Bæjarstjórinn í Árborg með milljón á mánuði í laun

Ragnheiður Hergeirsdóttir
Ragnheiður Hergeirsdóttir

Laun Ragnheiðar Hergeirsdóttur, nýs bæjarstjóra í Árborg, verða liðlega ein milljón og fimmtíuþúsund krónur á mánuði, samkvæmt heimildum Sunnlenska fréttablaðsins. Eru það sambærileg laun og Einar Njálsson hafði sem bæjarstjóri á síðasta kjörtímabili en töluvert lægri launum Stefaníu Katrínar Karlsdóttir, fráfarandi bæjarstjóra.

„Ráðningarsamningurinn mun spara bænum um 15 milljónir króna í laun og launatengd gjöld það sem eftir lifir kjörtímabils miðað við ráðningarsamning Stefaníu Katrínar,“ segir Þorvaldur Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar.

Samkvæmt upplýsingum frá bæjaryfirvöldum lækkar ráðningarsamningur Ragnheiðar mánaðarleg útgjöld bæjarins um 350 þúsund krónur samanborið við ráðningarsamning Stefaníu Katrínar. Annars vegar vegna lægri launakostnaðar og hins vegar vegna minni bifreiðakostnaðar.

Ráðningarsamningur Ragnheiðar var samþykktur á fundi bæjarráðs í gær. Samkvæmt honum miðast laun Ragnheiðar við þingfararkaup, margfaldað með stuðlinum 2,03. Þingfararkaup frá 1. janúar 2007 er 517.639 krónur og því verða mánaðarlaun Ragnheiðar 1.050.807 krónur.

Komi til þess að Ragnheiði verði sagt upp störfum á kjörtímabilinu, verður uppsagnarfrestur hennar sex mánuðir en uppsagnarfrestur Stefaníu Katrínar var 12 mánuðir á fyrsta kjörtímabili.

Þegar Stefanía Katrín var ráðin bæjarstjóri síðastliðið sumar, gagnrýndi Ragnheiður kostnað vegna bifreiðar sem Stefanía Katrín fékk til afnota en sú bifreið var tekin á rekstrarleigu. Samkvæmt ráðningarsamningi mun Ragnheiður einnig fá bifreið á rekstrarleigu til afnota en um ódýrari bifreið er að ræða og því lægri leigukostnað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert