Jólin gengin í garð

Jólin voru hringd inn klukkan 18 í kvöld í kirkjum landsins og sóttu margir aftansöng en víða eru einnig miðnæturmessur síðar í kvöld. Veður var þokkalegt um landið allt þegar jólin gengu í garð: hægur vindur og skýjað að mestu, en dálítil væta á víð og dreif sunnan- og vestanlands. Hiti var 3 til 13 stig. Mbl.is óskar lesendum sínum gleðilegra jóla.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert