Álagning á eldsneyti: Brot á samkeppnislögum?
Félag íslenskra bifreiðaeigenda tók nýverið saman heimsmarkaðsverð á eldsneyti, þ.e. bensín og dísilolíu, frá janúar á síðasta ári til dagsins í dag og uppfærði með vísitölu neysluverðs. Í samantektinni kemur ýmislegt athyglisvert fram, s.s. að neytendur hafi borgað tæpum tveim krónum meira í álagningu með virðisaukaskatti á lítra á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við fyrri helming síðasta árs. Einnig kemur fram að ánægjulegri þróun hafi orðið hvað varðar álagningu olíufélaganna á dísilolíu. Ef litið er til fyrri helmings ársins 2005 og tímabilið borið saman við það sem liðið er af þessu ári kemur í ljós að álagningin er um fimm krónum lægri nú. Er ennfremur bent á að athyglisvert sé að töluvert meira sé selt af bensíni en dísilolíu og því ekki hægt að skýra álagningarmuninn með því. "Menn treysta sér til að leggja mun minna á dísilolíulítrann heldur en bensínið og er það vel," segir Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB. "En á sama tíma erum við að mæla þá þróun að menn leggja meira á hvern bensínlítra en var, til að mynda á síðasta ári."
Runólfur segir að þrátt fyrir að frjáls álagning sé á eldsneyti á Íslandi sé ákvæði í samkeppnislögum þar sem fjallað er um áhrif á samkeppnisstöðu. "Þarna er um að ræða, þannig skilið, álíka vöru sem notuð er til að knýja ökutæki og það er kannski sá þáttur sem er eðlilegt að sé skoðaður," segir Runólfur sem telur að hugsanlega sé brotið á rétti þeirra sem keyra bensínknúnar bifreiðar. Hann varpar einnig þeirri spurningu fram hvort olíufélögin láti kaupendur bensíns borga niður samkeppni í sölu á dísilolíu. "Það er vel ef menn keppa um kúna og það er fjör á markaðnum, en það er ekki eðlilegt ef samkeppni um einn kúnnahóp kemur niður á verði til annars kúnnahóps. Þetta er það sem við viljum að sé kannað sérstaklega."
Rangar og órökstuddar fullyrðingar
Olíufélögin hafa brugðist við málflutningi Runólfs og í tilkynningu frá Olíuverzlun Íslands segir m.a.: "Eins og flestum ætti að vera kunnugt um rennur stærstur hluti bensínverðs til ríkissjóðs í formi bensíngjalda og virðisaukaskatts. Það væri vænlegra til árangurs fyrir forsvarsmenn FÍB að einbeita sér að því að ná fram lækkun á bensíngjaldi ríkisins."Einnig segir að það sé ekki FÍB sæmandi að gefa með órökstuddum hætti ítrekað í skyn að Olíuverzlun Íslands og stjórnendur þess séu að brjóta samkeppnislög. Samúel Guðmundsson, framkvæmdastjóri vörustýringasviðs hjá Olís, segir félagið leggja þunga áherslu á að uppfylla lög og reglugerðir og þar með talin séu samkeppnislög. Fullyrðingar FÍB séu rangar, eigi ekki við nein rök að styðjast og þær tölur sem teknar eru fram í frétt FÍB sjást ekki í bókum Olís. "Vegna rangra og órökstuddra fullyrðinga FÍB um brot á samkeppnislögum hefur félagið falið lögfræðingum sínum að kanna réttarstöðu þess gagnvart órökstuddum og röngum fullyrðingum FÍB," segir í tilkynningu frá framkvæmdastjórn Olíuverzlunar Íslands.
Olís er ekki eina olíufélagið sem ætlar að kanna réttarstöðu sína því Hermann Guðmundsson, forstjóri Olíufélagsins ESSO, segist ætla að leita álits lögmanna á því hvort um refsivert athæfi sé að ræða hjá framkvæmdastjóra FÍB og segir hann slíkan atvinnuróg sem í yfirlýsingum FÍB felst litinn mjög alvarlegum augum af stjórnendum Olíufélagsins. Er ásökunum Runólfs jafnframt vísað algerlega á bug en þess í stað bent á náið samstarf milli FÍB og minnsta olíufélagsins á markaðnum. "Er það tilviljun að þetta moldviðri sé sett í gang sama dag og ný bensínstöð er opnuð af samstarfsaðila FÍB?" spyr Hermann en Atlantsolía opnaði í gær bensínstöð við Öskjuhlíð.
Álagning ekki hækkuð til að niðurgreiða aðra vöru
"Skeljungur niðurgreiðir ekki dísilolíu með einum eða neinum hætti. Álagning Skeljungs á bensíni hlítir jafnframt eðlilegri samkeppni á markaði og hefur ekki verið hækkuð til að fjármagna niðurgreiðslu á annarri vöru," segir m.a. í tilkynningu frá Skeljungi þar sem félagasamtök eru jafnframt hvött til að gæta hófs í málatilbúnaði sínum og hlutleysis í umfjöllun. "Trúverðugleiki málatilbúnaðar verður að vera ótvíræður svo hægt sé að svara umfjölluninni á málefnalegan hátt."Hugi Hreiðarsson, upplýsingafulltrúi Atlantsolíu, segir samkeppni ríkja á markaðnum, bæði í sölu á bensíni og dísilolíu, og sé það ekki síst fyrir tilstilli Atlantsolíu. "Það voru 73 verðbreytingar í fyrra og ef það er ekki góð vísbending um að samkeppnisumhverfið sé breytt, veit ég ekki hvað við getum bent á."





































