Mótmælin halda áfram

Frá hvalskurðinum í gær

Frá hvalskurðinum í gær Ómar

Mótmæli halda áfram að streyma inn til íslenskra stjórnvalda vegna þeirrar ákvörðunar að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni. Þá hafa Morgunblaðinu borist þúsundir skipulagðra mótmælabréfa í gegnum dýraverndunarsamtökin IFAW þar sem íslenskir ráðamenn eru hvattir til að láta af veiðunum.

Í blaðinu í gær birtist frétt þess efnis að hvalveiðar Íslendinga í atvinnuskyni hefðu ráðið því að sjávarútvegsráðstefnan Groundfish Forum verður ekki haldin hér á landi að ári, heldur í Noregi. Að mati Einars K. Guðfinnssonar sjávarútvegsráðherra er fréttin mótsagnakennd. "Hún fjallar annars vegar um að það hafi ráðið úrslitum um að þessi ráðstefna var ekki haldin hér á landi að við værum að byrja þessar veiðar, en síðar er í fréttinni sagt frá því að ráðstefnan verði haldin í Noregi, sem er eins og allir vita öflugt hvalveiðiland, sem hefur stundað hvalveiðar undanfarin 10 ár í margfalt meiri mæli en við Íslendingar erum að gera," segir hann.

Skýla sér á bak við veiðarnar

"Í raun og veru finnst mér fréttin staðfesta það að hvalveiðar í sjálfu sér hafi ekki þessi áhrif á ferðaþjónustu sem margir óttuðust til lengri tíma litið. Skammtímaáhrifin geta verið einhver, en til lengri tíma litið eru þau lítil sem engin. Ella hefðu menn þá væntanlega ekki ákveðið að halda þessa ráðstefnu hjá hvalveiðiþjóðinni Norðmönnum. Hins vegar geri ég ráð fyrir að við munum fá fleiri fréttir af þessu tagi þar sem menn skýli sér á bak við hvalveiðarnar, ef þeir ná ekki þeim árangri í viðskiptum, sem þeir hefðu kosið. Þetta er ekki fyrsta fréttin sem berst um slíkt og ég á ekki von á því að þessi frétt verði sú síðasta. Við þekkjum það frá fyrri tímum að menn hafa skýlt sér á bak við hvalveiðar með svipuðum hætti," segir Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegsráðherra.

Umhverfisráðherra Svíþjóðar kallar sendiherra á sinn fund

Þá bárust í gær fréttir af því að Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra Íslands í Svíþjóð, hefði verið boðaður á fund umhverfisráðherra landsins, Andreas Carlgren, og honum verið afhent formleg mótmæli við þeirri ákvörðun Íslendinga að hefja hvalveiðar í atvinnuskyni.

Að mati Baldvins Jónssonar, framkvæmdastjóra verkefnisins Sjálfbært Ísland í Bandaríkjunum, geta veiðarnar haft áhrif á sölu íslenskra landbúnaðarafurða þar í landi. "Við heyrðum í gegnum búðirnar að fólk er að koma í stórum stíl og vekja athygli á því að nú hafi Íslendingar hafið hvalveiðar á ný. Búðirnar eru tvístígandi í málinu, því að það eru auðvitað ekki bændur sem taka þessa ákvörðun. Við vonum að þeir njóti sannmælis fyrir það."

"Það sem er óþægilegast er að við höfum verið að kynna Ísland sem náttúruperlu og reynum að hafa forystu á sviði umhverfismála, hvort sem eru sjálfbærir búskaparhættir eða sjálfbærar fiskveiðar, eða orkumál," segir Baldvin.

Feitari og sverari en fyrsti hvalurinn

STÓR hópur gesta kom til að fylgjast með því er hvalveiðiskipið Hvalur 9 kom með 23 metra langa langreyðarkú að landi í hvalstöðinni í Hvalfirði skömmu eftir klukkan 14 í gær. Ekki var mikið um mótmælendur að sögn starfsmanns Hvals hf. Hvalurinn var talsvert fitumeiri og sverari en fyrsta langreyðurin sem áhöfnin á Hval 9 skutlaði um helgina. Nokkur bræla var á veiðislóð en hvalurinn var skotinn suðvestur af Garðskaga um klukkan 14 á mánudag. Að sögn Kristjáns Loftssonar, forstjóra Hvals hf., var um að ræða fimmtíu ára gamlan hval og segist Kristján þess fullviss að markaður sé fyrir afurðirnar af honum. Um útflutningsverðmæti er þó ekki hægt að segja fyrr en að loknum efnarannsóknum vegna kvikasilfurs og PCB og fleiri hugsanlegra efna í kjötinu en þær rannsóknir munu taka 3-4 mánuði að sögn Kristjáns. Vonir voru bundnar við að hægt væri að ljúka hvalskurðinum á planinu í Hvalfirði fyrir miðnætti í gær.

Um 9 þúsund bréf bárust

UM NÍU þúsund mótmælabréf gegn hvalveiðum Íslendinga bárust Morgunblaðinu í gær með tölvupósti gegnum dýraverndunarsamtökin IFAW. Bréfin innihalda meira og minna sama texta og bréf sem samtökin hafa sent forsætisráðherra og sendiráðum Íslands. Eru þau undirrituð af fólki sem lýst hefur sig andsnúið hvalveiðum á heimasíðu samtakanna.

Í textanum segir meðal annars að hvalveiðarnar skaði alþjóðlegt orðspor Íslendinga og stuðli að útrýmingu dýrategundarinnar. Þá segir að hvalveiðar í atvinnuskyni séu fornaldarlegur og tilgangslaus atvinnuvegur og muni einungis skaða Ísland í efnahagslegu tilliti. Í textanum er einnig fullyrt að langreyðurin sé í útrýmingarhættu en þegar hafa verið skotnir tveir hvalir af þeirri tegund. Klykkt er út með því að Íslendingar séu upp til hópa meðvitaðir um umhverfismál og að veiðarnar séu sérsniðnar að hagsmunum ákveðins hóps en ekki þörfum íslenskra borgara.

Í hnotskurn
» Hvalaafurðir Hvals hf. verða frystar hjá HB Granda á Akranesi.
» Talsverður hópur gesta kom til að fylgjast með hvalskurðinum í gær en engir mótmælendur voru á staðnum að sögn starfsmanns Hvals hf.
» Veiðiskipið Hvalur 9 hélt aftur út til veiða skömmu eftir löndun í Hvalfirði í gær.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.

Dómar fallnir í Straumsvíkurmálinu

09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Taka undir vantraustsyfirlýsingu

Rakel Sigurgeirsdóttir, formaður Samstöðu í Reykjavík
06:16 Stjórn Samstöðu-Reykjavík tekur undir vantraustsyfirlýsingu stjórnar Samstöðu flokks lýðræðis og velferðar gagnvart núverandi ríkisstjórn. Jafnframt lýsum við yfir stuðningi við nýhafna undirskriftarsöfnun grasrótarinnar þar sem lýst er vantrausti á ríkisstjórnina. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Kæra úrskurðinn

Menn á vegum Sérstaks saksóknara bera kassa inn í höfuðstöðvar Samherja.
05:30 „Aðgerðir Seðlabankans hafa haft slæm áhrif og skaðað orðspor okkar,“ sagði Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, um húsleitina sem Seðlabankinn lét gera hjá fyrirtækinu í lok mars sl. Samherji hf. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Til sölu Hankook dekk
225/75 R16 ca hálfslitin. Verð 30 þús. Uppl. í síma 898 4875...
Cheapest car rental in Reykjavik, Iceland
We are the cheapest Iceland car rental offering good solid cars at the lowest po...
HONDA CR-V VARAHLUTIR 1998-2001+Hyunday Tuson hedd
Á til notaða varahluti í Honda cr-v 1997-2001 td. drif toppgrind,hedd og margt s...
Húsnæði með bílskúr óskast í sumar.
Húsnæði með bílskúr óskast í júní til ágúst, í Rvík - Hafnarfj. 3-5 svefnherb., ...
 
Breyting á deiliskipulagi á húsavík
Tilkynningar
Norðurþing Skipulags- og bygg...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...