Ráðherra vissi ekki um efnistökuna
Jónína sagði aðspurð að sér hefði ekki verið kunnugt um að Umhverfisstofnun hefði veitt leyfi fyrir þessari efnistöku, en stofnuninni væri heimilt að veita slíka undanþágu frá reglum um friðlýsingu friðlands að Fjallabaki. Forsætisráðuneytið hefði einnig komið að málinu þar sem friðlandið væri þjóðlenda og því færi ráðuneytið með málið sem eigandi landsins. Forsætisráðuneytið hefði gefið leyfi til að taka hrafntinnuna.
"Það sem mér finnst umhugsunarvert við þetta mál er spurningin um hvað við eigum að gera eftir 50 ár þegar aftur þarf að gera við Þjóðleikhúsið. Það er ekki endalaust hægt að sækja efni til viðgerða á húsinu," sagði Jónína.
Jónína sagði að á árum áður hefðu menn notað hrafntinnu eða önnur fágæt efni á hús hér á landi og nauðsynlegt væri að ræða hvort við ættum að leyfa efnistöku til viðgerða á þeim í framtíðinni.
Umhverfisráðherra benti á að það væri hægt að framleiða hrafntinnu, en sá kostur hefði ekki verið tekinn að þessu sinni, en það væri eðlilegt að skoða þann kost betur.
Hrafntinna fágæt á heimsvísu
Í leyfi Umhverfisstofnunar frá 22. september sl. kemur fram að hrafntinna í hæsta gæðaflokki sé fágæt bæði á landsvísu og á heimsvísu og náttúruverndargildi hennar sé hátt af þeim sökum. Stofnunin telur því ekki hægt að gera ráð fyrir því að hægt verði að taka hrafntinnu úr Hrafntinnuskeri í framtíðinni. Stofnunin bendir á að þessi sérstaka bergtegund hafi mikið sjónrænt gildi sökum hins svarta gljáandi litar síns.Hrafntinnan var tínd með höndum og flutt á sexhjólum úr Hrafntinnuskeri. Rakað var yfir öll hjólför á svæðinu.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
- Málflutningur hefst 18. september
Svipaðar fréttir
- Föstudagur, 6. október 2006, Innlent Sækja 50 tonn af hrafntinnu í Hrafntinnusker
- Miðvikudagur, 15. nóvember 2006, Innlent Kæra efnistöku í Hrafntinnuskeri
- Fimmtudagur, 1. mars 2007, Innlent Búið að mylja alla hrafntinnuna
- Föstudagur, 12. janúar 2007, Innlent Bretar opna Sellafield
- Miðvikudagur, 20. september 2006, Innlent Umhverfisráðherra vill flytja Náttúrufræðistofnun til Keflavíkurflugvallar
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































