Valgerður: „Mjög spennandi viðfangsefni“
Valgerður Sverrisdóttir. mbl.is/Ómar
„Ég geri mér grein fyrir því að þetta er mjög krefjandi starf og ýmislegt sem getur komið upp. Þar að auki stöndum við í stórræðum um þessar mundir á sviði varnarmálanna, en ég hef óskað eftir því við Geir H. Haarde, verðandi forsætisráðherra, að hann haldi á þeim málum áfram formlega þótt hann færi sig um set,“ segir Valgerður og tekur fram að vinnan við viðræðurnar fari engu að síður að miklu leyti fram í utanríkisráðuneytinu. Segist hún vonast til þess að með þessari skipan mála náist mikilvæg samfella í varnarviðræðunum við Bandaríkjamenn.
Býður sig ekki fram til forystu
Framsóknarflokksins
Innt eftir því hvort hún hyggist
gefa kost á sér sem formaður
Framsóknarflokksins á flokksþinginu
í ágúst, svarar Valgerður
neitandi og tekur fram, að hún ætli
heldur ekki að sækjast eftir neinu
öðru sæti í forystu Framsóknarflokksins
á komandi flokksþingi.
Segist hún vilja beina kröftum sínum annars vegar að utanríkisráðuneytinu og hins vegar í það að sinna eigin kjördæmi. Valgerður er fyrsti þingmaður Norðausturkjördæmis og segist hún hafa mikinn áhuga á því að halda þeirri forystu. „Ég vil því frekar nota kraftana þar en á landsvísu, enda veit ég að það er nóg til af góðu fólki til að taka við forystunni í Framsóknarflokknum.“
Valgerður verður fyrst kvenna hérlendis skipuð utanríkisráðherra. Spurð hvernig það leggist í hana segist Valgerður auðvitað stolt af því að vera með því að brjóta blað, en hins vegar vilji hún ekki gera of mikið úr þessu á persónulegum grundvelli.
„Engu að síður skiptir það örugglega máli fyrir jafnréttisbaráttuna að konur eru að hasla sér völl á æ fleiri sviðum og í nýjum embættum, enda er þarna ákveðið vígi að falla. Það hlýtur að skipta máli fyrir framtíðina, t.d. fyrir ungar konur sem hyggja á pólitískt starf, að sjá að þetta er í raun allt opið.“
Vill nýta utanríkisþjónustuna
í þágu atvinnulífsins
Aðspurð hver séu helstu verkefnin
sem bíði hennar í utanríkisráðuneytinu
segir Valgerður of
snemmt að segja til um það. „En
miðað við það sem ég þekki til
sem ráðherra í ríkisstjórn þá eru
það mjög fjölbreytileg málefni
sem þarna eru til umfjöllunar,“
segir hún og bendir á að margt af
því tengist viðskiptum. „Ég hef
mikinn áhuga á atvinnulífinu og
tel það vera mjög af hinu góða
þegar utanríkisþjónustan getur
veitt því aðstoð. Ég tel að Halldór
Ásgrímsson sem utanríkisráðherra
hafi brotið blað hvað
það varðar að nýta utanríkisþjónustuna
meira fyrir atvinnulífið.“





































