Ögmundur gagnrýnir ummæli samgönguráðherra um mótmæli starfsmanna Vegagerðar

Ögmundur Jónasson.

Ögmundur Jónasson. Morgunblaðið

Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs, gagnrýnir Sturlu Böðvarsson samgönguráðherra harðlega í pistli á heimasíðu sinni í dag, vegna ummæla ráðherrans í hádegisfréttum ríkisútvarpsins þess efnis að mótmæli starfsmanna Vegagerðarinnar í vikunni væru óviðeigandi. ,,Stundum eiga ráðherrar að þegja. Það hefði Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra betur gert í dag," segir í pistli Ögmunds.

Starfsmenn Vegagerðarinnar á Patreksfirði, Hólmavík og á Ísafirði mótmæltu í vikunni ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að fresta vegaframkvæmdum á Vestfjörðum vegna þenslu með því að flagga í hálfa stöng, en ríkistjórnin hefur frestað öllum vegaframkvæmdum sem ekki höfðu verið boðnar út.

Sturla sagðist óánægður með að eigur Vegagerðarinnar væru notaðar með þessum hætti, mótmælendur væru undirmenn vegamálastjóra sem hefði ,,húsbóndavald" yfir þeim. Menn hefðu þó málfrelsi og leyfi til þess að mótmæla aðgerðum stjórnvalda að vild.

Ögmundur gagnrýnir orðaval Sturlu sem sé þó ekki hneykslaður á eigin athæfi. ,,Sturlu Böðvarssyni væri hollt að hugleiða að fólkið er að mótmæla svikum hans og ríkisstjórnarinnar á marggefnum loforðum og heitstrengingum fyrir síðustu alþingiskosningar. Það er ekkert skrítið að fólk mótmæli slíku; það ber vott um að það er ekki dautt úr öllum æðum, enn er sem betur fer lífsmark með þjóðinni. Það finnst ríkisstjórninni greinilega skelfileg tilhugsun og þurfi nú að beita "húsbóndavaldi." Hvers vegna skyldi eiga að skera niður vegaáætlun? Ástæðan liggur í stóriðjustefnu ríkisstjórnarinnar," segir Ögmundur í pistli sínum.

Ögmundur segir að Vestfirðingum og fólki á norðausturhorni landsins sé ætlað að súpa seyðið af þeirri stefnu. ,,Í henni liggur þensluvaldurinn sem ætlunin er að slá á. Í hádegisfréttum RÚV var rifjuð upp aðför umhverfisráðherra á sínum tíma gegn landvörðum sem mótmæltu stórfelldum náttúruspjöllum við Kárahnjúka. Þeir létu stjórnast af tilfinningum og réttlætiskennd. Ég var í hópi þeirra sem tók ofan fyrir þeim og fagnaði framtaki þeirra. Þeim var hins vegar hótað öllu illu af yfirvöldum, sem sýndu smæð sína og virðingarleysi gagnvart skoðunum og tilfinningum annarra," segir Ögmundur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Hafnarfjörður.

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »
Sauðárkrókur.

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Félögin telja sig svikin

Verkalýðsfélög finna að atvinnustefnu stjórnvalda
05:30 Formenn fimm verkalýðsfélaga gagnrýna vanefndir ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna í atvinnumálum og telja að miklu meira þurfi að koma til eigi að ná atvinnustiginu í viðunandi horf. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Skilur ekki mikilvægi sjávarútvegs

Trillukarl landar í Reykjavík. Um 1.800 manns starfa við fiskveiðar og vinnslu á höfuðborgarsvæðinu.
05:30 Borgarráð Reykjavíkur skilur ekki mikilvægi sjávarútvegsfyrirtækja fyrir borgina og vanmetur áhrif hans á önnur fyrirtæki.  Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Barnastóll á hjól
Mjög vandaður. Vottaður fyrir allt að 22 kg. Verð 6000 kr. Uppl. í síma 848...
Ertu með ristilkrabba á byrjunarstigi?
Eftir hægðir setur þú eitt Ez Detect prófblað í salernið. Ef ósýnilegt blóð e...
Glæsilegt heilsárshús til leigu/sölu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í golf og frábæ...
NÚ ER RÉTTI TÍMINN FYRIR TRJÁKLIPPINGAR
Nú er rétti tíminn fyrir trjáklippingar og fellingar...
 
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...