BSRB hótaði lögsókn en ekki fjölmiðlaumfjöllun

Ögmundur Jónasson, formaður BSRB, gerir alvarlegar athugasemdir við frásögn Kristins Jónassonar, bæjarstjóra Snæfellsbæjar, á fréttavefnum Skessuhorni, sem Fréttavefur Morgunblaðsins vísaði í fyrr í dag. Þar kom fram að Ögmundur hafi hótað fjölmiðlaumfjöllun ef uppsagnir bæjarstarfsmanna yrðu ekki dregnar til baka. Á vef BSRB kemur fram að Ögmundur hafi hótað lögsókn ekki fjölmiðlaumfjöllun.

„Haft er eftir Kristni Jónassyni, bæjarstjóra Snæfellsbæjar á mbl.is, að formaður BSRB, Ögmundur Jónasson, hafi hótað „fjölmiðlaumfjöllun“ ef ólögmæt uppsögn sex bæjarstarfsmanna við íþróttahús bæjarins yrði ekki dregin til baka.

Í fréttinni er vísað í frásögn Skessuhorns þar sem birt er úr bókun bæjarstjóra um samskipti hans við formann BSRB, á fundi þeirra hinn 4. júlí sl.

Formaður BSRB gerir alvarlegar athugasemdir við frásögn bæjarstjórans. „Sannast sagna koma yfirlýsingar bæjarstjórans mér mjög á óvart. Ég átti ásamt lögfræðingi BSRB og formanni Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu ágætan fund með bæjarstjóra og samstarfsfólki hans 4. júlí þar sem farið var yfir stöðu mála.“

Sagði Ögmundur að af hálfu BSRB hefði verið gerð grein fyrir því að bandalagið teldi uppsagnirnar ekki standast lög og samninga og myndi málið enda fyrir dómstólum ef engin breyting yrði á. „Við buðum hins vegar upp á samstarf um að leysa málið sem þar með yrði úr sögunni. Báðum við bæjarstjóra að íhuga málið þar til síðar í mánuðinum, áður en uppsagnirnar tækju gildi, og var ákveðinn fundur 26. júlí. Á þeim fundi kom hins vegar í ljós að bæjarstjórn myndi halda málinu til streitu og yrðu uppsagnirnar látnar standa. Ég sagði að við hörmuðum þessa niðurstöðu og í samræmi við fyrri yfirlýsingar myndum við nú fela lögmönnum að útbúa stefnu. Fram til þessa hafði ég litið svo á að málið væri í skoðun á milli BSRB og bæjaryfirvalda og vildi ég ekki að bæjarstjóri velktist í vafa um að þar sem bæjarstjórnin vildi ekki taka tillit til sjónarmiða BSRB færi málið fyrir dómstóla og yrði jafnframt gerð grein fyrir því opinberlega. Það var og gert á fréttavef BSRB eins og eðlilegt hlaut að teljast,“ að því er segir á fréttavef BSRB.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir þátt sinn í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SVARTIR SCHNAUZER HVOLPAR
Til sölu svartir standard schnauzer hvolpar. Tegund sem fer ekki úr hárum. HRFÍ-...
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
HEFUR VERIÐ Í GEYMSLU, SEM ÞARF AÐ LOSA FLJÓTLEGA. FÆST Á AÐEINS 10.000 UPPL....
 
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...