Metþátttaka í ráðstefnunni Tengslanet - Völd til kvenna

Þátttakendur í ráðstefnunni fengu sér gönguferð í nágrenni Bifrastar í gær. með kveðju Guðrún Vala ...

Þátttakendur í ráðstefnunni fengu sér gönguferð í nágrenni Bifrastar í gær. með kveðju Guðrún Vala Elísdóttir mbl.is/Guðrún Vala

Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is
Tæplega fjögur hundruð konur taka þátt í þriðju tengslanetsráðstefnunni "Völd til kvenna" sem fram fer á Bifröst í dag, en ráðstefnan var sett við rætur Grábrókar í gær. Aðspurð segir dr. Herdís Þorgeirsdóttir, prófessor við lagadeild Viðskiptaháskólans á Bifröst og skipuleggjandi ráðstefnunnar, skráninguna hafa farið fram úr sínum björtustu vonum og ljóst megi vera að Tengslanetið sé óumdeilanlega öflugasta ráðstefna ársins í íslensku viðskiptalífi, en þátttakendur koma líkt og fyrri árin úr öllum þjóðfélagshópum.

"Tengslanetið er að springa út eins og blóm og ég held að ástæðan sé sú að konur finna hjá sér þörf fyrir samstöðu, að við hefjum okkur upp yfir hversdagslegan ágreining og gerum okkur grein fyrir því að við þurfum ekki að vera sammála um leiðir, en við erum sammála um markmið," segir Herdís og tekur fram að greinilegt sé að konur séu að átta sig á því að þær geti haft raunverulega mikil áhrif og völd ef þær standi saman. "Og þær geta eingöngu haft þessi áhrif og fengið þessi völd ef þær standa saman," segir Herdís og leggur áherslu á að Tengslanetið endurspegli allt samfélagið.

Líkt og fyrri árin var ráðstefnan sett við rætur Grábrókar í gær þar sem þátttakendur voru blessaðir af séra Halldóru Þorvarðardóttur, prófasti í Fellsmúla, eftir að Hafdís Jónsdóttir, betur þekkt sem Dísa í World Class, hafði hitað upp fyrir fjallgönguna, en á tindi gígsins ræddi skáldkonan Þórunn Valdimarsdóttir við viðstadda. Að sögn Herdísar felst mikill kraftur í því að byrja ráðstefnuna með þessum hætti. "Þarna er því um að ræða tengingu við náttúruna, almættið, hinn innri mann og við hverja aðra, sem skilar sér í því að við komum endurnýjaðar til baka."

Á eftir að blása nýja lífi í umræðuna

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er einn fremsti femínisti okkar tíma, rithöfundurinn og prófessorinn dr. Germaine Greer. Aðspurð segist Herdís sannfærð um að innlegg Greer á ráðstefnunni muni skila miklu inn í umræðuna hérlendis. "Þetta er mögnuð kona. Hún er svo ákveðin, greind, hreinskiptin, djúpvitur og byltingarkennd í hugsun. Hún hefur haft mikil áhrif á mig þessa örfáu daga sem hún hefur dvalist hér á landi," segir Herdís og segist örugglega ekki ein um þá upplifun.

"Ég efast ekki um að hún muni kveikja upp í umræðunni hérlendis og blása í hana nýju lífi," segir Herdís og nefnir sem dæmi umræðu Greer þess efnis að ekki sé nóg að konur sækist eftir jafnfrétti til þess að verða eins og systur í jakkafötum heldur til að verða konur á sínum eigin forsendum.

"Þetta er í raun kvenfrelsisbarátta, ekki bara jafnréttisbarátta," segir Herdís að lokum.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Bryan Ferry í grænum bjarma á tónleikunum í Hörpu í gærkvöldi.

Ferry heillaði í Hörpu

00:43 Bryan Ferry vakti stormandi lukku þegar hann kom fram í Hörpu í gærkvöldi. Ferry lék mörg af sínum þekktustu lögum, jafnt frá sólóferli sínum sem af plötum sínum með hljómsveitinni Roxy Music. Ferry kemur aftur fram í Hörpu í kvöld. Meira »

Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal

Í gær, 19:40 Hvítasunnuhelgin virðist almennt ganga vel fyrir sig að sögn lögreglunnar um land allt enda sól og blíða víðast hvar og tíðindalítið ef frá er talið í Búðardal. Meira »

Peningar ekki rót alls ills myndskeið

Peningar ekki rót alls ills
Í gær, 21:46 Framhaldsskólanemar eyða almennt mestum pening í mat, áfengi og bensín. Þeim gengur misvel að spara og fæstir hafa fengið nokkra fjármálafræðslu, en finnst þörf á því. Þetta kom í ljós þegar mbl.is spjallaði við ungmenni um fjármálalæsi, en í því hafa Íslendingar ítrekað fengið falleinkunn. Meira »

Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti

Jónsi og Gréta á sviðinu í Bakú.
Í gær, 18:47 Íslenski Evróvisjónhópurinn var rúmlega hálfnaður á leiðinni heim þegar mbl.is náði tali af Hrafnhildi Halldórsdóttur nú fyrir stundu. Von er á hópnum til landsins með vél Icelandair í kvöld. Meira »

Catalina er í fullu fjöri

Catalina flugbáturinn sem flaug yfir Reykjavík í dag.
Í gær, 17:26 Flugbátar af Catalinagerð voru í notkun hér á landi á árunum 1944-1963 og var slík vél fyrsta íslenska flugvélin til að fljúga á milli landa og önnur lék stórt hlutverk í þorskastríðinu. 68 ára gömul Catalinavél sveif um loftin blá yfir Reykjavík í dag og verður til sýnis á Flugdeginum á morgun. Meira »

Fyrst til að verða meistari í bílasmíði

Anna Kristín á leið í útskriftina í gær.
Í gær, 21:19 „Áhuginn hafði alltaf blundað í mér,“ segir Anna Kristín Guðnadóttir, sem í gær útskrifaðist með meistarapróf í bílasmíði fyrst íslenskra kvenna. Meira »

Flestir hlynntir staðgöngumæðrun

Í gær, 18:36 Meirihluti Íslendinga er fylgjandi staðgöngumæðrun. Munur er á skoðunum fólks á málefninu eftir stjórnmálaskoðunum og er andstaðan mest hjá kjósendum Vinstri grænna en minnst hjá þeim sem segjast kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Meira »

Skjaldborg í skjóli fjalla

Merki Skjaldborgarhátíðarinnar 2012
Í gær, 17:18 „Þetta litar bæjarlífið virkilega skemmtilega,“ segir Alda Davíðsdóttir, Skjaldborgarstjóri í Sjóræningjahúsinu á Patreksfirði. Um helgina hafa í kringum 300 manns sótt heimildamyndahátíðina Skjaldborg í bænum en þetta er í sjötta sinn sem hátíðin fer fram. Meira »

Fisvél brotlenti við Klaustur

Frá vettvangi slyssins á Kirkjubæjarklaustri.
Í gær, 17:04 Fisvél brotlenti við Ásgerði, skammt frá Kirkjubæjarklaustri, um klukkan þrjú í dag. Tveir menn voru í vélinni og sluppu þeir ómeiddir. Meira »

Þóra opnar skrifstofu

Þóra Arnórsdóttir forsetaframbjóðandi.
Í gær, 16:45 Kosningamiðstöð forsetaframboðs Þóru Arnórsdóttur verður opnuð í gömlu Heilsuverndarstöðinni við Barónsstíg á annan í hvítasunnu, mánudaginn 28. maí. Miðstöðin verður opin alla daga klukkan 14-20 fram að kosningum. Meira »

Náttúru, sögu og nytjum gerð skil

Ljósmynd frá Veiðivötnum á sýningunni.
Í gær, 17:00 Ljósmyndasýningin „Í Veiðivötnum“ var opnuð í Heklusetrinu á Leirubakka í gær. Það eru hjónin Sigrún Kristjánsdóttir og Pálmi Bjarnason sem eru höfundar myndanna, og er sýningin afrakstur myndatökuferða þeirra við vötnin undanfarin ár. Meira »

Veðrið leikur við landsmenn

Í Nauthólsvík í dag.
Í gær, 16:38 Veðrið leikur við landsmenn núna um hvítasunnuhelgina og gangi veðurspá eftir verður einmuna veðurblíða og hlýindi næstu daga. Meira »

Lettneska konan enn ófundin

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 16:14 Leit að lettneskri konu sem sást síðast um miðjan þennan mánuð hefur enn ekki borið árangur. Vitað er að hún tók á leigu sumarhús við Meðalfellsvatn og hefur leitin því enn sem komið er farið fram í nágrenni þess. Meira »

Gleymdist að slökkva á eldavélinni

Í gær, 15:49 Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að heimahúsi í Grafarholti fyrr í dag en pottur hafði þar gleymst á eldavél og ekki verið slökkt undir honum. Þegar slökkviliðsmenn komu á vettvang var enginn heima en nágrannar höfðu látið vita af reykjarlykt og síðan reyk. Meira »

Voru frelsinu fegnar

Kýrnar á Helluvaði voru frelsinu fegnar í gær þegar þeim var sleppt út.
Í gær, 15:19 Það var fjölmenni sem fylgdist með því þegar kúnum á Helluvaði á Rangárvöllum var sleppt út í gær á hátíðinni „Halló Helluvað“ sem hefur verið haldin árlega á bænum um nokkurt skeið. Meira »

Við akstur undir áhrifum kannabis

Í gær, 15:55 Lögreglan á Selfossi stöðvaði ökumann á Biskupstungnabraut í Grímsnesi rétt fyrir hádegi í dag við reglubundið eftirlit vegna gruns um að sá æki undir áhrifum. Meira »

Fjölmennasti hópurinn frá upphafi

Frá Akureyri. Úr myndasafni.
Í gær, 15:43 Verkmenntaskólinn á Akureyri brautskráði 191 nemanda með 223 skírteini í gær þegar skólanum var slitið í menningarhúsinu Hofi. Fram kom í ræðu Sigríðar Huldar Jónsdóttur, skólameistara VMA, að um væri að ræða fjölmennasta hóp sem hefði verið útskrifaður frá skólanum en alls hefðu verið brautskráðir 292 nemendur á skólaárinu. Meira »

Margir sóla sig í sundi í dag

Frá sundlauginni í Laugardal í dag.
Í gær, 14:51 Margir nota tækifærið í veðurblíðunni og bregða sér í sund í dag, hvítasunnudag, en sundlaugar eru víða opnar. Um helmingur sundlauganna á höfuðborgarsvæðinu er opinn í dag. Afgreiðslutími þeirra er misjafn, þeim er yfirleitt lokað á bilinu 18-19, en Versalalaug í Kópavogi er opin til klukkan 20. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
50 vinsælustu vörurnar í netverslun femin.is
Kynntu þér fjölbreytt úrval í netverslun www.femin.is og yfir 7.000 vöruliði ! ...
Til sölu Volvo 940GL árg.91, nýskoðaður
Til sölu Volvo 940GL árg.91, 5 cylindra, 2.4, nýskoðaður, sjálfskiptur, leður sæ...
FÁÐU RÁÐGJAFA Í HEIMSÓKN - FRÍTT
BETRI REKSTUR, bókhald og rekstrarráðgjöf sími 77 50 200 og 519 7585 www.betrir...
Glæsileg stofuinnrétting
Til sölu vegna flutninga glæsileg stofuinnrétting, sem er sérsmíðuð á trésmíðave...
 
Einstakt atvinnutækifæri
Til sölu
Einstakt atvinnutækifær...
Kennarasöður
Grunn-/framhaldsskóla
Kennarastöður Grunnskóli...
Bifreiðauppboð
Uppboð
DT-195 DT-767 EB-064 EF-921 EK-095 ...
Hagvangur
Önnur störf
Húsvörður Upplýsingar veitir: Kristín ...