Ríkisendurskoðun segist standa við skýrslu sína um Umhverfisstofnun

Ríkisendurskoðun telur sig hafa unnið skýrslu sína um Umhverfisstofnun af heilindum og samviskusemi og án þess að láta annarleg eða ómálefnaleg sjónarmið hafa áhrif á niðurstöður sínar, segir m.a. í tilkynningu frá Ríkisendurskoðun í dag vegna gagnrýni Davíðs Egilsonar, forstjóra Umhverfisstofnunar, á stjórnsýsluúttekt um stofnunina.

Í tilkynningunni frá Ríkisendurskoðun segir:

„Davíð Egilson, forstjóri Umhverfisstofnunar, hefur í fréttatilkynningu, dagsettri 11. október 2006 gert „verulegar athugasemdir við aðferðir og framkvæmd“ stjórnsýsluúttektar Ríkisendurskoðunar á Umhverfisstofnun, svo að vitnað sé í fréttatilkynninguna. Í tilefni þess vill Ríkisendurskoðun koma eftirfarandi sjónarmiðum á framfæri.

Ríkisendurskoðun starfar á vegum Alþingis og hefur það meginhlutverk að annast eftirlit með fjárreiðum og rekstri ríkisins. Í lögum um stofnunina er kveðið á um að hún sé „engum háð í störfum sínum“. Ríkisendurskoðun berst árlega fjöldi beiðna um stjórnsýsluúttektir á stofnunum og fyrirtækjum ríkisins, ýmist frá forstöðumönnum þeirra, ráðuneytum eða Alþingi. Stofnunin metur hverju sinni hvort efni og ástæður séu til slíkra úttekta. Ef ákveðið er að ráðast í úttekt ákveður stofnunin hins vegar endanlegt viðfangsefni hennar og hvernig að henni er staðið. Af þessu leiðir að stofnanir, ráðuneyti eða Alþingi geta ekki beðið um skýrslur af tiltekinni gerð, eins og Davíð Egilson virðist álíta þegar hann segir: „Meginviðfangsefni Ríkisendurskoðunar átti að vera að greina hvort nauðsynlegt fjármagn hafi fylgt auknum verkefnum sem lögð hafa verið á stofnunina. Úttekt Ríkisendurskoðunar beindist hins vegar fyrst og fremst að öðrum atriðum...”

Í framhaldi af þessu og öðrum ummælum Davíðs Egilsonar skal áréttað að samkvæmt 9. gr. laga um Ríkisendurskoðun felst stjórnsýsluendurskoðun í því „að kanna meðferð og nýtingu ríkisfjár, hvort hagkvæmni og skilvirkni sé gætt í rekstri stofnana og fyrirtækja í eigu ríkisins og hvort gildandi lagafyrirmælum sé framfylgt í þessu sambandi.“ Í greinargerð með frumvarpi laga um Ríkisendurskoðun kemur einnig fram að stjórnsýsluendurskoðun taki „ekki aðeins til einstakra þátta stjórnunar heldur einnig skipulags, stjórnkerfis og rekstrarlegra þátta í heild sinni.“ Ríkisendurskoðun telur að þessum sjónarmiðum hafi verið fylgt þegar skýrslan um Umhverfisstofnun var samin. Ríkisendurskoðun telur einnig að forstjóra Umhverfisstofnunar hafi strax í upphafi verið gerð munnlega grein fyrir því hvað felist í stjórnsýsluendurskoðun og sömuleiðis fyrir verkáætlun um gerð áðurnefndrar skýrslu. Forstjóranum mátti því vera ljóst að skýrslan kæmi ekki eingöngu til með að snúast um það hvort nauðsynlegt fjármagn hafi fylgt auknum verkefnum sem lögð hafa verið á stofnunina.

Davíð Egilson víkur að því í upphafi skrifa sinna um skýrslu Ríkisendurskoðunar að „tilvitnanir séu ekki rétt eftir hafðar þrátt fyrir óskir um leiðréttingar“ og í lok þeirra ræðir hann um „alvarlegar staðreyndavillur“ sem Ríkisendurskoðun hafi dregið ályktanir af. Ekki eru þó nefnd dæmi um slíkar rangfærslur í fréttatilkynningu Umhverfisstofnunar. Í tengslum við þetta skal tekið fram að Umhverfisstofnun gafst kostur á að lesa skýrslu Ríkisendurskoðunar í drögum og gera athugasemdir við textann og þau gögn sem hann er byggður á. Ríkisendurskoðun telur að tekið hafi verið tillit til allra réttmætra athugasemda og vísar því á bug að endanlegar niðurstöður séu dregnar af röngum eða ónákvæmum upplýsingum.

Ríkisendurskoðun hefur skilning á því að viðhorf fólks til skýrslna stofnunarinnar geta verið mismunandi og að ekki sé sjálfgefið að allir séu alltaf fullkomlega sammála því sem þar kemur fram. Ríkisendurskoðun telur sig hins vegar hafa unnið skýrslu sína um Umhverfisstofnun af heilindum og samviskusemi og án þess að láta annarleg eða ómálefnaleg sjónarmið hafa áhrif á niðurstöður sínar. Af þessum sökum hlýtur Ríkisendurskoðun að standa við skýrsluna og þær niðurstöður og tillögur sem þar koma fram.

Í lokin vill Ríkisendurskoðun taka fram að hún leitast jafnan við að hafa góð samskipti við ríkisstofnanir í viðleitni sinni til að auka hagkvæmni og skilvirkni í ríkisrekstri. Stofnunin harmar því að til þessara orðaskipta hennar við Umhverfisstofnun hafi komið.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Hyundai Sonata
Til sölu Hyundai Sonata TDI 2.0 sjálfs. árg 2007 ekinn 90.Þ. leðursæti.Uppl í s....
Opel Astra Caravan '00
Ekinn 163 þús., skoðaður 2013. 1.6l vél og sjálfskiptur. Nýbúið að skipta um tím...
Kvistir
Kvistir Sérsmíðaðir kvistir á þök. Uppsetning tekur ...
HYMER FEELING 430 - Létt og meðfærilegt hjólhýsi
HYMER Feeling 430 eru með fullkomnustu smá-hjólhýsum á markaði. Hymer eru eins...
 
Auglýsing byggðakvóti

Auglýsing vegna úthlutunar byggðakvó...
Verkefnisstjóri - stofnun vigdísar finnbogadóttur
Háskólakennsla
Verkefnisstjóri Stofnun Vigdísar Finnb...
Útboð hólmavíkurhöfn

STRANDABYGGÐ Útboð Hólmavíkurhöfn...
Teacher, nautical education
Grunn-/framhaldsskóla
Lofoten Maritime College Norway POSI...