Veður versnar með kvöldinu

Fjörutíu og fimm árekstrar hafa verið tilkynntir til lögreglu á höfuðborgarsvæðinu frá því á hádegi í dag, mikið hefur snjóað í dag og hefur umferð víða gengið hægt. Engin slys hafa orðið á fólki þótt árekstrarnir hafi sumir verið nokkuð harðir að sögn lögreglu. Veður á að versna með kvöldinu og spáir hvassviðri og éljum, enn er færð þokkaleg víðast á höfuðborgarsvæðinu þótt hált sé, en björgunarsveitir eru í viðbragðsstöðu.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert