Mikið vatnstjón í húsum á Akureyri; vatnsveður það mikið að vegir fóru sundur

Mikið vatnsveður og leysingu gerði á Akureyri í gærkvöldi og …
Mikið vatnsveður og leysingu gerði á Akureyri í gærkvöldi og höfðu niðurföll í götum ekki undan og stífluðust þannig að vatn flæddi inn í nokkur hús. mbl.is/Skapti

Mikið vatnsveður og leysingu gerði á Akureyri í gærkvöldi sem varð til þess að vatn flæddi inn í kjallara á þremur parhúsum við Grenilund. Holræsakerfi bæjarins hafði ekki undan og þurfti slökkvilið Akureyrar að leggja tæplega kílómeters lögn af slöngum til að dæla vatni í burtu, segir í tilkynningu frá lögreglunni.

Mikið tjón varð af vatni í húsunum og voru fjöldi björgunarsveitarmanna, slökkviliðsmanna, lögreglumanna og starfsmenn Akureyrarbæjar ásamt íbúum önnum kafnir í mestalla nótt við björgunarstörf.

Þá grófst Hlíðarbraut í sundur við Glerárbrú en bráðabirgðaviðgerð lauk undir morgun. Súluvegur ofan Akureyrar fór fór einnig í sundur og þá fór vatn inn í kjallara í fleiri húsum án þess að tjón hlytist af. Veður fór að lagast undir morgun og fór þá vatnselgurinn að sjatna en björgunarmenn eru enn að störfum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert