Starfshópur kannar möguleika á stækkun friðlands í Þjórsárverum
Úr Þjórsárverum mbl.is/Brynjar Gauti
Í skipunarbréfi nefndarinnar segir að framkvæmdir í nágrenni núverandi friðlands og við jaðra þess frá því að friðlýsing var ákveðin árið 1979 hafi vakið upp spurningar um æskilegar breytingar á mörkum þess. Starfshópnum er því falið að fara yfir málefni friðlandsins, meta stöðuna og ræða við sérfræðinga og hagsmunaaðila á svæðinu og gera tillögur um stækkun friðlandsins svo og hugsanlegar breytingar aðrar á mörkum friðlandsins og einstökum atriðum friðlýsingarinnar. Þess er óskað að starfshópurinn skili tillögum til ráðherra fyrir 1. febrúar 2007.
Í tilkynningu frá umhverfisráðuneytinu segir, að Þjórsárver séu meðal helstu náttúrugersema á Íslandi og hafi mikið verndargildi í alþjóðlegu samhengi. Svæðið sé víðáttumesta gróðurvin miðhálendisins auk þess sem þar er að finna mestu varpstöðvar heiðargæsarinnar í heimi. Hluti Þjórsárvera hafi verið friðlýstur frá 1981 og verin hafa verið á skrá Ramsar-samþykktarinnar frá 1990, eitt þriggja slíkra svæða hér á landi. Markmið Ramsar-samþykktarinnar sé að stuðla að verndun og skynsamlegri nýtingu votlendissvæða í heiminum, sérstaklega sem lífsvæði fyrir votlendisfugla. Umhverfisráðherra hafi lýst þeirri skoðun sinni að stækka beri friðlandið og láta af frekari orkunýtingaráformum á svæðinu.
Starfshópinn skipa Árni Bragason, formaður starfshópsins, Egill Sigurðsson, tilnefndur af Ásahreppi, Þorgils Torfi Jónsson, tilnefndur af Rangárþingi ytra og Gunnar Örn Marteinsson, tilnefndur af Skeiða- og Gnúpverjahreppi.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 22. febrúar 2007, Innlent Ætlun umhverfisráðherra að stækka friðlandið í Þjórsárverum
- Föstudagur, 13. janúar 2006, Innlent Náttúruverndarsamtök Íslands: Verndun Þjórsárvera ódýr kostur
- Þriðjudagur, 10. október 2006, Innlent Alþingi lætur gera úttekt á kjörum einstæðra og forsjárlausra foreldra
- Mánudagur, 2. október 2006, Innlent Sameiginlegar áherslur stjórnarandstöðunnar
- Laugardagur, 28. apríl 2007, Innlent Skora á iðnaðar- og fjármálaráðherra að lýsa stuðningi við stækkun friðlandsins í Þjórsárverum
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































