„Með ólíkindum hvað útihúsin brunnu hratt"
Útihúsin á Húsatóftum I stóðu í ljósum logum í morgun. mynd/Valgerður
Valgerður náði að bjarga fimm kúm, kvígu sem á að bera í mánuðinum og kálfi. Um þrjátíu gripir brunnu inni, en kvígur eru allar úti og sluppu því. Hreinsunarstarf er hafið og er verið að slökkva í glæðum og komast fyrir reyk.
Valgerður segir tjónið eðlilega mikið þar sem lifibrauð þeirra hafi svo að segja brunnið til kaldra kola. Segir hún starfsmenn tryggingafélagsins koma síðar í dag til að meta tjónið og að þau hjónin eigi í raun ekki húsin lengur. Valgerður vill ekkert segja um það hvort ný útihús verði byggð í kjölfarið.
Samkvæmt upplýsingum frá brunavörnum Árnessýslu verður unnið að því í dag að slökkva í glæðum og hreinsa fram eftir degi auk þess sem gripirnir verða urðaðir í samvinnu við heilbrigðiseftirlitið.
Slökkvilið var kallað út um tuttugu mínútur yfir sex í morgun og voru húsin alelda þegar það kom á staðinn. Þök húsanna féllu og eru húsin ónýt.
Eru að sögn ýmsar getgátur uppi um eldsupptök, en ekkert er hægt að segja með vissu að svo stöddu.
Á vefsíðu lögreglunnar kemur fram að eiginlegu slökkvistarfi hafi lokið um kl. 8, en brunavakt er við húsin og er hafin vinna við rannsókn eldsupptaka. Lögreglan á Selfossi hefur leitað eftir sérfræðiaðstoð frá Tæknideild Lögreglunnar í Reykjavík vegna rannsóknarinnar auk þess sem rannsóknarmenn frá Neytendastofu munu kanna sérstaklega hvort kviknað hafi í út frá rafmagni.
Vettvangurinn er yfirgripsmikill og mun þessi vinna taka nokkurn tíma.
Ljóst er að fjárhagslegt tjón af brunanum nemur tugum milljóna.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
- Tillaga Vigdísar felld
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 3. apríl 2006, Innlent Gróðurbreytingar og erfiðleikar hjá fuglum
- Sunnudagur, 18. mars 2007, Innlent Bátur brann á Þórshöfn
- Föstudagur, 12. maí 2006, Innlent Milljónatjón þegar skógur brann við Hvaleyrarvatn
- Þriðjudagur, 20. febrúar 2007, Innlent Búið að ráða niðurlögum elds á Bíldudal
- Sunnudagur, 27. maí 2007, Innlent Þjóðminjasafnið fékk breskan arf
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu






































