Óvíst um opnun í Bláfjöllum um helgina

Óvíst hvort opnað verður í Báfjöllum um helgina.

Óvíst hvort opnað verður í Báfjöllum um helgina. mbl.is/Jim Smart

Við erum búnir að stefna leynt og ljóst að því að opna en okkur vantar meiri snjó," segir Grétar Hallur Þórisson, forstöðumaður í Bláfjöllum og Skálafelli, um hvort fyrirhugað sé að opna í Bláfjöllum um helgina. Þrátt fyrir að snjó hafi kyngt niður á höfuðborgarsvæðinu í gær snjóaði ekki mikið í fjöllin og snjórinn var þurr og léttur.

"Ég er minna bjartsýnn á að við náum að opna núna en ég var fyrr í vikunni, ég batt vonir við að snjókoman yrði meiri," segir Grétar Hallur sem hefur þó ekki gefið upp alla von enda á að snjóa áfram í dag. Hann segir hlákuna í seinni hluta desembermánaðar hafa verið afar slæma fyrir skíðafólk á suðvesturhorninu. "Þessi snjór sem er að falla núna hefði verið ekta yfirlag, því þó að kannski 7–10 cm hafi fallið er það ekki nema einn og hálfur cm þegar hann er pressaður niður. Okkur vantar betri undirstöður."

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Laugavegur.

Misþyrmdi manni og skildi eftir

09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Skora á stjórnvöld að styðja betur við barnafjölskyldur

07:37 Þjóðmálanefnd kirkjunnar hefur sent frá sér ráðleggingar um hag og velferð barna. Þær beinast til þjóðkirkjunnar, íþróttafélaga, sveitarfélaga og ríkis. Þjóðmálanefndin skorar á stjórnvöld að auka stuðning við barnafjölskyldur. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Sökudólgarnir í þorpum og bæjum

Björn Valur Gíslason
07:30 Sökudólgar efnahagshrunsins haustið 2008 eru íbúar Bíldudals, Eskifjarðar, Flateyrar, Súðavíkur, Grundafjarðar, Króksfjarðarness og Fáskrúðsfjarðar. Þetta segir Björn Valur Gíslason, þingflokksformaður Vinstri grænna, og óskar Landsbankanum til hamingju með uppgötvunina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Uppsetning Innréttinga.
Láttu fagmann vinna verkið. Reynsla í í Brúnás framleiðslu. Einnig endurbætur ...
TIL LEIGU 20-60 FM IÐNAÐARPLÁSS
Til leigu 20-60 fm iðnaðarpláss. Staðsett 20 mínútur frá Hafnarfirði. Er einnig ...
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
Húsbíll til sölu - Fiat, Sharky L7
2007 árgerð af Sharky L7 til sölu. Keyrður 24þ km. Vel viðhaldið og þjónustubók ...
 
Til sölu m-bens e-200

Til sölu M-BENS E-200 Árgerð...
Námsstyrkir - bandalag kvenna í reykjavík

Námsstyrkir Bandalag kvenna í Reyk...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Sýslumaðurinn á sauðárkróki - framhald uppboðs

Uppboð Framhald uppboðs á eftirfarandi e...