Menntaráði Reykjavíkurborgar skipt í tvennt

Samþykkt var í menntaráði í dag að skipta ráðinu í tvennt.

Samþykkt var í menntaráði í dag að skipta ráðinu í tvennt. mbl.is/Ómar

Samþykkt var á fundi menntaráðs Reykjavíkurborgar í dag að skipta ráðinu upp í tvennt, í annars vegar leikskólaráð og hins vegar menntaráð. Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri grænna greiddu ekki atkvæði á fundinum um skiptingu ráðsins í tvennt.

Óánægja meðal minnihlutans með boðun fundarins

Segir Stefán Jón Hafstein,fulltrúi Samfylkingarinnar í menntaráði, að það hafi komið á óvart að boðað væri til skyndifundar með tveggja daga fyrirvara föstudaginn fyrir Verslunarmannahelgi.

„Í útsendum gögnum var meðal annars ný samþykkt fyrir leikskólaráð sem við höfum marga fyrrivara við, en ekki tekið fram að málið væri til afgreiðslu á fundinum, enda stórt og viðamikið.

Í upphafi fundar óskuðum við (Samfylking og Vinstri grænir) eftir því að ráðið fengið skriflegar umsagnir frá fagstéttum grunn- og leikskóla auk fleiri upplýsinga sem við töldum nauðsynlegar áður en ráðið ályktaði um málið.

Mikil andstaða kom fram á fundinum við áform meirihluta, og óskaði m.a. fulltrúi Samfoks skriflega eftir svörum við sams konar spurningum og við bárum upp. Eigi að síður kynnt formaður í fundarlok umsögn sem greiða átti atkvæði um. Við í minnihluta neituðum að greiða atkvæði enda skorti öll þau gögn sem kjörnir fulltrúar og áheyrnarfulltrúar höfðu beðið um skriflega.

Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn gengu því einir til atkvæða, en þessi vinnubrögð eru í fullkominni andstöðu við góð vinnubrögð í borginni. Harðar bókanir gengu á víxl og þótti okkur einkar furðulegt að meirihlutinn skyldi fyrst samþykkja umsögn um málið en síðan fela sviðstjóra menntasviðs að afla þeirra gagna sem beðið hafði verið um," að sögn Stefáns Jóns.

Stefán Jón segir að þetta séu klárlega tilburðir til sýndarsamráðs og boði ekkert gott um vinnubrögð meirihluta.

„Ég bað um að fundinum yrði frestað svo við gætum að minnsta kosti unnið vandað álit sjálf í minnihlutanum, en því hafnaði formaður, en dró sjálfur úr pússi sínum fyrirfram unna umsögn sem hann hefði vel getið sent okkur hinum út til kynningar, en kaus af einhverjum ástæðum að gera ekki," að sögn Stefáns Jóns Hafstein.

Eðlilegt að vinna svona mál hratt segir formaður menntaráðs

Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður menntaráðs, segir að meirihlutanum í menntaráði hafi þótt mikilvægt að afgreiða mál sem þetta hratt en ekki draga hlutina á langinn eins og fyrri meirihluti hafi oft gert á sinni valdatíð.

„Það hefur mjög neikvæð áhrif á þá sem starfa við viðkomandi málaflokka, í þessu tilviki við menntamál barna, að draga afgreiðslu mála. Við viljum koma í veg fyrir það að starfsfólk þurfi að búa við það kannski vikum ef ekki mánuðum saman að rætt sé um breytingar sem vofir yfir þeim án þess að gengið sé frá þeim,” segir Júlíus Vífill.

Segir hann að almennt sé það ljóst að þessi breyting er auðveldari fyrir alla þá sem að henni koma ef hún er framkvæmd hratt.

„Við ætlum að vinna hratt hér í borginni. Við höfum sagt það að við munum framkvæma og það hratt,” segir Júlíus Vífill.

Júlíus Vífill telur það skrýtið að Stefán Jón Hafstein velti sér upp úr forminu sem ljóst sé að er í góðu lagi.

„Þessi fundur sem haldinn var í menntaráði í dag var fyrst og fremst haldinn til þess að fá fram hugmyndir og faglegt samráð við þá sem þekkja þessi mál vel,” segir Júlíus Vífill.

Segir Júlíus Vífill að ekki hafi komið neinar hugmyndir frá Stefáni Jóni og félögum í minnihlutanum heldur hafi þau fyrst og fremst velt sér upp úr því hvort það ætti að afgreiða málið í dag eða einhvern næstu daga. Það er nú ekki vænlegt til árangurs, segir Júlíus Vífill.

Fyrirspurnir og bókanir frá áheyrnarfulltrúum

Áheyrnarfulltrúi SAMFOKs lagði fram eftirfarandi fyrirspurn á fundi menntaráðs:

1. Hvaða faglegu sjónarmið og rök liggja að baki tillögunni?
2. Hvaða rekstrarlegu sjónarmið og rök liggja að baki tillögunni?
3. Hver er áætlaður kostnaður við fyrirhugaðar breytingar?
4. Hver eru viðhorf starfsmanna leikskóla og grunnskóla og starfsmanna á Fríkirkjuvegi 1 til breytinganna?

Áheyrnarfulltrúar leikskólastjóra, leikskólakennara og grunnskólakennara lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Þrátt fyrir góðan ásetning teljum við að fyrirhugaðar breytingar á menntaráði og Menntasviði séu skref aftur á bak þar sem menntun barna á að vera heildstætt ferli. Menntaráð er vettvangur til þess að skapa umgjörð um það.

Fulltrúarnir leggja til að skoðað verði að ráðin heiti menntaráð vegna leikskóla og menntaráð vegna grunnskóla."

Áheyrnarfulltrúi samtakanna Börnin okkar lögðu fram eftirfarandi bókun:

„Samtökin Börnin okkar taka undir ályktun frá Reykjavíkurdeild Félags leikskólakennara og Kennarafélagi Reykjavíkur um stofnun sérstaks leikskólaráðs í Reykjavík.

Lýsum við yfir áhyggjum af því að stofnun sérstaks leikskólaráðs muni hafa neikvæð áhrif á samvinnu og samstarf á milli þessara tveggja skólastiga.

Samtökunum Börnunum okkar þykir eðlilegt að slík ákvörðun sé tekin í sátt við fagfólk í grunnskólum og leikskólum ásamt fagfólki á Menntasviði."

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lögðu fram eftirfarandi tillögu að umsögn menntaráðs:

„Menntun barna og unglinga er grundvallarþáttur fjölskyldustefnu borgarstjórnar Reykjavíkur. Þær breytingar sem stefnt er að með aðgreiningu leikskólaráðs og menntaráðs endurspegla þær auknu áherslur sem lagðar verða á menntun og þroska barna. Til að tryggja skilvirka stjórnsýslu og nauðsynlega nánd við þau verkefni sem núverandi menntaráð hefur til umfjöllunar er mjög æskilegt að færa tvö meginverkefni ráðsins til nýrra sjálfstæðra ráða en um leið að skilgreina leiðir og framtíðarsýn í menntun reykvískra barna. Með aðgreiningunni gefst tækifæri til þess að færa nýjan faglegan kraft í þá málaflokka sem heyra munu undir bæði mennta- og leikskólaráð.

Í því sambandi er nauðsynlegt að fastsetja samráð og samstarf grunnskólans og leikskólans enda er stefnt að því að mörkin á milli þessara tveggja skólastiga séu sveigjanleg og að þau taki í auknum mæli mið af einstaklingsbundnum þörfum barna. Samstarfi getur verið komið á með ýmsum hætti og hvetur menntaráð til þess að skoðaðar verði vel þær leiðir sem til greina koma og að þær verði bundnar í samþykktum ráðanna ef kostur er.

Mikilvægt er að í samþykkt fyrir leikskólaráð komi fram meginhlutverk leikskólans sem er menntun leikskólabarna. 2. gr. samþykktarinnar tekur ekki á þessu atriði og ber því að breyta greininni til samræmis við 2. gr. samþykktar fyrir menntaráð með eðlilegri aðlögun. Á sama hátt verður að breyta 3. gr. samþykktar fyrir leikskólaráð á þann hátt að leikskólaráð geri tillögu til borgarráðs um menntastefnu borgarinnar í málefnum leikskólabarna.

Ekki er ástæða til þess að hafa tvö mismunandi ferli varðandi ráðningu grunnskólastjóra annars vegar og leikskólastjóra hins vegar. Lagt er til að 11. gr. samþykktar fyrir leikskólaráð verði færð til samræmis við samsvarandi grein í samþykkt fyrir menntaráð.

Til að tryggja farsæla aðgreiningu menntaráðs og stofnun nýs leikskólaráðs á faglegum grunni er sérstaklega nauðsynlegt að vinna náið með sérfræðingum Menntasviðs. Þeir gegna lykilhlutverki í því breytingaferli sem framundan er. Auk þess verði unnið með fulltrúum leik- og grunnskóla og öðrum þeim sem starfa að velferð og framtíð barna.

Menntaráð fagnar þeim metnaðarfullu breytingum sem að er stefnt og telur æskilegt að þeim verði hraðað svo sem kostur er."

Fulltrúar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs óskuðu eftir að afgreiðslu á tillögu að umsögn verði frestað.

Tillaga um frestun á afgreiðslu felld með 4 atkvæðum gegn 3.

Tillaga að umsögn menntaráðs samþykkt með 4 atkvæðum, að því er segir í fundargerð menntaráðs frá því fyrr í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »
Haraldur Benediktsson

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Alvarleg mistök að gefa Jóhönnu orðið

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra.
05:30 „Með því að gefa forsætisráðherra orðið um atkvæðagreiðsluna urðu forseta Alþingis á alvarleg mistök, sem henni ber að leiðrétta úr forsetastóli.“ Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Yorkshire terrier bræður í leit að heimili
Yorkshire terrier rakkar leita að framtíðarheimili. Yndislegur heimilishundur, f...
Til sölu Harley davidson 100ára afmælisútgáfa
Harley davidson Dyna glide(fxdvg wide 100ára afmælisútgáfa uppl 6624961...
Hellur, garðhellur til sölu MEÐ 50% AFSLÆTTI
Hellurnar eru frá mest steypustöð og eru með granítyfirborði sem gerir þær mun s...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
 
Director of the administration division
Stjórnunarstörf
The European Free Trade Association is c...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
15262 15263 og 15264 frístunda- og gestahús

Tilboð óskast í þrjú frístunda- og...