Dómsmálaráðherra kynnir tillögur starfshóps um öryggismál

Björn Bjarnason
Björn Bjarnason

Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, kynnti í ríkisstjórn föstudaginn 6. október, á fundi með fulltrúum þingflokka 9. október og sama dag á alþingi tillögur starfshóps um öryggismál undir formennsku ríkislögreglustjóra, að því er segir í tilkynningu frá ráðuneytinu í dag.

Tillögurnar eru eftirfarandi:

1. Stofnuð verði öryggis- og greiningarþjónusta hjá embætti ríkislögreglustjóra.

2. Unnið verði að sérstökum lögum um starfsemi öryggis- og greiningarþjónustunnar.

3. Starfsemi öryggis- og greiningarþjónustu verði háð eftirliti sérstakrar eftirlitsnefndar sem skipuð verði fimm þingmönnum.

4. Byggt verði upp upplýsingakerfi fyrir öryggis- og greiningarþjónustuna og aflað verði heimilda til samkeyrslu gagna í vörslu opinberra aðila.

5. Komið verði á formlegu samstarfi við erlendar öryggisþjónustur.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert