Rúmlega 9 þúsund erlendir ríkisborgarar við störf á Íslandi

Flestir þeirra útlendinga sem starfa á Austurlandi eru við mannvirkjagerð

Flestir þeirra útlendinga sem starfa á Austurlandi eru við mannvirkjagerð Árni Sæberg

Rúmlega níu þúsund erlendir ríkisborgarar störfuðu á íslenskum vinnumarkaði á síðasta ári samkvæmt staðgreiðsluskrá Hagstofu Íslands. Hefur þeim fjölgað um 5.610 frá árinu 1998 er 3.400 útlendir ríkisborgarar störfuðu á Íslandi. Hlutfall starfandi með erlendan ríkisborgararétt hefur aukist jafnt og þétt úr 2,3% árið 1998 í 5,5% árið 2005. Tæplega tvöþúsund þeirra útlendu ríkisborgara sem störfuðu á Íslandi á síðasta ári eru Pólverjar.

Árið 2005 voru fleiri starfandi karlar en konur með erlent ríkisfang en konurnar voru fleiri í upphafi tímabilsins. Árið 2005 voru 5.350 karlar en 3.650 konur en árið 1998 voru 1.530 karlar og 1.870 konur.

Í Hagtíðindum Hagstofu Íslands kemur fram að utan höfuðborgarsvæðis starfa flestir með erlent ríkisfang á Austurlandi eða 1.790. Árið 2005 störfuðu 4.420 erlendir ríkisborgarar á höfuðborgarsvæðinu en 4.340 utan þess.

Af öllum starfandi árið 2005 störfuðu flestir við þjónustugreinar (72%), því næst iðngreinar (23%) og fæstir við frumvinnslugreinar (5%). Þegar aðeins er litið til þeirra sem hafa erlent ríkisfang þá störfuðu nær jafnmargir í þjónustugreinum (48%) og iðngreinum (47%) en fæstir í frumvinnslugreinum (5%).

Árið 2005 störfuðu flestir erlendir ríkisborgarar innan iðngreinanna við mannvirkjagerð eða 1.890 og hafði þeim fjölgað um 1.770 frá 1998. Mun fleiri störfuðu við mannvirkjagerð utan höfuðborgarsvæðisins en innan þess og voru þeir flestir á Austurlandi eða 1.170. Erlendum ríkisborgurum sem störfuðu við mannvirkjagerð á Austurlandi fjölgaði umtalsvert frá 1998 en þá voru þeir innan við 10.

Árið 2005 voru flestir starfandi erlendir ríkisborgarar pólskir eða 1.970. Næst á eftir koma danskir, filippseyskir, portúgalskir og þýskir ríkisborgarar eða rúmlega 500 frá hverju landi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir þátt sinn í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Gaseldavél í sumarbústaðinn
Til sölu gaseldavél með þremur hellum og bakarofni ásamt litlum gaskút. Upplýsi...
Létt á líkama - létt í lund. Hefst 24.5.
4ra vikna lokaður átakshópur fyrir þig sem vilt breyta um lífsstíl. Ekkert auk...
Dekk Land Cruiser 120 Michelin heilsárs/sumar 265/65 r17
dekk undan 120 bíl, dekkin eru slitin og vel með farin.. Verð 40 þús. Uppl. í...
VW TOUAREG V6 TDI
Tilboð 4.200 þ. kr. Ásett 4.600 þ. kr., árg.2005, akst. 110.000 km. Álfelgur, au...
 
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...