Samruni ógnar hagsmunum neytenda

Talsmaður neytenda, Gísli Tryggvason, telur að samruni MS, Norðurmjólkur og Osta- og smjörsölunnar auk hugsanlega Kaupfélags Skagafjarðar, samkvæmt fréttum, muni með alvarlegum hætti brjóta gegn hagsmunum neytenda. Sömuleiðis verði að telja slíkan samruna til þess fallinn að leiða til atferlis sem brjóti gegn réttindum neytenda. Leggur hann til að Alþingi samþykki þegar í stað breytingu á lögum sem komi í veg fyrir samruna af því tagi sem fyrirhugaður er. Með því að afnema undanþágu búvörulaga frá samkeppnislögum, sem heimilar samruna afurðastöðva í mjólkuriðnaði, má afstýra yfirvofandi einokun í mjólkuriðnaði sem myndi draga mjög úr samkeppni í greininni. Tillaga hans byggist á því að samruni sé - ólíkt öðrum frávikum frá samkeppnislögum sem búvörulög heimila - að jafnaði óafturkræfur nema lög standi til ógildingar.

Talsmaðurinn bendir jafnframt á að fordæmi séu fyrir slíkum skjótum afskiptum löggjafans að gefnu sérstöku tilefni sbr. viðbrögð löggjafans við fyrirhugaðri yfirtöku á tilteknum sparisjóði.

Hann tekur fram að embættið taki að jafnaði ekki að eigin frumkvæði afstöðu í málum sem hafa verið til umfjöllunar hjá öðrum eftirlitsaðilum sem hann hefur ekki fengið til umsagnar. Þar sem umræddar fréttir lúta hinsvegar að yfirvofandi samruna, gangi þvert á nýtt og ítarlega rökstutt álit Samkeppniseftirlitsins og feli í sér hættu á óafturkræfum breytingum sem eru til þess fallnar að leiða til mjög skaðlegra afleiðinga fyrir neytendur telur hann eðlilegt að bregðast við með framangreindum hætti.

Í hnotskurn
» Einokun í mjólkuriðnaði myndi draga úr samkeppni á þessu sviði og stefna hagsmunum neytenda í verulega hættu að mati talsmanns neytenda, Gísla Tryggvasonar.
» Talsmanni neytenda ber skv. 1. mgr. 6. gr. laga nr. 62/2005 um Neytendastofu og talsmann neytenda að standa vörð um hagsmuni og réttindi neytenda og stuðla að aukinni neytendavernd.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi fyrir þátt sinn í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BEAGLE HVOLPAR UNDAN VEL ÆTTUÐUM FORELDRUM
Beagle hvolpar undan vel ættuðum foreldrum eru að leita að góðum heimilum. Verða...
Haraldur Guðni Eiðsson er fertugur í dag
Haraldur verður að heiman á afmælisdaginn. Hann afþakkar blóm og gjafir en biður...
Múrvél
Til sölu Múrvél lítið notuð verð 700.000 kr sími 8919193...
Flott sjónvarp til sölu!
29 tommu túbu sjónvarp frá Sony til sölu. Það er 8 ára gamalt og í góðu lagi. T...
 
Lausar kennarastöður
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar kennarastöður við leik- og gru...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Aðalfundur félags háskólakvenna

Félag háskólakvenna og kvenstúdenta Aðal...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...