Mögulegt að vestnorrænt fríverslunarsvæði verði myndað

Vestnorrænt fríverslunarsvæði verður hugsanlega myndað.
Vestnorrænt fríverslunarsvæði verður hugsanlega myndað. mbl.is

Ársfundur Vestnorræna ráðsins var í Færeyjum í dag og samkvæmt ályktun sem samþykkt var eiga ríkisstjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands að kanna möguleikann á aðild Grænlands að nýjum fríverslunarsamningi Íslands og Færeyja, svokölluðum Hoyvíkur-samningi.

Vestnorræna ráðið er samstarfsvettvangur þjóðþinga Íslands, Færeyja og Grænlands.

Hoyvíkur-samningurinn er einn víðtækasti fríverslunarsamningur sem gerður hefur verið og mun í raun leiða til íslensks-færeysks efnahagssvæðis þegar hann tekur gildi síðar á árinu.

Heimamarkaður Íslands mun þá stækka um 50.000 manns. Í samningnum er sérstaklega gert ráð fyrir útvíkkun hans til fleiri hluta konungsveldisins Danmerkur og vill Vestnorrænaráðið að möguleikar á þátttöku Grænlands verði nú kannaðir.

Með þátttöku Grænlands yrði í raun til vestnorrænt fríverslunarsvæði. Ráðið samþykkti einnig að löndin þrjú skuli skiptast á launuðum konsúlum með diplómatíska stöðu sem styrkja mundi samstarf þeirra enn frekar.

Á ársfundinum var Jonathan Motzfeld, formaður grænlenska þingsins, kjörinn formaður og Halldór Blöndal, formaður utanríkismálanefndar og Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, kjörinn varaformaður.

Forseti Norðurlandaráðs, Ole Stavad, sagði frá því að forsætisnefndir Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs hefðu ákveðið að gera uppkast að formlegum samstarfssamningi milli ráðanna tveggja.

Fundurinn samþykkti einnig tillögur þess efnis styrkja skuli samstarf þjóðanna í ferðamálum og í baráttu gegn reykingum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert