Viðamikil hönnunarsýning á Kjarvalsstöðum í vor

Kjóll Ninnu breytir um lit

Kjóll Ninnu breytir um lit

Ein viðamesta hönnunarsýning sem haldin hefur verið á Íslandi fer fram á Listahátíð í vor. Sýningin, sem nefnist Kvika, opnar á Kjarvalsstöðum þann 19. maí næstkomandi en á blaðamannafundi í dag var kynntur samstarfssamningur sem Listasafn Reykjavíkur og Straumur–Burðarás Fjárfestingabanki hafa gert um sýninguna. Sýningin er einnig styrkt af iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.

Að sögn Guðrúnar Lilju Gunnlaugsdóttur, hönnuðar, sem er sýningarstjóri Kviku, munu 50-70 hönnuðir taka þátt í sýningunni en endanlegt val á hönnuðum liggur ekki fyrir. Um íslenska samtímahönnun er að ræða sem spannar öll svið hönnunar, svo sem húsgögn, fatnað, ljós, skartgripi, byggingarlist, vefnað, tækninýjungar og matargerð. Á sýningunni verða einnig kynnt nýsköpunarverkefni fimm hönnuða sem verða unnin sérstaklega fyrir sýninguna.

Að sögn Guðrúnar Lilju eru það hönnuðirnir Ninna Þórarinsdóttir, sem hefur hannað kjól fyrir sýninguna, Páll Einarsson sem er með verk er nefnist Straumrof, Sigríður Heimisdóttir hefur hannað ljós sem nefnist Norðurljós, Unnur Friðriksdóttir hefur hannað töskur fyrir Kviku og Þórunn Árnadóttir hannaði ofn sem er einskonar æðakerfi húsnæðis.

Samfara sýningunni verður gefin út bók um íslenska samtímahönnun og efnt verður til fræðslu- og fyrirlestradagskrár á sýningartímabilinu.

Að sögn Hafþórs Yngvasonar, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, er sýningin Kvika samvinnuverkefni og segir hann að það sannist hér enn einu sinni að þegar margir leggist á eitt þá ber árangurinn það með sér, ekki síst þegar samvinnuaðilarnir koma frá mismunandi stöðum í þjóðfélaginu.

„Hér tengjast list og iðnaður, einkafyrirtæki og opinberar stofnanir. Og það er hönnun sem tengir okkur samann. Hún snertir okkur öll, hver sem við erum og hvar sem við erum. Við getum öll sameinast um mikilvægi hennar og mikilvægi þess að umhverfi okkar sé skapandi.

Listasafn Reykjavíkur metur hönnun sem listgrein og við erum hreykin af því að hafa þessa sýningu innan veggja safnsins, ekki síst á Listahátíð í Reykjavík sem er alltaf heiður af að tengjast," sagði Hafþór á blaðamannafundi þar sem sýningin var kynnt.

Friðrik Jóhannsson,forstjóri Straums Burðaráss sagði á fundinum að það væri Straumi-Burðarási sönn ánægja að taka þátt í hönnunarsýningunni Kviku. „Þar er á nútímalegan hátt tekinn púlsinn á því besta í íslenskri hönnun í dag, sérstaða hennar í hugmyndafræði- og efnislegu samhengi skoðuð og kraumandi kviku sköpunarkraftsins leyft að njóta sín," sagði Friðrik.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Á meðfylgjandi skjámynd má sjá hvernig hægt er að kalla fram upplýsingar um farsíma í ...

Prófa viðvörunarboð í farsíma

10:27 Viðvörunarkerfi sem getur sent neyðarskilaboð (sms) í farsíma vegna hættu hefur verið þróað til notkunar fyrir almannavarnir hér á landi. Verður kerfið reynt á þriðjudag með því að skilaboð verða send í farsíma í Vík í Mýrdal og nágrenni. Meira »
Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi.

Skilaði inn 200 auka undirskriftum

10:27 „Það er búið að skila inn, í morgun, einhverjum tæpum 200 nöfnum til viðbótar í Reykjavík, þar sem að þetta kom upp,“ segir Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi, aðspurður hvort hann sé búinn að skila inn nýjum undirskriftum í stað þeirra sem yfirkjörstjórnirnar í Reykjavík gerðu athugasemdir við. Meira »

Ásmundur Einar: Slagsíða í ESB umræðunni

Ásmundur Einar Daðason
10:24 „Í aðdraganda þess að Alþingi samþykkti að leggja fram umsókn um aðild að Evrópusambandinu gáfu stjórnmálamenn fyrirheit um það að jafnræðis, hlutleysis og hlutlægni yrði gætt í umræðu um málið“, segir Ásmundur Einar Daðason, alþingismaður í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Þráðlaust net í Íslandsflugi

09:56 Þeir sem fljúga með Norwegian frá Keflavík til Ósló í sumar geta verið á netinu á leiðinni yfir hafið. Þetta verður í fyrsta skipti sem þessi þjónusta er í boði í Íslandsflugi. Meira »

Fundu eiturlyf við leit

09:28 Lögreglan á Akranesi fann 50 grömm af maríjúana og um það bil 14 grömm af amfetamíni við leit í bifreið í bænum í gærkvöldi. Farþegi í bifreiðinni viðurkenndi við yfirheyrslu að eiga eiturlyfin. Meira »

Misþyrmdi manni og skildi eftir

Laugavegur.
09:57 Karlmaður á þrítugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás en hann misþyrmdi manni um fertugt í febrúar sl. í íbúð við Laugaveg. Tveir til viðbótar eru jafnframt ákærðir fyrir að koma manninum ekki til hjálpar þar sem hann lá ósjálfbjarga og lífshættulega slasaður. Meira »

Dómur fallinn í Straumsvíkurmálinu

Sævar Sverrisson hylur andlit sitt. En fyrir framan hann gengur verjandi hans, Ómar Örn Bjarnþórsson.
09:34 Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt tvo karlmenn í fangelsi í Straumsvíkurmálinu svonefnda. Hlutu þeir fjögurra og hálfs árs fangelsi og tveggja ára fangelsi. Dómur var kveðinn upp á tíunda tímanum í morgun. Meira »

Haraldur Benediktsson: Ágangur á ræktarlönd bænda

Haraldur Benediktsson
09:28 „Ein af þeim breytingum sem orðið hafa í umhverfi okkar er veruleg fjölgun á fuglum sem gera sig heimakomna í ræktarlöndum. Ágangur álfta, gæsa og helsingja á tún og akra veldur bændum milljónatjóni á hverju ári“, segir Haraldur Benediktsson, formaður bændasamtakanna í grein í Morgunblaðinu í dag. Meira »

Húsnæðisvandi hjá hafnfirskum skólum

Hafnarfjörður.
08:53 Sjálfstæðismenn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar eru áhyggjufullir yfir óleystum húsnæðisvanda nokkurra leik- og grunnskóla, þegar undirbúningur fyrir komandi skólaár stendur sem hæst. Þeir segja ljóst hafa verið í langan tíma í hvað stefndi. Meira »

Landspítalinn sker meira niður

08:41 Forstjóri Landspítala segir að grípa þurfi til aðgerða til að koma spítalanum og þá sérstaklega lyflækningasviði aftur innan ramma fjárhagsáætlunar. Eftir fyrstu þrjá mánuði þessa árs stefndi lyflækningasvið í verulegan halla og varð ljóst að grípa þyrfti til aðgerða til að mæta því. Meira »

Ungur piltur lærleggsbrotnaði

Sauðárkrókur.
08:49 Reiðhjólaslys varð um klukkan átta í morgun við Árskóla á Sauðárkróki. Piltur í 4. bekk, ellefu ára, sem var að koma til skóla hjólaði þá á talsverðum hraða niður brekku en náði ekki stöðva sig í tæka tíð og hafnaði á hliði. Hann var fluttur á slysadeild og reyndist lærleggsbrotinn. Meira »

Víða komið fast að þolmörkum

Bjarni Jónasson, forstjóri sjúkrahússins á Akureyri
08:31 Forstjóri sjúkrahússins á Akureyri, Bjarni Jónasson, segir að víða sé komið fast að þolmörkum í rekstri þess. Ekki verði haldið áfram með óbreytta þjónustu án frekari fjárveitinga. Meira »

Vorfundur NATO hefst í dag

Merki Atlantshafsbandalagsins NATO.
08:30 Vorfundur Atlantshafsbandalagsins, NATO, hefst í Tallin, höfuðborg Eistlands í dag. Um er að ræða svonefnt NATO-þing en af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður, Ragnheiður Elín Árnadóttir varaformaður og Birgitta Jónsdóttir. Meira »

Mikið tjón vegna villikattasóttar

Sauðburður er annatími í sveitinni og skemmtilegur ef vel gengur.
07:57 „Þetta er niðurdrepandi, á tíma sem á að vera skemmtilegasti tími ársins í sveitinni,“ segir Sigurður Bjarni Sigurðsson, sauðfjárbóndi á Brautarhóli í Svarfaðardal. Hann hefur misst á annað hundrað lömb í vor vegna bogfrymlasóttar sem berst með villiköttum í fóður. Meira »

Hægt að kæra úrskurð um nálgunarbann

07:45 Alþingi samþykkti í gær þá breytingu á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili að bæta í lögin kæruheimild sem gleymdist þegar lögin voru samin og samþykkt á síðasta ári. Meira »

Rækta þarf framúrskarandi nemendur

Nemendur í 10. bekk.
08:11 Huga ætti betur að stöðu sterkari stærðfræðinema á unglingastigi. Gæta þarf að því að öll orkan fari ekki í að sinna þeim veikari en mikilvægt sé að rækta og hvetja framúrskarandi nemendur. Þá þurfi að leita leiða gegn því að kerfið setji alla nemendur í sama mót og hvetji til meðalmennsku. Meira »

Spyr um viðbragðáætlun stjórnvalda

Evran siglir ólgusjó um þessar mundir.
07:54 Illugi Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, lagði í gærkvöldi fram skriflega fyrirspurn til Steingríms J. Sigfússonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, vegna mögulegrar útgöngu Grikklands úr evrusamstarfinu og undirbúning stjórnvalda þess vegna. Meira »

Þrotabú upp á 95 milljarða

Lyf og heilsa er félag sem Wernersbræður keyptu af Milestone, sem þeir áttu sjálfir, með ...
07:39 Lýstar kröfur í þrotabú Milestone, sem var í eigu systkinanna Karls, Steingríms og Ingunnar Wernersbarna, nema um 95 milljörðum króna, segir Grímur Sigurðsson, skiptastjóri búsins. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BAKPOKI SPLUNKUNÝR TIL SÖLU
Mjög góður og öflugur bakpoki til sölu ca 80-115L mörg hólf, fóðraðar ólar, regn...
Landcruiser 120 VX, 2003.
Til sölu Lc 120 vx 2003 disel ek.220Þ Topplúga.8manna.leður.krókur , 33" de...
PING G2
Ping G2 járn, 4HL-5HL-6-7-8-9-W-S-L og 60°(ekki Ping) Ping Trailblazer kerrupok...
Trúlofunar- og giftingahringar
Auk gullhringa eigum við m.a. titanium og tungstenpör á fínu verði. Sérsmíði, fr...
 
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...
Menntunarsjóður mæðrastyrksnefndar reykjavíkur

MENNTUNARSJÓÐUR Mæðrastyrksnefndar Re...
Aðalfundarboð
Fundir - mannfagnaðir
Félag skipstjórnarmanna ...
Forstöðumaður
Stjórnunarstörf
Hannesarholt er nýlega stofnað menningar...