Ísland aðili að samstarfi Evrópuþjóða um fjarkönnun utan úr geimnum
Samkvæmt upplýsingum frá umhverfisráðuneytinu er megintilgangur EUMETSAT-samstarfsins sá, að þróa og reka gervihnetti til að vakta veður og afla gagna til að bæta veðurspár en ekki síður það að afla fjarkönnunargagna sem nýtist í margvíslegum öðrum tilgangi. Með aðild sinni fái Ísland beinan aðgang að myndrænum upplýsingum í hárri upplausn frá gervihnöttum EUMETSAT. Einnig fáist aðgengi að gagnabanka fjarkönnunarupplýsinga en hann hafi að geyma mikilvægar upplýsingar, m.a. um breytingar á yfirborði landsins, útlínum jökla og gróðurþekju sem og yfirborðshita sjávar og hafísútbreiðslu.
Til þessa hefur EUMETSAT einbeitt sér að rekstri fastra gervihnatta yfir miðbaug jarðar, svokallaðra Meteosat tungla, en vegna landfræðilegrar legu landins hefur ávinningur Íslands verið takmarkaður. Nú hefur EUMETSAT hafið rekstur hnatta á breytilegum sporbaugum um póla jarðar. Þeim fyrsta var skotið á loft í síðasta mánuði og gögn frá því tungli og öðrum sambærilegum sem komið verður á sporbaug um jörð á næstu árum koma Íslendingum að fullum notum.
Aðdraganda aðildar Íslands að EUMETSAT má rekja til ársins 1997 en þá skilaði nefnd á vegum umhverfisráðuneytisins tillögum um stefnu Íslands í fjarkönnun og kom með hugmyndir að uppbyggingu þekkingar og alþjóðlegs samstarfs á því sviði. Ríkisstjórnin ákvað síðan árið 2004 að leita eftir samstarfi við EUMETSAT í þessum efnum.
Samningurinn um aðild Íslands opnar aðgengi stofnana, rannsóknarsamfélagsins og annarra sem vinna með landfræðiupplýsingar að fjarkönnunargögnum bæði í rauntíma og eins að gagnbanka EUMETSAT. Það er Veðurstofa Íslands sem fer með framkvæmd samningsins fyrir Íslands hönd, en einfaldan móttökubúnað gagna má setja upp nánast hvar sem er.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 12. desember 2005, Innlent Samstarfsamningur Íslands og Veðurtunglastofnunar Evrópu
- Þriðjudagur, 20. febrúar 2007, Innlent Umhverfisráðherra vill að vísindaleg sjónarmið og rök ráði hjá ESB
- Miðvikudagur, 17. janúar 2007, Innlent Umhverfisráðherra varar við auknum olíuflutningum
- Miðvikudagur, 28. mars 2007, Innlent Samkomulag um að fjarlægja Wilson Muuga
- Miðvikudagur, 15. nóvember 2006, Innlent Ræða umhverfisráðherra á loftslagsráðstefnu SÞ í beinni vefútsendingu
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































