Nöfnin Malm og Aðils fengu ekki samþykki
Skráning nafna í mannanafnaskrá er háð vissum skilyrðum sem ekki eru nákvæmlega eins eftir því hvort um eiginnafn eða millinafn er að ræða. Í úrskurði nefndarinnar um nafnið Malm þótti nafnið t.a.m. brjóta í bága við íslenskt mál enda ekki dregið af íslenskum orðstofnum og ekki ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls. Þá sagði nefndin að ekki væri hefð fyrir nafninu og rithætti þess í málinu, en nöfn öðlast slíka hefð ef ákveðið margir Íslendingar hafa borið nafnið eða ef það hefur öðlast menningarhelgi, t.d. ef það hefur komið fram í alkunnum ritum. Tók nefndin fram að enginn Íslendingur hefði borið nafnið Malm.
Eiginnafninu Aðils var sömuleiðis hafnað og var tekið fram að það væri ættarnafn sem tekið hefði verið upp árið 1917 og að óheimilt væri að samþykkja skráð ættarnöfn sem eiginnöfn í mannanafnaskrá. Þar að auki tæki það ekki íslenska eignarfallsendingu.
Þá tók mannanafnanefnd fyrir beiðni um samþykki á kvenmannsnafninu Gull en taldi nefndin rétt að fresta afgreiðslu málsins til frekari skoðunar og gagnaöflunar.
Í hnotskurn
» Skilyrði þess að mögulegt sé að samþykkja nýtt eiginnafn í mannanafnaskrá er að finna í 5. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn. Þarf sérhvert skilyrðið að vera uppfyllt.» Nafn þarf að geta tekið íslenska eignarfallsendingu og hafa hefð í málinu, vera í samræmi við íslenskt málkerfi og ritað í samræmi við almennar íslenskar ritreglur nema hefð sé fyrir öðru. Þá skal nafn samræmast kyni nafnbera og má ekki vera þannig að það sé honum til ama.
Innlent »
Fimmtudagur, 24.5.2012
- Fagna samþykkt þjóðaratkvæðis
- Hannes kominn með undirskriftirnar
- Brotið gegn lögum án afleiðinga
- Beita þurfti klippum
- Undanúrslitum í Evróvisjón lokið
- ESB-viðræðurnar á fulla ferð
- Lýsing fagnar niðurstöðu
- Skipulögð aðför að framboðinu
- Íslandspóstur fékk skamman fyrirvara
- Jóhanna fundaði með Füle
- Seinni undanúrslit í kvöld
- Skýrslan lesin nánast orðrétt
- Bæjarfélögin áfram þjónustuð af Íslandspósti
- Bitnar einkum á konum
- Hamfaraskriða við Dyrhólaey
- Tómas Lemarquis í nýrri stórmynd
- „Ýmislegt að vinna með okkur“
- Persónulegar illdeilur á Bergþórshvoli
- Uppsagnir og hagræðing
- Byssumaður var leikari
- Gæsluvarðhald staðfest í Hæstarétti
- Þarf að bæta glerhandrið sem brotnaði
- Braut gegn 14 ára stúlku
- Lögmenn Annþórs gera athugasemdir
- Ók á ofsahraða og á lögreglubíl
- Gylfi ánægður með verðbólgulækkun
- Hæstiréttur sýknar Fylki
- Barn fann eiturlyf á leikskóla
- Samningar Lýsingar leigusamningar
- Eskja rafvæðir fiskimjölsverksmiðjuna
- Kaupa 12 eftirlitsmyndavélar
- Góður afli við Kolbeinsey
- Ferðamenn í aðgerð vegna beinbrota
- Kannast ekki við gjaldeyrisbrask með úr
- Agnes vígð 24. júní
- Áhrif bindandi úrskurða undir
- Verður þingað fram í júlí?
-
Kosning um viðræður óvanaleg
- Seldi Rolex úr fyrir skútuvarahlut
- Samherji kærir til Hæstaréttar
- Hraðakstur í Sigtúni
- Skrifuðu ekki undir með eigin hendi
- Þjóðaratkvæðagreiðsla í október
- Með 25 kannabisplöntur í Kópavogi
- Með ólíkindum að sleppa lifandi
- Kosinn formaður Félags SÞ á Íslandi
- Mikil starfsánægja og lítið atvinnuleysi
- „Skammarlegt lýðskrum“
- Féllu 40 metra niður í fjöruna
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 11. september 2007, Innlent Má ekki heita Valgard
- Mánudagur, 20. mars 2006, Innlent Mega heita Róman og Vápni
- Þriðjudagur, 12. september 2006, Innlent Tristana og Rikharður heimilað en Magnusi hafnað
- Laugardagur, 6. maí 2006, Innlent Mega heita Bil og Jenetta
- Þriðjudagur, 22. nóvember 2005, Innlent Millinafninu Valberg hafnað
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“
-
Logi: Föst leikatriði urðu okkur að falli
-
Guðjón: Fyrst og fremst meiri vilji
-
Magnús: Orðlaus yfir þessu marki
-
„Þetta færi hlýtur að rata á Youtube“
-
Zoran: Þetta var sex stiga leikur
-
Kristján: Þurfum að vinna okkur út úr þessu




































