SI fórst undan ströndum Noregs
- Landsdómur
- Bæjarstjórnarmeirihluti sprunginn í Kópavogi
- Baldur Guðlaugsson - dómsmál
- Ólga innan VG
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 27. október 2005, Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir klámfengin SMS-skilaboð
- Fimmtudagur, 31. maí 2007, Innlent Dæmdur fyrir kynferðisbrot
- Miðvikudagur, 21. mars 2007, Innlent Dæmdur í fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn barni
- Fimmtudagur, 1. febrúar 2007, Innlent Hæstiréttur styttir dóm yfir kynferðisglæpamanni
- Miðvikudagur, 21. mars 2007, Innlent Skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot
-
Benedikt: Stóðumst áhlaup Stjörnunnar
-
Skemmdarverk verða ekki liðin
-
Léttist um rúmlega 60 kíló
-
Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði
-
Aron: Frábær vörn og markvarsla
-
Fólk víða að minnist Houston
-
Aðdáendur Houston bíða frétta
-
Yrði öðruvísi biskup



































