Stúdentar efna til meðmæla á Austurvelli á fimmtudaginn

Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur ákveðið að koma af stað umræðu um gildi menntunar nú í aðdraganda alþingiskosninga. Markmiðið er að efla þjóðarvitundina um mikilvægi menntunar og vekja enn frekar athygli á því hversu mikilvægt þekkingarþjóðfélagið er.

"Í þessari viku stöndum við stúdentar fyrir meðmælum," segir Sigurður Örn Hilmarsson, formaður stúdentaráðs Háskóla Íslands. "Með því erum við að benda á mikilvægi þess að vel sé gert við menntakerfið í landinu og mikilvægi þess að hér sé þetta þekkingarþjóðfélag sem við teljum að flestir Íslendingar vilji búa í," heldur hann áfram og bendir á að með þessu vilji þeir vekja fólk til umhugsunar um þennan málaflokk. "Við viljum líka gera þetta með jákvæðum hætti," segir Sigurður. "Stundum hefur það nefnilega viljað brenna við að umfjöllun um háskólastigið hefur haft á sér dálítið neikvæðan blæ," bætir hann við.

Nú í aðdraganda kosninga vilja þeir koma af stað vitundarvakningu meðal þjóðarinnar og vonast eftir jákvæðum viðbrögðum stjórnmálamanna. "Tilgangurinn með þessu er auðvitað að gera menntamálin að kosningamáli," segir Sigurður. "Við teljum einmitt að Íslendingar hafi gert upp hug sinn og vilji búa í þekkingarþjóðfélagi," segir hann og að nú sé komið að stjórnvöldum að endurspegla metnað þjóðarinnar.

Aðspurður um fjárskort og þá staðreynd að háskólarnir eru hver af öðrum að sprengja utan af sér húsnæðið segir Sigurður að stúdentaráð vilji að staðið sé myndarlega að menntakerfinu í öllu landinu.

"Við teljum að lykillinn að því að Íslendingar haldi samkeppnishæfni sinni felist í því að hér búi vel menntuð þjóð. Það gerum við með því að búa mjög vel að öllum menntastigum. Vissulega er það alveg rétt að það þarf að byggja meira, fjölga kennurunum og hleypa öllum nemendum að."

Í kjölfar blaðamannafundar þar sem stúdentaráð kynnti meðmælin var hleypt af stað undirskriftasöfnun á vef stúdentaráðs, www.student.is/undirskriftir. "Þar hvetjum við alla námsmenn sem og alla Íslendinga, sem er umhugað um menntamál, til að skrifa nafn sitt. Við vonumst til að fá góðan fjölda til að taka undir með okkur í þessum málstað." Á fimmtudaginn verður efnt til meðmæla á Austurvelli.

"Við erum svolítið að gefa boltann á stjórnmálaflokkana," segir Sigurður. "Ég held við séum nefnilega öll sammála um hvert við viljum stefna en erum að leita eftir því að stjórnmálamennirnir setji sína stefnu skýrt fram."

Í lokin segir Sigurður að ljóst sé að miklu meiri peninga þurfi að setja inn í háskólastigið. "Við stöndum öðrum Norðurlandaþjóðum nokkuð langt að baki í þessum málum. Í síðustu samantekt kom í ljós að Ísland eyddi 1,1% af vergri þjóðarframleiðslu í háskólastigið en hinar Norðurlandaþjóðirnar 1,6-1,9%. "Allar þjóðir eru að bæta um og gefa í og það verðum við svo sannarlega að gera líka. Ef við höldum ekki áfram að sækja fram þá stöðnum við og stöðnun jafngildir afturför í þessum málum."

Í hnotskurn
» Stúdentar gera kröfu um: Þekkingarþjóðfélag. Hærra þekkingarstig skilar arði til samfélagsins.
» Jafnrétti til náms. Til að nýta mannauð þjóðarinnar verður að tryggja jafnan aðgang að háskólanámi.
» Nýsköpun. Til að þekkingin skili sem mestum arði þarf að hlúa að hátækni- og nýsköpunarfyrirtækjum.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir þátt sinn í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
TIL SÖLU SVARTIR SCHNAUZER HVOLPAR
Til sölu svartir standard schnauzer hvolpar. Tegund sem fer ekki úr hárum. HRFÍ-...
Glæsilegt sumarhús í Borgarfirði til leigu
Glæsilegt heilsárshús til leigu 11km norður af Borgarnesi. Stutt í frábærarar ná...
Lightroom námskeið 11.og 13. júní 2012
Grunn námskeið í Lightroom. Kennd verða allir helstu verkferlar og á helstu aðge...
Nýleg springdýna 153 cm. á breidd.
HEFUR VERIÐ Í GEYMSLU, SEM ÞARF AÐ LOSA FLJÓTLEGA. FÆST Á AÐEINS 10.000 UPPL....
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
12834 stofnstígur útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...