Vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra

mbl.is/Júlíus

Landssamband lögreglumanna telur vinnuumhverfi lögreglumanna sífellt hættulegra. Á síðustu vikum hafa komið upp tvö tilvik þar sem lögregla hefur þurft að hafa afskipti af hættulegum brotamönnum með hlaðin skotvopn en við framkvæmd þeirra starfa geta lögreglumenn verið í augljósri hættu.

Í tilkynningu kemur fram að Landssamband lögreglumanna hefur í mörg ár barist fyrir því að starfsumhverfi lögreglumanna verði bætt og þannig dregið úr þeirri hættu sem felst í framkvæmd lögreglustarfa. Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur sýnt málinu skilning og í samvinnu við Landssamband lögreglumanna viljað leita leiða til að bæta starfsskilyrði lögreglu.

Á síðari hluta síðasta árs sendi Landssamband lögreglumanna Birni Bjarnasyni, dóms- og kirkjumálaráðherra, skýrslu þar sem gerð var grein fyrir óviðunandi vinnuumhverfi lögreglumanna og óskaði LL eftir að ráðherra beitti sér fyrir að starfsumhverfi lögreglumanna yrði bætt. Sambandið fór þess meðal annars á leit að skoðað yrði hvort ekki þætti nauðsynlegt að herða refsingar vegna hótana og ofbeldis í garð lögreglumanna, koma á fót sérstöku áfallateymi til aðstoðar lögreglumönnum vegna erfiðra verkefna auk annarra úrræða sem líkleg væru til að ná árangri.

Það er Landssambandi lögreglumanna sérstakt ánægjuefni að Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, hefur upplýst sambandið um að hann hyggist á yfirstandandi þingi leggja fram lagabreytingatillögu þess efnis að refsingar vegna ofbeldis í garð lögreglumanna og samsvarandi stétta verði hertar verulega, að sett verði inn sérstakt ákvæði í almenn hegningarlög nr. 19/1940 þar sem refsivert verði að tálma því að lögreglumenn gegni skyldustörfum sínum auk þess sem lagt verði til að settur verði á fót vinnuhópur með það verkefni að gera tillögur að verklagsreglum um rannsókn mála er varða ofbeldi gegn opinberum starfsmönnum. Verði þær lagabreytingatillögur að veruleika liggur fyrir að um verður að ræða stór tímamót í réttindabaráttu lögreglumanna og miklar líkur á að starfsumhverfi lögreglumanna muni batna verulega.

Að mati LL eru lagabreytingatillögur þessar í takt við aðrar þær breytingar innan lögreglu sem dómsmálaráðherra hefur staðið fyrir frá því að hann tók við embætti. Meðal annars hefur ráðherra staðið fyrir bættri vitnavernd lögreglumanna, fjölgað stöðugildum í lögreglu auk þess sem ákveðið hefur verið að fjölga nýnemum við Lögregluskóla ríkisins um allt að 50% með það að markmiði að fjölga fagmenntuðum lögreglumönnum. Þá stendur til að setja á fót áfallateymi sérfræðinga til aðstoðar lögreglumönnum í kjölfar erfiðra verkefna. Landssamband lögreglumanna fagnar öllum þessum úrbótum enda mikilvægt fyrir samfélagið allt að lögregla ásamt öðrum fulltrúum valdstjórnar búi við öruggt vinnu- og starfsumhverfi, að því er segir í tilkynningu frá Landssambandi lögreglumanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir þátt sinn í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Skoda Oktavia til sölu
Skoda Oktavia station bíll, árgerð 2005 til sölu. Bíllinn er keyrður um 130.000 ...
Bátar og útgerðarvörur á Haninn.is
Strandveiðibátar, skemmtibátar, nýr og notaður búnaður og útgerðarvörur. Fylgstu...
Til sölu Coleman Bayside árgerð 2001
Til sölu Coleman Bayside árgerð 2001... Toppurinn í fellihýsum ... King size rúm...
Sumarhúsalóðir í Vaðnesi
Til sölu fallegar sumarhúsalóðir í kjarrivöxnu landi Vaðness í Grímsnes- og Gra...
 
Breyting á aðalskipulagi norðurþings
Tilkynningar
Norðurþing Skipulags- og bygg...
Aðalfundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Félag skipstjórnarmanna ...
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Aðalfundur lögfræðingafélags íslands

Aðalfundur Lögfræðingafélags Íslands ve...