Leyfilegur þorskafli verður 193 þúsund tonn
mbl.is/Kristinn Benediktsson
Við ákvörðun á leyfilegum heildarafla á þorski á næsta fiskveiðiári er byggt á breyttri aflareglu þar sem aflamark ákvarðast sem meðaltal af aflamarki síðasta fiskveiðiárs og hlutfall af viðmiðunarstofni í upphafi úttektarárs, sem er í samræmi við tillögur Aflareglunefndar frá 2004. Áfram er miðað við óbreytt veiðihlutfall, 25%. Ákvörðunin hefur í för með sér lítilsháttar breytingu á heildaraflamarki í þorski frá yfirstandandi fiskveiðiári. Leyfilegur þorskafli á fiskveiðiárinu 2006-2007 verður 193 þúsund tonn, en er á yfirstandandi fiskveiðiári 198 þúsund tonn. Óbreytt aflaregla hefði haft í för með sér 187 þúsund tonna afla á næsta fiskveiðiári.
Við ákvörðun á heildarafla annarra fisktegunda á næsta fiskveiðiári er í meginatriðum byggt á tillögum Hafrannsóknastofnunar um hámarksafla. Heildarafli á ýsu verður þó óbreyttur frá yfirstandandi fiskveiðiári, 105 þúsund tonn, en tillaga Hafrannsóknastofnunarinnar kvað á um 95 þúsund tonna afla. Þá verða nokkrar breytingar til hækkunar á heildaraflamarki nokkurra fisktegunda, m.a. steinbíts og kolategunda, frá tillögu Hafrannsóknastofnunar.
Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar um nytjastofna sjávar á þessu fiskveiðiári og aflahorfur á því næsta er lagt til, í ljósi þess að hlutfall stórfisks í þorskstofninum hefur lækkað mikið á undanförnum áratugum, að sérstaklega verði farið yfir hvort þörf sé á frekari verndunaraðgerðum á hrygningarslóðum.
Þá hefur sjávarútvegsráðherra ákveðið að fela Hagfræðistofnun Háskóla Íslands að gera sérstaka úttekt á þjóðhagslegum áhrifum af breyttri aflareglu og skoða áhrif af mismunandi veiðihlutfalli á þorski. Tryggvi Þór Herbertsson forstöðumaður stofnunarinnar hefur yfirumsjón með verkinu. Ætlunin er að varpa ljósi á áhrif þess að breyta aflareglu og veiðihlutfalli eins og settar hafa verið fram hugmyndir um. Verða áhrifin metin jafnt til lengri og skemmri tíma fyrir efnahagslífið í heild, sjávarútveginn, einstök fyrirtæki, útgerðarstaði og landsvæði svo dæmi séu tekin.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
- Leiðin um Hólssand fær
- Fagnar stofnun vinnuhóps um afnám gjaldeyrishafta
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 22. júní 2005, Innlent Leyfilegur heildarafli 354 þúsund tonn á næsta fiskveiðiári
- Föstudagur, 6. júlí 2007, Innlent Þorskkvótinn verður 130 þúsund tonn
- Þriðjudagur, 26. júní 2007, Innlent Hagkvæmt að hætta þorskveiðum um tíma
- Laugardagur, 3. júní 2006, Innlent Þorskaflamark minnkar um 11 þúsund tonn samkvæmt aflareglu
- Laugardagur, 2. júní 2007, Innlent Hafró leggur til þriðjungs samdrátt í þorskafla
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































