Ung vinstri - græn álykta um skólastarf

Stjórn Ungra vinstri – grænna tekur undir málflutning Reynis Harðarsonar og annarra sem mótmælt hafa óviðeigandi starfsemi Þjóðkirkjunnar innan ýmissa grunnskóla landsins. Þetta kemur fram í ályktun stjórnar félagsins.

„Er hér átt við hina svokölluðu „Vinaleið”, sem að sögn er kristileg sálgæsla sem fram fer í opinberum skólum. Ung vinstri – græn krefjast þess að gætt sé hlutleysis í öllu starfi grunnskóla landsins. Ung vinstri-græn lýsa sig því algjörlega mótfallin trúboði í skólum. Að mati stjórnar Ungra vinstri-grænna er hin svokallaða „Vinaleið” ekkert annað en trúboð þó reynt sé að breiða yfir það með því að tala um sálgæslu. Ekkert trúfélag á erindi með trúboð í grunnskóla landsins.

Starfsemi hinnar svokölluðu „Vinaleiðar” er þar að auki innt af höndum djáknum sem eru fulltrúar þjóðkirkjunnar og kristilegar trúar. Sálfræðingar og félagsráðgjafar eru mun betur í stakk búnir til að sinna sálgæslu í grunnskólum enda hafa þeir sérfræðimenntun á þessu sviði. Það er ólíðandi að grunngildi eins og jafnrétti og hlutleysi í skólastarfi skuli látin víkja til hliðar vegna offramleiðslu á guðfræðingum sem vantar atvinnu.

Ung vinstri – græn vilja einnig ítreka þá skoðun sína að kristinfræðikennsla í grunnskólum er einhliða trúarbragðafræðsla og því tímaskekkja í nútímasamfélagi þar sem jafnrétti á að ríkja á öllum sviðum. Í stað kristinfræðikennslu ættu skólar að veita fræðslu um siðfræði, almenn mannréttindi og almenna trúarbragðafræðslu," að því er segir í ályktun.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert