Óbætanlegt tjón Náttúrufræðistofnunar
silja@mbl.is
ÓMETANLEG og óbætanleg náttúruverðmæti fóru forgörðum þegar eigendur frystiklefa, sem Náttúrufræðistofnun Íslands hefur verið með á leigu, ákváðu að farga öllu innihaldi klefans að stofnuninni óspurðri. Var innihaldinu fargað sökum þess að rafmagn fór af frystiklefanum sl. vor með þeim afleiðingum að kjöt sem þar var geymt úldnaði. Ekki er vitað hvort um bilun hafi verið að ræða eða rafmagnið verið tekið af vísvitandi.
Að sögn Jóns Gunnars Ottóssonar, forstjóra Náttúrufræðistofnunarinnar, hefur stofnunin haft 8-10 rúmmetra frystiklefa á leigu sl. 16 ár þar sem geymd hafa verið meira en tvö þúsund fuglasýni, smáhvalur og ýmis minni sýni. Meðal þeirra fugla sem í geymslunni voru má nefna sex erni og fimmtíu fálka, auk ýmissa sjaldgæfra flækingsfugla og afar verðmætrar seríu af teistum sem eru fuglar af svartfuglsætt. Segir hann sum sýnanna allt að þrjátíu ára gömul og því nær útilokað að hægt verði að bæta það tjón sem orðið hafi, en fjárhagslega nemur tjónið tugum ef ekki hundruðum milljóna króna.
Tildrög þess að sýnum NÍ var fargað má rekja til þess að skipt var um eigendur frystiklefaleigunnar fyrir nokkru. Að sögn Jóns Gunnars hefur hann nú komist að því að Heilbrigðiseftirlitið hafði afskipti af nýju eigendunum í maí sl. vegna ábendingar þess efnis að þeir hefðu ekki starfsleyfi. "Þeim var þá tjáð af eigendum að þeir hefðu í hyggju að loka frystigeymslunni og myndu láta alla leigjendur vita," segir Jón Gunnar, en starfsmenn NÍ fréttu fyrst af málinu í síðasta mánuði þegar þeir áttu erindi í frystiklefann. "Okkur er tjáð af eigandanum að þetta hafi allt úldnað og því verið hent á haugana," segir Jón Gunnar, en bendir á að mörg verðmæt sýni hefðu ekki verið ónýt þó frost færi úr þeim. Nefnir hann í því samhengi bæði dýrabein og arnarhami.
Aðspurður segir Jón Gunnar stofnunina vera að hugsa sinn gang en ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort málið verður kært til lögreglunnar.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
- Mótmæla með götulistaverkum
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 16. nóvember 2006, Innlent Allt galtómt þegar starfsmenn NÍ komust í frystigeymslurnar
- Mánudagur, 30. júlí 2007, Innlent Nýtt náttúrufræðihús
- Mánudagur, 3. apríl 2006, Innlent Náttúrufræðistofnun falin úttekt á brunasvæðunum
- Fimmtudagur, 13. apríl 2006, Innlent Umhverfisráðherra skoðaði sinubrunasvæðið á Mýrum
- Fimmtudagur, 11. maí 2006, Innlent Bæjarstjórn Kópavogs samþykkir viljayfirlýsingu um kaup á landi Gusts
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu
Grunn-/framhaldsskóla
Lausar stöður við Grunnskóla Hornaf...




































