Eyjafjarðarbraut rofin á um tíu metra kafla við Djúpadalsá

Stíflan sem brast í Djúpadalsá. Bærinn stóridalur efst til hægri.
Stíflan sem brast í Djúpadalsá. Bærinn stóridalur efst til hægri. mbl.is/Þórir Tryggvason

Um fjögurra til fimm metra skarð er komið í Eyjarfjarðarbraut sitthvoru megin við brúna yfir Djúpadalsá. Stendur brúin eins og eyja í miðju rofinu. Aurskriður féllu við bæinn Stóradal í Djúpadal upp úr klukkan átta í morgun og ollu miklu tjóni á túnum. Segir Heiðrún Árnadóttir, sem býr á Stóradal, að þetta séu einhverjar víðfeðmustu skriður sem þarna hafi fallið þau þrjátíu ár sem hún hefur búið á Stóradal.

Rétt neðan við bæinn var lón Djúpadalsvirkjunar, en það er nú horfið þar sem stíflan í ánni brast. Heiðrún sagði að ef vatnsveður héldi áfram næsta sólarhringinn „veit ég ekki hvort er vogandi að vera hérna“.

mbl.is/KG
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert