Ástandið mjög slæmt í nokkrum leikskólum í Kópavogi sökum manneklu

Frá Kópavogi.

Frá Kópavogi. mbl.is/Brynjar Gauti

Mikil mannekla hamlar starfi í um þremur til fjórum leikskólum í Kópavogi að sögn leikskólafulltrúa bæjarins. Í leikskólunum Marbakka hefur t.a.m. leikskólastjórinn sent foreldrum bréf um að grípa verði til neyðarúrræða vegna manneklu, t.d. með því biðja foreldra um að vera heima með börn sín einn dag í viku. Þá hefur einnig heyrst af lokunum í leikskólanum Dal. Mjög fáar starfsumsóknir hafa borist.

Kópavogsbær rekur 16 leikskóla og að sögn Sesselju Hauksdóttur, leikskólafulltrúa bæjarins, eiga þrír til fjórir leikskólar við töluverðan vanda að etja en jafnframt er eitthvað um að aðrir leikskólar standi tæpt hvað starfsfólk varðar, þ.e. ef veikindi koma upp o.s.frv.

Ástandið verið slæmt undanfarin þrjú ár

Hvað varðar mannaráðningar inn á leikskólana segir Sesselja ástandið vera slæmt, lítið af umsóknum hafi borist. Hún segir ástandið hafa verið með þessum hætti undanfarin þrjú ár í bæjarfélaginu. „Þenslan í samfélaginu gerir það að verkum að það vantar allsstaðar fólk,“ segir Sesselja og bætir við að grunnvandamálið sé að mikill skortur sé á menntuðum leikskólakennurum í landinu. „Ef þeir væru nógu margir þá værum við ekki í vanda.“ Nú sé staðan t.d. þannig að mikið sé verið að ráða ungt fólk sem staldrar aðeins stutt við í leikskólunum. Vöntun sé á fólki sem lítur á starf hjá leikskóla sem framtíðarstarf. Aðspurð segist hún vita til þess að mjög fáir hafi hafið leikskólakennaranám í haust þannig að útlitið er ekki gott. Sesselja segir að mikið hafi áunnist hvað varðar launaleiðréttingar á árinu 2006 og það hafi vissulega skilað sér, en það hafi þó ekki dugað til að leysa vandann.

Hún segir þá leikskóla sem hafa þurft að grípa til neyðarúrræða vegna manneklu reyni að vinna að lausn vandans í samráði við foreldra eins og hægt sé. T.d. hvort það henti betur að sækja börn fyrr eða hafa þau heima einn dag í viku.

Meirihluti barna er allan daginn í leikskólanum

Börn eru í meira mæli farin að vera allan daginn á leikskólum en var fyrir um fimm árum síðan að sögn Sesselju. Það hefur m.a. aukið á vandann og kallað á aukna þörf eftir leikskólastarfsfólki. Fyrir um fimm árum hafi um 35% barna verið allan daginn í leikskólanum en í dag er hlutfallið orðið um 80-90%. „Þetta hefur gerst alveg ótrúlega hratt,“ segir Sesselja.

Þann 16. janúar nk. kemur leikskólanefnd Kópvogs saman til þess að fara yfir stöðuna í leikskólamálum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Innlent »

Laugavegur.

Misþyrmdi manni og skildi eftir

09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Frábær kraftblásari
Eigum nokkra kraftblásara eftir á frábæru verði kr.39.900.- Alvöru kraftur 280...
Aliner Expedition Nýskr 3/2008 Hlaðið aukabúnaði
Sólarsella Loftpúðafjöðrun, Nýtt fortjald, grjótgrind, 2 gaskútar, 2 rafgeymar. ...
HÚSBÍLL
FORD 1986 38" ísskápur, vaskur og eldavél. verð 390.þús. uppl. 6595055...
Finnsbúð 15 Þorlákshöfn
Til sölu skemmtileg eign í Þorlákshöfn. Stutt er í skóla og aðra þjónustu. Um e...
 
Útboðsauglýsing - faxaflóahafnir

Mynd af auglýsingu ...
Samkoma sunnudagur
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
15229 bílaleigubílar ríkiskaup

15229 - Bílaleigubílar - Rammasamni...
Verslun í mosfellsbæ til sölu

Verslun til sölu Verslun í Mosfellsbæ me...