Atkvæði greidd um fjárlagafrumvarpið

Greidd voru atkvæði um einstakar greinar fjárlagafrumvarpsins í dag.

Greidd voru atkvæði um einstakar greinar fjárlagafrumvarpsins í dag. mbl.is/ÞÖK

Atkvæðagreiðsla um einstakar greinar fjárlagafrumvarpsins fyrir árið 2007 eftir aðra umræðu stendur nú yfir á Alþingi. Samkvæmt tillögum meirihluta fjárlaganefndar er gert ráð fyrir því að ríkissjóður verði rekinn með um 9,6 milljarða króna afgangi á næsta ári. Stjórnarandstaðan sat hjá í atkvæðagreiðslu um tillögur stjórnarflokkanna en tillögur frá stjórnarandstöðunni um 7,5 milljarða króna aukin framlög til lífeyristrygginga voru felldar.

Fulltrúar þingflokka tóku til máls um atkvæðagreiðsluna áður en hún hófst. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, sagði að atkvæðagreiðslan væri lýsandi fyrir það sem gerðist, þegar efnahagslífið fengi að blómstra og haldið væri fast um ríkisfjármálin. Gert væri ráð fyrir rúmlega 9 milljarða afgangi þrátt fyrir að framlög væru m.a. aukin til heilbrigðiskerfis og menntakerfis og ríkið þyrfti að taka á ný og ófyrirséð útgjöld vegna brotthvarfs varnarliðsins. Árni sagði að þetta væri gott og ábyrgt fjárlagafrumvarp og tillögur stjórnarmeirihlutans væru góðar; þeir sem ekki sæju það væru blindir.

Einar Már Sigurðarson, þingmaður Samfylkingarinnar, sagði að fjárlagafrumvarpið bæri með sér að kosningar væru á næsta ári og því væri aðeins um bráðabirgðafjárlög að ræða. Sagði Einar Már, að ábyrgðarleysi ríkisstjórnarflokkanna í ríkisfjármálum hefði lengi verið áberandi en nú keyrði um þverbak. Þá sagði Einar Már, að lítið mark væri takandi á tillögum meirihluta fjárlaganefndar. Sagði hann að stjórnarandstaðan myndi sitja hjá í atkvæðagreiðslunni um tillögur stjórnarflokkanna enda væru þær óábirgar.

Jón Bjarnason, þingmaður VG, sagði að í fjárlagafrumvarpinu væri margt gott, sem þingmenn flokksins hefðu tekið undir. Hins vegar væri einnig annað, sem væri miður og þannig skorti enn fjármagn til allmargra heilbrigðistofnana. Benti Jón á, að stjórnarandstaðan hefði sameinast um eitt mál, stórátak í lífeyristryggingum elli- og lífeyrisþega.

Guðjón A. Kristjánsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, sagði að tillögur stjórnarandstöðunnar um lífeyristryggingar bættu verulega hag aldraðra og öryrkja. Sagði Guðjón að ríkisstjórnin hefði á undanförnum árum fellt allar tillögur stjórnarandstöðunnar við afgreiðslu fjárlaga.

Birkir Jón Jónsson, þingmaður Framsóknarflokks og formaður fjárlaganefndar, sagði að verið að skila 9,6 milljarða afgangi þrátt fyrir hækkun framlaga til mennta- og heilbrigðismálum en engar tillögur kæmu fram frá stjórnarandstöðunni í þeim efnum. Sagði Birkir, að í ljósi sterkrar stöðu ríkissjóðs væri áfram hægt að standa vörð um velferðarkerfið, greiða niður skuldir ríkissjóðs og auka kaupmátt almennings. Þannig yrðu skattleysismörk og barnabætur hækkaður á næsta ári og tekjuskattur og virðisaukaskattur á matvælum yrði lækkaður. Einnig væri frítekjumark lífeyrisþega og aldraðra hækkað. „Ég er mjög stoltur af fjárlagafrumvarpinu," sagði Birkir.

Meðal tillagna frá meirihluta fjárlaganefndar var að hækka framlag til heiðurslauna listamanna um 4,8 milljónir í 48 milljónir. Pétur H. Blöndal, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, greiddi atkvæði gegn tillögunni og sagðist vera andvígur því að velja lítinn hóp listamanna og heiðra þá með þessum hætti á sama tíma og aðrir listamenn, sem ættu ekki síður heiður skilið, væru ekki á listanum. Nefndi Pétur sérstaklega Björk Guðmundsdóttur og sagði að hún ætti heiðurslaun skilin þótt ekki væri nema 1 krónu.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Laugavegur.

Misþyrmdi manni og skildi eftir

09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Ekkert „óþarfa jarðrask“ á Úlfarsfelli

Frá lagningu kaplanna á Úlfarsfelli í gær.
07:21 Nú er verið að leggja kapla frá tindi Úlfarsfells og niður í byggð því á tindinum ætlar Vodafone að reisa fjarskiptamöstur. Við framkvæmdina er m.a. notast við jarðýtu og eru kaplarnir plægðir ofan í svörðinn. Þó liggur vegur alla leið upp. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
PARSUN - UTANBORÐSMÓTORAR - GÆÐI Í GEGN
Eigum á lager á góðu verði eftirfarandi stærðir: 2,6 hp kr. 179.000 5 hp kr. ...
Fallegur Snyrti og Nuddbekkur-Verð : 69.000 Sterkur - Ódýr- Fallegur. 5 ára ábyrgð
www.simnet.is/eirikurs/nuddbord.html S: 8626194. Borð með baki til að hækka og ...
BÍLAR ÓSKAST Á SKRÁ
Bílalíf bílasala ... í bílum erum við sterkir! Skráðu bílinn þinn frítt hjá bila...
SÖLUSKOÐUN
Söluskoðanir bifreiða. Ertu að kaupa bíl? Láttu fagmenn greina ástand hans áður ...
 
Trjáplöntusala bjarkarholti mosfellsbæ

Trjáplöntusala Bjarkarholti 1, Mosfellsb...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...
Aðstoðarskólastjóri
Grunn-/framhaldsskóla
Blönduskóli Aðstoðarskólastjóri Staða...
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...