Hvergi í Evrópu jafn mikil fólksfjölgun og á Íslandi

mbl.is/Jim Smart

Samkvæmt íbúaskrá þjóðskrár voru landsmenn 307.261 talsins hinn 1. desember síðastliðinn. Fólksfjölgun hefur verið óvenju mikil á árinu og annað árið í röð fjölgar íbúum um meira en 2% á einu ári. Frá 1. desember 2005 til 1. desember 2006 fjölgaði íbúum um rúmlega 2,6% samanborið við 2,1% árið áður. Jafn mikil fólksfjölgun hefur ekki orðið hér á landi frá því um miðbik sjöunda áratugarins. Í engu öðru Evrópulandi er fólksfjölgun jafn mikil og hér um þessar mundir. Undanfarin ár hefur fólksfjölgun í álfunni í heild verið um 0,2% og í einungis örfáum löndum Evrópu er árleg fólksfjölgun meiri en 1%.

Fram undir 1980 var mikil fólksfjölgun hérlendis nær eingöngu rakin til mikillar náttúrulegrar fjölgunar (þ.e. fæddir umfram dána). Lífslíkur jukust alla 20. öldina og í samanburði við önnur Evrópulönd hefur fæðingartíðni hér á landi verið há.

Við upphaf sjöunda áratugarins gat hver kona vænst þess að eignast fjögur börn á lífsleiðinni. Undanfarna ártugi hefur dregið úr frjósemi og um þessar mundir eignast konur hér á landi tvö börn um ævina að meðaltali, samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands.

„Þótt náttúruleg fólksfjölgun eigi enn talsverðan þátt í fjölgun íbúa hér á landi verður mikil fólksfjölgun undanfarin ár öðru fremur rakin til mikils aðstreymis fólks frá útlöndum. Frá 1. desember í fyrra til 1. desember í ár var fjöldi aðfluttra umfram brottfluttra tæplega 5.000. Á sama tíma voru fæddir umfram dána tæplega 2.600 talsins. Náttúruleg fólksfjölgun á árinu nam tæpu 0,9% en flutningsjöfnuður var 1,7%. Til samanburðar má geta þess að árið 1957 var fólksfjölgun hér á landi jafnmikil og í ár. Þá var náttúruleg fjölgun 2,5% en flutningsjöfnuður 0,4%," samkvæmt vef Hagstofu Íslands.

Erlendir ríkisborgarar á Íslandi 6% af heildarfjölda íbúa

Eins og fram hefur komið í útgáfum Hagstofu Íslands á árinu sem er að líða var meiri hluti þeirra einstaklinga sem fluttust til landsins erlendir ríkisborgarar. Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað mikið hér á landi undanfarin ár. Hlutfall þeirra af íbúum í heild er nú rétt 6%. Í þessu sambandi er þó rétt að hafa í huga að nokkur óvissa er um skráningu útlendinga í flutningum til og frá landinu. Þannig getur dregist að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir í þjóðskrá og að sama skapi geta liðið nokkrir mánuðir þar til einstaklingar sem flytjast af landi brott eru felldir úr íbúaskrá.

Fjölgun alls staðar nema á Vestfjörðum

Íbúum fjölgar nú á öllum landsvæðum nema á Vestfjörðum. Þar fækkaði íbúum um 1% á árinu (frá 1. desember 2005 til 1. desember 2006) samanborið við 1,5% árlega fækkun næstu fimm árin á undan og 1,9% fækkun á síðari helmingi 10. áratugarins. Eins og undanfarin ár fækkaði íbúum í nær öllum sveitarfélögum á Vestfjörðum. Í samanburði við landsmeðaltalið fjölgaði íbúum á Norðurlandi lítið (0,4%). Fólkfjölgun einskorðaðist við Eyjafjarðarsvæðið en í öllum sveitarfélögum á Norðurlandi vestra fækkaði íbúum.

Eins og á síðasta ári var fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu hlutfallslega minni en á nokkrum landsvæðum utan þess. Á höfuðborgarsvæðinu var fólksfjölgun á síðasta ári jafnmikil og landsmeðaltalið (2,4%). Af stærri sveitarfélögunum á höfuðborgarsvæðinu var fjölgunin mest í Hafnarfirði (5,4%) en minnst á Seltjarnarnesi (0,1%).

Undanfarin ár hefur fólksfjölgun verið mikil í sveitarfélögum sem liggja að höfuðborgarsvæðinu. Á Suðurnesjum í heild fjölgaði íbúum um rúmlega 5%. Þar var fólksfjölgun á árinu mest í Sveitarfélaginu Vogum (8,6%) en minnst í Grindvíkurbæ (2,8%). Á Suðurlandi var fólksfjölgun í heild 2,3%. Eins og mörg undanfarin ár var fólksfjölgun einna mest í Hveragerði (4,8%) og Sveitarfélaginu Árborg (4,6%). Í nokkrum sveitarfélögum á Suðurlandi fækkaði íbúum, einkum í Vestmannaeyjum en þar hefur íbúum fækkað á síðustu árum. Á þessu ári nam fækkunin 2,4%.

Austfirðingum fjölgar um 12%

Miklar breytingar hafa orðið á mannfjölda á Austurlandi undanfarin ár. Fólksfækkun var talsverð á síðustu árum 20. aldarinnar en með tilkomu virkjana- og stóriðjuframkvæmda hefur þróunin á Austurlandi snúist við og undanfarin ár hefur íbúum hvergi fjölgað meira en á Austurlandi. Á þessu ári fjölgaði íbúum þar um hvorki meira né minna en 12%.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert